Íslenska leiðin - 01.11.2020, Page 44

Íslenska leiðin - 01.11.2020, Page 44
Hvernig er daglegt líf fréttamanns? „Það er mjög misjafnt eftir því hvaða verkefnum hann sinnir. Svona „basic“ skipting er innlent – erlent. Svo erum við líka með fréttamenn sem eru úti á landi og við erum með frétta- menn sem að sinna fréttaöflun inn á fréttastofunni, eru mest að skrifa á vefinn og fyrir stuttu fréttirnar í útvarpinu og þeir eru eiginlega bundnir við sinn vinnustað allan daginn sem og erlendu fréttamennirnir“ segir Bogi. Hann bendir á að frét- tastofa Ríkisútvarpsins sé opin allan sólarhringinn og þar af leiðandi þarf að sinna fréttaflutningi á næturnar líka. „Vinnan er mjög ólík hvað þetta ytra skipulag varðar. Vinnan hins vegar í sjálfu sér er í eðli sínu hin sama. Að afla upplýsinga, sannreyna þær og koma þeim síðan í eitthvert svona skipu- lagt, vitrænt form til þeirra sem við þjónum. Hvort sem það er í útvarpi, sjónvarpi eða á vefnum. Þannig að þetta er í eðli sínu fréttamennska og við verðum náttúrulega að hafa góð tengsl, við verðum að fylgjast mjög vel með, það verður að vera gott skipulag og fólk sjálft verður að vera vel skipulagt í sinni vinnu því það eru tímamörk. Þú verður að vera tilbúinn áður en að klukkan verður átta eða tólf eða sjö.“ Hvernig er það að flytja fréttir um stjórnmál í samanburði við önnur málefni? „Já, það er náttúrulega munur á milli. Það er allt annað mál að flytja fréttir af stjórnmálum en slysum. Stjórnmál eru hins vegar stór hluti af því sem að við erum að fjalla um og þá er náttúrulega spurning hvernig þú skilgreinir stjórnmál“ segir Bogi. Hann segir það einnig skipta máli hvort stjórnmál séu skilgreint þröngt t.d sem borgarstjórn eða bæjarstjórn, þing, formlega stjórnmálaflokka og þess háttar eða hvort skilgrei- ningin sé víðtækari og nái yfir kjaramál, verkalýðsbaráttu og annað slíkt. Jafnvel þó það sé aðeins litið á stjórnmál sem framboð og þingstörf er það samt sem áður verulega stór partur af vinnu fréttamanna. „Það eru oft erfiðar vaktir, sér- staklega þegar þingið situr lon og don fyrir jól og við þinglok og annað. En eðli fréttamennskunar gagnvart stjórnmálum og gagnvart öðru er eins. Við erum á höttunum á eftir upp- lýsingum sem að við teljum að eigi erindi til almennings.“ Í því samhengi bendir Bogi á að hlutverk Ríkisútvarpsins sé töluvert frábrugðið öðrum fjölmiðlum hér á landi. „Við skil- greinum Ríkisútvarpið sem almannaþjónustumiðil sem er í eigu almennings og eins og allir aðrir miðlar þá þjónum við eigendum okkar en eigendur okkar eru almenningur. Við tel- jum okkur óháð öllum stjórnmálaöflum, viðskiptaöflum eða hreyfingum sem berjast fyrir einu eða öðru, hvort sem að við förum í ESB eða erum á móti því. Við tökum enga afstöðu. Við eigum að vera fulltrúi alls almennings. Öfugt við aðra miðla þá er skylduáskrift að Ríkisútvarpinu, það er ekki hægt að se- gja Ríkisútvarpinu upp. Ef að þú ert óánægður með leiðarann í Mogganum eða óánægður með einhverja stefnu sem að áskriftarmiðlar eru að taka þá geturðu sagt þeim upp. Það út af fyrir sig gefur þeim miðlum umboð til að hafa og taka afstöðu vegna þess að fólk getur af fúsum og frjálsum vilja, ef að það er óánægt, bara sagt „nei takk.“ Það er ekki hægt í Ríkisútvarpinu. Þess vegna getum við ekki haft neina leiðara. Við getum ekki haft það að stefnu að berjast fyrir einhverjum breytingum á samfélaginu eða berjast gegn breytingum á samfélaginu. Við verðum að vera eins hlutlæg og hlutlaus í okkar fréttamati og nokkur kostur er.“ Að hverju þarf að gæta þegar fjallað er um stjórnmál? Bogi segir það einna mikilvægast að gæta að því að öll lög- mæt sjónarmið komi fram. Með lögmætum sjónarmiðum á hann við að útiloka þurfi sjónarmið sem brjóta á landslögum sem og rasisma og annað slíkt. Hann segir það einnig skyldu Ríkisútvarpsins að sjá til þess að formenn allra stjórnmála- flokka sem eiga fulltrúa á þingi fái að koma sínum málum og stefnum á framfæri. Annað mikilvægt verkefni er að meta hvaða málefni teljist fréttnæm. Sumir eru á þeirri skoðun að 44

x

Íslenska leiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.