Íslenska leiðin - 01.11.2020, Side 37

Íslenska leiðin - 01.11.2020, Side 37
37 Það var því ekki alveg auðvelt að túl- ka tillögur Pútíns eða átta sig á því hvað vekti nákvæmlega fyrir forse- tanum. Hvernig átti að skilja breyttar valdheimildir þings og forseta? Hvaða stofnanir aðrar fengju aukið hlutverk við þessar stjórnarskrárbreytingar og hvaða áhrif hefðu ákvæði um alþjóð- legar skuldbindingar? Pútín skýrði frá því strax í stefnuræðunni að þinginu yrði falið að afgreiða tillögurnar með þeim breytingum sem þingmenn vildu gera, fljótt og vel en síðan yrðu brey- tingarnar lagðar í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu 22. apríl. Pútín lagði tillögur sínar fyrir rússnes- ka þingið – Dúmuna – strax 20. janúar, og samþykkti þingið þær þegar í stað og vísaði áfram til frekari vinnslu. Pútín skipaði 75 manna vinnuhóp til að fjalla um tillögurnar, gera á þeim nauðsyn- legar lagfæringar og viðbætur –en hópnum var meðal annars falið að safna saman tillögum frá héraðsstjór- num og -þingum og öðrum aðilum í samfélaginu – þar á meðal frá al- menningi. Hundruð tillagna bárust sem vinnuhópurinn tók afstöðu til og fáeinar þeirra rötuðu inn í drögin, sem þannig fóru fyrir þingið til annarrar umræðu í byrjun mars. Það var á þessu stigi málsins sem þingið fór verulega að láta til sín taka. Þegar stjórnarskrártillögurnar komu frá vinnuhópi Pútíns var talsvert búið að breyta þeim og einkum bæta við ákvæðum sem fyrst og fremst miðuðu að því að breyta grunnkarakter stjór- narskrárinnar, en þingið gekk enn len- gra í þá átt. Hver er tilgangurinn? Hverju er verið að breyta? – Rússland 1993 Stjórnarskrá Rússlands á rætur að re- kja til ólguáranna í byrjun tíunda ára- tugarins þegar Boris Jeltsín var að fes- ta sig í sessi. Árið 1993 var örlagaríkt. Þá leiddi Jeltsín átök við þáverandi þing landsins – Æðsta ráðið sem fen- gið hafði mynd sína á síðustu árum Sovétríkjanna við breytingar Mikhails Gorbatsjovs á stjórnkerfinu. Jeltsín átti aldrei fullan stuðning þingsins og þegar á leið urðu átök um stjórnski- pun sífellt harðari, og það kom meðal annars fram í deilum um nýja stjór- narskrá Rússlands sem verið hafði í smíðum nokkur ár á undan. Jeltsín barðist fyrir því að stjórnskipanin tæki mið af helstu grunnstoðum vestræns frjálslyndis – og má vel halda því fram að hann og hans nánustu samstarfs- menn á þeim tíma hafi verið hallir undir það sem síðar var kallað nýfr- jálshyggja. Þessi stefna mætti harðri andstöðu annar svegar þeirra sem vildu ekki jafn afdráttarlaus skil við fortíðina, hinsvegar þeirra sem voru hliðhollir stærra og skýrara hlutverki ríkisvaldsins í samfélaginu. Þessum átökum lauk með því að Jelt- sín leysti upp þingið í september 1993 og um tíma lá við borgarastríði í Rúss- landi þegar leiðtogar þingsins gerðu úrslitatilraun til að taka völdin í Mos- kvu. Jeltsín hafði fullan sigur snemma í október og þá voru hafðar hraðar hendur: Ný stjórnarskrá var borin undir þjóðaratkvæði og samþykkt snemma í desember og um leið var kosið til nýs þings landsins – Dúmunnar, sem var neðri deild þess og Sambandsráðsins, sem var efri deildin. Stjórnarskráin sem samþykkt var 1993 er því með mjög frjálslyndu sniði. Stjórnkerfi Rússlands minnir að mör- gu leyti á það franska og bandaríska. Forsetaembættið er miðlægt, en töluverð völd líka hjá þingi. Rússland er sambandsríki sem í dag telur 85 „aðila sambandsins“ og er stjórnski- punarleg staða þeirra mismunandi. Sum hafa meiri sjálfstjórn en önnur og allmörg þeirra eru lýðveldi sem lúta að umtalsverðu leyti eigin lögum og hafa sett sér stjórnarskrár. Sömuleiðis er einstaklingsfrelsi og borgaralegum réttindum gert mjög hátt undir höfði. Valdheimildir ríkisins eru vel skilgrein- dar, aðskilnaður veraldlegra og trúar- legra þátta skýr og svo má áfram telja.

x

Íslenska leiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.