Íslenska leiðin - 01.11.2020, Page 20
20
Hver er leiðinlegasti áfangi sem þú sast í stjórnmálafræðináminu?
Mannfræði. Það var einn skylduáfangi í mannfræði sem mér fannst alveg
skelfilega basic. Við stóðum meira að segja nokkur fyrir undirskrifasöfnum og
hvöttum deildina til að taka áfangann úr skyldu. Það tókst. Okkur langaði miklu
frekar í fleiri áfanga í stjórnmálafræði.
Ef þú mættir búa til og kenna nýjan áfanga, um hvað væri hann?
Smáríkið Ísland: áhrif smæðar á íslensk stjórnmál og utanríkisstefnu.
Þú mátt velja einn kennara úr deildinni til að vera með á eyðieyju,
hvern myndir þú velja og af hverju?
Vin minn Ólaf Þ. Harðasson. Okkur myndi ekki skorta umræðuefni.
Hvað gerir þú til að slaka á?
Stunda crossfit.
Hvert er þitt „guilty pleasure“ sjónvarpsefni?
Þáttaröðin Vikings á netflix, sjá síðasta svarið.
Te eða kaffi?
Svart kaffi að sjálfsögðu.
Hver er uppáhalds kennslustofan þín?
Ingjaldsstofa, hringstofan á Háskólatorgi.
Skemmtileg staðreynd sem fáir vita um þig?
Ég er að grafa upp og endurgera manngerða hella við Hellu. Markmiðið er að
sanna landnám Kelta á Íslandi fyrir landnám norrænna manna. Sjá, www.cave-
sofhella.is
KE
N
N
A
RA
ST
O
FA
N
Nemendur stjórnmálafræðideildarinnar eru
gríðarlega lánsamir með kennara deildarinnar sem
eru sífellt til í að miðla gáfum sínum og reynslu til
þeirra. En hver eru þau í raun og veru þegar þau eru
ekki að kenna?
Baldur
Þórhallsson