Íslenska leiðin - 01.11.2020, Qupperneq 39

Íslenska leiðin - 01.11.2020, Qupperneq 39
Pútin lagði frá upphafi mikla áhers- lu á að þjóðin kæmi að breytingu- num – bæði með því að almenningur gæti lagt fram tillögur og með því að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarpið í heild sinni. Ætlunin var að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram 22. apríl, en vegna COVID faraldursins var henni frestað til 1. júlí. Gagnrýni á frumvarpið var hávær í hópi þeirra sem gagnrýna stjórnvöld opin- berlega, en náði ekki nema að litlu leyti inn í umfjöllun meginstraumsfjölmiðla. Þótt meiri sveiflur hafi orðið á vinsæl- dum Pútíns á þessu ári en oftast áður, virtist stuðningur nokkuð afdráttarlaus í samfélaginu. Áhugi á málinu virtist vissulega takmarkaður – breytingar á stjórnarskrá eru yfirleitt ekki málefni sem höfðar sterkt til hins almenna kjó- sanda. Þing Evrópuráðsins óskaði strax í janúar eftir því að Feneyjanefndin fjallaði um sumar þeirra breytinga sem lagðar voru til og mælti nefndin eindregið með því að hætt yrði við ákvæði um að tak- marka gildi alþjóðalaga og alþjóða- samninga, sem voru eitt meginatriðið í upphaflegum tillögum Pútíns. Vegna faraldursins var höfuðáhersla lögð á rafræna atkvæðagreiðslu og var kjósendum gert kleift að greiða atkvæði með rafrænum hætti í heila viku fy- rir kosningarnar. Samkvæmt tölum frá yfirvöldum greiddi yfir helmingur kjó- senda atkvæði rafrænt. Þegar upp var staðið var kosningaþátttaka sögð hafa verið tæp 68 prósent, rúm 77 prósent hafi greitt atkvæði með breytingunum en rúm 22 prósent gegn þeim, þegar miðað er við gild atkvæði. Því hefur verið haldið fram að niður- stöðurnar byggi í raun á víðtækum kosningasvikum. Þótt ekkert slíkt hafi verið staðfest, er ljóst að utanumhald kosninganna var með þeim hætti að erfitt er að sýna fram á að svo hafi ekki verið. Einkum er vantrú á þátttökutölum stjórnvalda en mörg dæmi um furðu- lega þróun atkvæðatalna benda líka til að átt hafi verið við talningu atkvæða. Niðurstöður voru tilkynntar strax 2. júlí og breytingarnar voru lögfestar sama dag. Hvað sem kosningasvikum líður er nokkuð ljóst að enga víðtæka and- stöðu við stjórnarskrárbreytingarnar er að finna í samfélaginu. En þó á eftir að koma í ljós hver áhrif breytingarnar hafa á stjórnkerfið í heild sinni. Vissule- ga bendir margt til þess að þær verði til að festa afturhalds- og þjóðernisö- fl í sessi. En það kann líka að vera að sum hinna opnari og óljósari ákvæða leiði til þess að vægi stjórnarskrárinnar minnkar og áhrif hennar á ríkisvaldið – og samfélagið í heild – verði veikari. Það kann að sumu leyti að hafa verið ætlunin. Eitt af því sem einkennir stjór- narhætti Pútímtímabilsins er mótþrói gegn réttarríkinu. Stjórnvöld vilja geta notað lögin til að ná þeim markmiðum sem þau setja sér hverju sinni, hvort sem um er að ræða aðgerðir gegn meintum og raunverulegum stjórna- randstæðingum, andófsöflum af ýmsu tagi eða einfaldlega eintaklingum eða hópum sem yfirvöld telja þvælast fyrir sér, svo sem fjölmiðlum eða frjálsum félagasamtökum. Stjórnarskrá sem ver réttindi fólks og takmarkar heimildir stjórnvalda getur farið í taugarnar á valdsæknum leiðtoga. Þjóðaratkvæð- agreiðsla 39

x

Íslenska leiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.