Íslenska leiðin - 01.11.2020, Blaðsíða 54
54
Undanfarin námsár hefur Politica, nemendafélag stjórn-
málafræðinema við Háskóla Íslands, gert sér glaða daga
og heimsótt ýmis fyrirtæki í gegnum árin og var skólaárið
2019-2020 þar engin undantekning. Politica tók á móti fyrsta
árs nemum með þvílíku teiti í Framsóknarhöllinni á Hverfis-
götunni í lok ágúst þar sem nýir, jafnt sem eldri nemendur
fengu tækifæri til að kynnast. Síðan var keppt í beer-pong og
flip-a-cup, þvílíkt og annað eins!
Politica hóf skólaárið á vísindaferð til Viðreisnar, mikilmennin
Þorgerður Katrín og Jón Steindór tóku vel á móti nemendum
og ræddu um starfsemi Viðreisnar. Eftir frábæra vísindaferð
hjá Viðreisn héldu nemendur af stað á Októberfest SHÍ þar
sem var dansað fram á rauða nótt.
Hagstjórnardagurinn var haldinn með pompi og prakt 4.
október, keppt var í ýmsum greinum, svo sem fótbolta, kub-
bi, körfubolta, brennó og reipitogi. Eftir langan dag af strangri
íþróttaiðkun var blásið til heljarinnar veislu í veislusal Gróttu
þar sem tilkynntir voru sigurvegarar Hagstjórnardagsins og
voru það hagfræðinemar sem báru sigur úr bítum.
Eftir Hagstjórnardaginn tóku við hrikalega skemmtilegar ví-
sindaferðir. Politica heimsótti Utanríkisráðuneytið, NOVA,
Sjálfstæðisflokkinn, Fastanefnd ESB og Framsóknarflokkinn
svo eitthvað sé nefnt. Það er óhætt að segja að rúsínan í
pylsuendanum hafi verið heimsókn Politica á Bessastaði í
lok nóvember. Nemendur tóku sér góða pásu frá prófalestri,
klæddu sig upp og gerðu sér ferð í forsetahöllina þar sem
forseti vor, Guðni Th. Jóhannesson tók á móti nemendum
ásamt frábæru starfsfólki og svaraði spurningum um starf-
semi hans og komandi tíma.
Vorönnin 2020 var vægast sagt áhugaverð, án þess að
fara mikið út í þá sálma þá féll niður meirihluti vísindaferða
ásamt árshátíð, vegna kórónuveiru. Áður en heimsfaraldur
skall á þá heimsótti Politica Íslenska erfðagreiningu, Pírata
og breska sendiráðið.
Frávíkjandi stjórn Politica þakkar fyrir frábært skólaár 2019-
2020 og óskar nemendum góðs gengis á komandi námsári.
Við bjóðum nýja stjórn velkomna sem er búin að hnoða sa-
man hrikalega dagskrá!
Þórunn Soffía Snæhólm, fráfarandi skemmtanastýra Politica
Annáll fráfarandi
skemmtanastýru