Íslenska leiðin - 01.11.2020, Qupperneq 18

Íslenska leiðin - 01.11.2020, Qupperneq 18
18 annað áberandi fólk. Sá stjórnmála- maður sem hann lék lang oftast og flestir muna best eftir er Davíð Odds- son fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur, forsætisráðherra og seðlabankastjóri. Örn byrjaði að leika Davíð í áramótas- kaupinu 1986 þegar hann var borgar- stjóri og í kjölfarið festist hlutverkið við hann en Örn fór með hlutverk Davíðs í flestum áramótaskaupum og alltaf í Spaugstofunni. Davíð hefur því spilað mjög stórt hlutverk í starfsferli Arnar. Það gat verið krefjandi starf einkum vegna þess að Spaugstofan var vi- kulegur þáttur og margt gat breyst á stuttum tíma. „Davíð Oddsson átti það til þegar hann var forsætisráðherra eða borgarstjóri að koma í alls konar svona drottningarviðtöl á föstudö- gum þegar við vorum búnir að taka upp.“ Það reyndist Spaugstofunni erfitt og segir Örn að oft hafi meðlimir hennar þurft að giska á innihald viðta- lanna fyrirfram. Örn segir að Davíð hafi ekki verið ósáttur með það hvernig Örn lék hann enda sjál- fur vanur að gera grín að stjórnmálamönnum og þekki vel eðli grínand- stöðu. Grín Spaugstofunnar fór hins vegar ekki jafn vel í alla stjórnmála- menn og voru þeir oft misánægðir með útreiðina sem þeir fengu í Spaug- stofunni. Til að mynda fór það ekki vel í Halldór Ásgrímsson fyrrum forsæ- tis- og utanríkisráðherra hvernig hann var túlkaður í þáttunum og taldi hann lítið úr sér gert. Örn segir að slíkt verði grínistar að vera búnir undir. „Þetta er eðli svona þáttar, maður stuðar suma og þá þarf maður bara að taka á því.“ Hann telur jafnframt að stjórnmála- menn verði einnig að vera búnir undir að á þeim sé tekið í pólitísku gríni. „Þá skal maður ekkert hætta sér í pólitík ef maður þolir ekki að láta taka á sér.“ Starfsferill Arnar hefur að mestu leyti snúist um það að gera grín að öllu mil- li himins og jarðar og oft að flóknum og dramatískum viðfangsefnum. En hver er skoðun hans á því hvort það megi gera grín að öllu? Örn segist hafa velt þessari spurningu mikið fyrir sér og segist hafa komist að þeirri niður- stöðu að það fari eftir því hvernig það er gert. „Ég veit það ekki en ég held að það megi gera grín að öllu en það er bara spurning um að fara ekki þan- nig yfir strikið að fólk fái viðbjóð á þér, því það er auðvelt.“ Sem dæmi nefnir Örn uppistandarann Eddie Izzard sem hann segir vera mjög snjallan grínis- ta og nefnir að honum hafi meira að segja tekist að gera grín að íslensku rollunni, og það á ensku. Eddie hefur tekist að gera grín að ótrúlegustu hlu- tum innan siðferðilegs ramma og má þar m.a. nefna grín að helför nasista sem hann gerði á þann hátt að það var hvorki siðlaust né andstyggilegt heldur einfaldlega fyndið. Hann telur einnig að sam- hengi grínsins skipti máli. „Það er ekkert mál að vera rætinn, ósmekklegur og klámfenginn“ segir Örn en hann telur sjálfur þessa eiginleika ekki vera eftir- sóknarverða. Þó að tími Spaugstofunnar sé liðinn starfar Örn enn sem skemmtikraftur og leikari. Hann er því hvergi nærri hættur að gera grín að samfélaginu og er ein nýjasta afurðin hlaðvarp sem meðlimir Spaugstofunnar bjuggu til meðan samkomubannið var í gildi. Örn telur grín vera nauðsynlegan hlut í tilverunni og mikilvægt að reyna eftir fremsta megni að líta sem oftast á spaugilegu hliðarnar. „Lífið má aldrei vera þannig að maður megi ekki aðeins brosa út í annað. Einhvers staðar segir nú málshátturinn: „Maður er manns gaman“, svo lengi sem það skilur ekki eftir sig marbletti þá er það bara í góðu lagi.“

x

Íslenska leiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.