Íslenska leiðin - 01.11.2020, Síða 41

Íslenska leiðin - 01.11.2020, Síða 41
41 Í raun hófst ferðin fyrir mig í byrjun september 2019 er ég tók það að mér að skipuleggja þetta mikla ævintýri sem fram fór vorið 2020. Skipulagningin gekk eins og í sögu, þótt ég segi sjálfur frá. Prýðis gisting í algerri miðju borgarinnar var bókuð og staðsetningar hina fínustu veitingastaða niður- negldar. Að sjálfsögðu, að fornri hefð, var einnig bókaður karaoke staður og komið vel fyrir ofarlega á ferðalistanum. Ég setti mig í samband við helstu stofnanir og lagði grunn að ferðamátanum norður og suður um borgina. Er undir- búningsferlinu fór að ljúka snemma í desember hafði ég talið mér trú um að séð hafði verið fyrir öllu. Ekki hafði ég getað séð fyrir heimsfaraldri aldarinnar. Kvöldið áður en flugið okkar átti að taka á loft voru sö- gusagnir um að loka landinu farnar á kreik. Við lögðum af stað 2. mars og vorum lent í Brussel rétt eftir hádegi. Líkt og allir Íslendingar tókum við strax eftir veðrinu. Þrátt fyrir skýjað veður var hitinn mun meiri en í Norður-Atlantshafinu. Lestin tók hópinn með hraði inn í borgina og með ferðatöskur- nar okkar röltum við á hótelið. Fyrsta kvöldinu í Brussel var fagnað á suðuramerískum veitingarstað. Morguninn eftir var fyrsta heimsókn ferðarinnar í ráðherraráð Evrópusam- bandsins. Mikilfengleg bygging tók á móti okkur við komuna á Evróputorgið (torgið þar sem nær allar stofnanir Evrópu- sambandsins er að finna). Eftir að hafa fengið okkur sæti í fundarherbergi fengum við kynningu á ráðherraráðinu og tilgangi þess. Kynningin var flutt af starfsmanni ráðsins sem fór yfir allt það helsta. Því næst var stutt rölt yfir í sendiráð Íslands. Sendiráðið hafði nýlega flutt í sameiginlega byggingu norska sen- diráðsins. Þar tók við mjög áhugaverð kynning á starfsemin- ni sem og áhrifavöldum sendiráðsins innan Evrópusam- bandsins. Kjarni málsins var að Ísland beitti valdi, einkum í gegnum EFTA með Noreg, Lichtenstein og Sviss sér við hlið. Í miðri kynningu bárust fregnir frá Evrópuþinginu að öllum heimsóknum í þingið yrðu frestað vegna kórónaveirufa- raldsins. Líkt og fingrum væri smellt losnaði dagskráin það sem eftir var dagsins. Þar með höfðu tvær stofnanir hætt við að taka á móti okkur. Já, NATO hafði nefnilega frestað heimsókninni nær mánuði áður en haldið var til Brussel, eða um leið og faraldurinn fór að breiðast um Evrópu. Þriðji dagurinn í Brussel var pakkaður af meira Evrópusam- bandsfjöri. Fyrst var farið í EESC (European Economic and Social Committee) þar sem við fengum örkynningu frá upp- lýsingafulltrúa stofnunarinnar. Svo tók við langt hádegishlé sem var tilvalið tækifæri að rölta um gamla bæ Brussel. Þar mátti finna skemmtilegar matvörubúðir sem seldu an- naðhvort allt náttúrulegt, beint frá bónda eða í engum um- búðum. Þröngar götur með búðir af öllum gerðum og litlum soho-sniðuðum kaffihúsum. Næst heimsóttum við fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins en þangað mættum við öll rennandi blaut, nýlent í hellidembu. En það kom ekki að sök þar sem heimsóknin í framkvæmdastjórnina var án efa sú besta af Evrópusambandsheimsóknunum. Við fengum að sitja í sjálfum stjórnarsalnum þar sem fram- kvæmdastjórnin hittist sjálf reglulega til þess að ákveða og skipuleggja framtíð Evrópu. Þegar allir höfðu komið sér fyrir tók við hörku fjörutíuogfimm mínútna kynning á starfi fram- kvæmdastjórnarinnar og í raun öllu því sem henni tengist. Kynnirinn var skemmtilegur og áhugasamur um efnið og held ég að hann hafi slegið met í talhraða. Að því loknu fórum við í umræður um framtíð Evrópu. Þar tóku við djúp samtöl um elli og hvernig samfélagið er í raun að eldast. Að því loknu var snætt í glænýrri matarmiðstöð (nær eins og Stjörnutorg í Kringlunni nema auðvitað ekkert eins og Stjörnutorg í Kringlunni). Morguninn eftir var seinasta heimsókn ferðarinnar. Þær áttu að sjálfsögðu að vera fleiri en það vildi svo til að við ákváðum að koma til Brussel á nákvæmlega sama tíma og ný kórónaveira ákvað að breiðast um heiminn. En heimsóknarferðunum lauk með huggulegri ferð í EFTA hö- fuðstöðvarnar. Þar starfa margir Íslendingar, sem var ga- man að sjá og var okkur sagt frá spennandi starfsmögulei- kum fyrir nýútskrifaða stjórnmálafræðinga hjá EFTA. Sama kvöld skellti hópurinn sér í karaoke sem var mikið fjör. Við fengum stórt herbergi með biluðu loftræstikerfi og fjöldann allan af lögum og bjór. Þar sem NATO hafði afbókað var ek- kert annað í stöðunni en að njóta frídags í Brussel og aldrei hefði mér dottið í hug að það yrði hápunktur ferðarinnar er við gengum fyrir aftan Gretu Thunberg í gegnum Brussel til þess að mótmæla aðgerðaleysi stjórnvalda við loftslags- vandanum. Greta hafði nefnilega einnig gert sér ferð til Brussel til þess að hitta Ursulu von der Leyen, forseta Fram- kvæmdastjórnar ESB. En á meðan stórkonurnar funduðu fór hópurinn sæll á stað þar sem nær hundrað tegundir af eðal Belgíubjór stóð okkur til boða og enduðum við kvöldið á dans og jazz undir kvöldhimni þeirrar fögru Brussel borgar sem tók svo vel á móti okkur.

x

Íslenska leiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.