Íslenska leiðin - 01.11.2020, Page 10

Íslenska leiðin - 01.11.2020, Page 10
10 loftlagsmál. Það var umhverfisráðherra VG sem setti fyr- stu lögin um loftlagsmál á Íslandi árið 2012. Það var nú ekki gríðarlegur spenningur í samfélaginu fyrir því á þeim tíma. Það sem mér finnst frábært við loftslagsmótmælin er að þau hafa áhrif, ekki bara á stjórnmálin heldur samfélagið allt, á atvinnulífið og verkalýðshreyfinguna. Við erum að sjá hugafarsbreytingu sem er náttúrulega það mikilvægasta.“ „Þetta hefur haft þau áhrif að ég tel að það sé líklegra að þessi vilji stjórnvalda haldi áfram - þetta er orðið þver- pólitískt mál.“ Hvað viltu helst láta minnast þín fyrir þegar þú hættir í stjórnmálum? „Ég held að maður ráði því ekki sjálfur.“ En ef þú gætir óskað þér þess? „Ég er stjórnmálamaður og manneskja, að því leytinu er það enginn aðskilnaður og ég hugsa bara alltaf einn dag í einu. Ég hef mín gildi, hugsanir og horfi auðvitað til lengri tíma en svo veit maður bara að maður ræður einhvern veginn ekki sinni för.“ „Ég get nefnt eitt dæmi frá því þegar ég var menn- tamálaráðherra. Þá var mikið atvinnuleysi rétt eftir hrun. Það var ekkert rosa gaman að vera menntamálaráðherra fyrir manneskju sem langaði mest að stórauka framlög en þurfti að skera niður. Það sem ég vona að mín verði minnst fyrir er verkefnið „Nám er vinnandi vegur“, sem gekk út á að opna leiðir fyrir fólk sem missti vinnuna inn í nám. Við sérhönnuðum námsleiðir, við tryggðum að fólk gat haldið atvinnuleysisbótum og það voru á fjórða þúsund manns sem höfðu misst vinnuna sem fóru inn í ný námstækifæri. En svo getur verið að mín verði ekkert minnst fyrir það hel- dur að hafa lokið við byggingu Hörpu sem ég fékk í fangið hálfbyggða. Mikilvægt hús fyrir tónlistina og kannski öllu hefðbundnara dæmi um það sem kallað hefur verið min- nisvarðar.“ „Þannig við skulum bara sjá hvað gerist, ég held að það verði bara spennandi. Ég get svarað þessari spurningu þe- gar ég hætti.“ Sérðu fyrir þér að starfa lengi í stjórnmálum? „Það er nú eitt. Þegar ég gaf kost á mér í prófkjöri fyrst 2007, á því frábæra ári, hugsaði ég með mér að ég ætlaði að vera í tvö kjörtímabil sem hefði þá þýtt að ég hefði verið hætt 2015. En staðreyndin er sú að ég er á fimmta kjörtí- mabili því það hafa verið mjög margar óvæntar kosningar og allt hefur æxlast öðruvísi en ég hélt. Ég hef hins vegar aldrei ætlað mér að gera þetta að ævistarfi því það er mjög margt sem ég á eftir að gera. Ég þarf einhvern smá tíma fyrir það.“ Ertu með einhver ráð til þeirra sem vilja byrja að taka þátt í stjórnmálum? „Ég held að maður þurfi náttúrulega að hafa tvennt til að byrja. Í fyrsta lagi að hafa sýn og hugmyndir, um það snúast stjórnmál. Sýn og hugmyndir um hvert maður vill leiða samfélagið. Í öðru lagi held ég að maður þurfi að hafa áhuga á fólki. Ég þekki alveg stjórnmálamenn sem hafa eingöngu áhuga á fólki en ekkert sérstaklega mikla sýn og ég þekki stjórnmálamenn sem hafa mikla sýn en hafa kannski ekki mikinn áhuga á fólki. Ég held að maður verði að hafa hvort tveggja til að bera ef maður vill verða farsæll stjórnmálamaður en svo verður maður líka að hafa mjög mikið æðruleysi því það er staðreynd að maður ræður ekki alltaf örlögum sínum í stjórnmálum.“

x

Íslenska leiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.