Íslenska leiðin - 01.11.2020, Blaðsíða 27
27
Pawel Bartoszek fæddist árið 1980 í
borginni Poznan í Póllandi og bjó þar til
ársins 1988 þegar hann flutti til Íslands.
Það kom til vegna þess að faðir hans
er tungumálafræðingur og hafði hann
áhuga á að læra framandi tungumál.
Faðir Pawels fluttist því til Íslands árið
1987 og ári seinna fluttist fjölskyldan
einnig til landsins en flutningarnir voru
nokkuð ferli þar sem fjölskyldan bjó á
báðum stöðunum í tvö ár en flutti svo
endanlega til Íslands árið 1990 þegar
Pawel var 10 ára gamall. Á þessum
tíma voru innflytjendur mun færri og
ekki nærri eins áberandi í samfélagi-
nu. „Það hafði verið einn annar pól-
skur strákur í Melaskóla 15 árum áður
þannig að kennararnir töldu sig hafa
reynslu“ segir Pawel og telur hann
þetta vera lýsandi fyrir hversu lítið sý-
nilegir innflytjendur voru á þeim árum.
Fjöldi Pólverja á Íslandi átti þó eftir
að breytast mjög mikið síðar meir en
síðan Pawel fluttist til landsins hefur
þeim fjölgað úr um 100 manns yfir í
um 19.000.
Pawel segist hafa átt hefðbundna
„Vesturbæjaræsku“ þar sem hann
gekk í Melaskóla, Hagaskóla og síðan
í MR. Síðar lærði hann stærðfræði við
Háskóla Íslands og á þeim árum byrjaði
þátttaka hans í þjóðfélagsumræðunni
en Pawel byrjaði sem virkur blogga-
ri og vakti athygli með skrifum sínum
á Deiglan.is og pistlum í Fréttablaðinu.
Þegar Pawel var 19 ára skráði hann sig í
Sjálfstæðisflokkinn. „Þá var ég á kjördag
að labba um á milli og taka fólk tali og
hitti þar Ögmund Jónasson í VG og ta-
laði við hann í örugglega hálftíma eða
klukkutíma, skráði mig í kjölfarið í þann
flokk sem honum væri fjærst.“ Pawel te-
kur þó fram að Ögmundur sé prýðilegur
stjórnmálamaður þó þeir séu ósam-
mála um flesta hluti.
Áður en Pawel hellti sér út í pólitík tók
hann þátt í margs konar pólitísku starfi
en ásamt því að blogga um skoðanir
sínar var hann m.a. virkur í Sambandi
ungra sjálfstæðismanna og árið 2010
var hann í 18. sæti á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjór-
narkosningarnar í Reykjavík.
Seinna fór Pawel í framboð til Stjórnla-
gaþings þar sem hann var kjörinn og
var einn af 25 manna hópi sem tók
þátt í að búa til frumvarp um nýja stjór-
narskrá árið 2011. Við stofnun Viðreisnar
árið 2016 ákvað Pawel að færa sig um
set, hætta í Sjálfstæðisflokknum og
ganga til liðs við Viðreisn. „Ég fór ekki út
úr Sjálfstæðisflokknum með einhver-
jum gríðarlegum sprengjum eða yfir-
lýsingum um að eitthvað rosalegt hafi
gerst, ég einfaldlega fann flokk sem að
stóð mér nær hjarta. Ég hef alltaf ve-
rið Evrópusinni, hef alltaf verið á hæ-
grivængnum en mjög Evrópusinnaður
og þarna var kominn trúverðugur flok-
kur sem deildi þeim áherslum og þá
fannst mér sjálfsagt að styðja hann og
taka þátt í starfi hans.“
Pawel fór í framboð fyrir Viðreisn í
Alþingiskosningunum árið 2016 og var
í kjölfarið kjörinn á þing. Pawel segir að
sér hafi fundist mjög gaman á Alþingi.
„Það var mjög merkilegt og maður er
fullur auðmýktar, þó það sé klisja þá er
maður það.“ Í skyndilegum Alþingiskos-
ningum 2017 náði Pawel ekki að endur-
heimta sæti sitt á Alþingi en var áfram
virkur í Viðreisn. Ári síðar, 2018 fór hann
í framboð fyrir flokkinn í borgarstjór-
narkosningum í Reykjavík og náði kjöri.
Í dag starfar Pawel því sem borgar-
fulltrúi og gegnir m.a. hlutverki forseta
borgarstjórnar. Hann segir að starfið sé
skemmtilegt og mun nær kjósendum
og daglegu lífi þeirra en starf Alþingis-
manns.
Aðspurður hvort Pawel geti hugsað
sér að fara aftur á þing segir hann
að hann geti vel hugsað sér að vera
í stjórnmálum í þónokkurn tíma. Hans
skoðun er sú að reynsla sé gagnleg í
starfi stjórnmálamanns og heppilegra
væri ef fólk myndi vera lengur í pólitík
en gengur og gerist. Þetta sé þó allt
háð umboði kjósenda og fer eftir úrsli-
tum kosninga, ef slíkt umboð fengist
aftur gæti hann vel hugsað sér starf
þingmanns á ný.
Pawel
Bartoszek
Sabine Leskopf fæddist í Þýskalandi
árið 1969 og ólst upp í litlu sveitaþorpi
ekki langt frá Frankfurt. Á háskólaárum
sínum lærði hún í senn ensku, rúss-
nesku og viðskiptafræði og fólst hluti
námsins í því að læra í erlendum
háskóla. Sabine fór því í nám til Edin-
borgar í Skotlandi og kynntist hún
þar íslenskum eiginmanni sínum. Eftir
námið í Skotlandi fluttust þau saman
til Þýskalands í nokkur ár þar til eigin-
manni hennar bauðst atvinnutilboð
á Íslandi og ákváðu þau í kjölfarið að
flytja saman til Íslands árið 2000 en
Sabine segir að hún hafi vel vitað hvað
beið hennar enda búin að koma oft til
landsins með eiginmanni sínum. „Ég
var ekkert hrikalega spennt fyrir að
koma hingað en ég var tilbúin að prófa
það, ég var tilbúin að gefa Íslandi tæ-
kifæri og ég vissi hvað ég var að gera“
en Sabine hafði bæði búið í Skotlandi
og Rússlandi og því vön að búa annars
staðar en í Þýskalandi.
Sabine telur sig hafa verið ótrúlega
heppna með að fá strax starf við hæfi
en fljótlega eftir að hún kom til Íslands
fór hún að vinna í viðskiptaþróu-
nardeild hjá Össuri. Sabine segir að Ös-
sur hafi verið eitt af fáum fyrirtækjum
sem hafi litið á innflytjendur sem öflu-
gan mannauð. Fyrirtækið hafi séð mikil
tækifæri í að fá hana í vinnu þar sem
hún var viðskiptafræðimenntuð, kun-
ni bæði þýsku og ensku og nógu góða
íslensku til að bjarga sér á kaffistofunni.
Sabine
Leskopf