Íslenska leiðin - 01.11.2020, Síða 52

Íslenska leiðin - 01.11.2020, Síða 52
52 staðsettir erlendis til að huga að heim- för. Foreldrar mínir voru þá komnir með verulegar áhyggjur og vildu að ég tæki næsta flug heim sem var áætlað tvei- mur dögum seinna. Það var ótrúlega erfitt að sætta sig við það að þurfa skyndilega að fara heim en ég vissi þó að það væri skynsamlegast. Síðustu tveimur dögunum eyddi ég með vi- num mínum, við löbbuðum um skólas- væðið, elduðum saman og héldum lítið kveðjupartý. Þó svo að dvölin mín á Írlandi væri helmingi styttri en hún átti upprunalega vera var þetta ótrúlega skemmtileg lífsreynsla. Ég mæli eind- regið með því að fara í skiptinám, þú kynnist fólki frá öllum heimshornum og menningarheimum. Það gæti verið er- fitt að aðlagast í fyrstu en reynslan og upplifunin mun ávallt vera þess virði. Maður áttar sig líka betur á því hvað maður kann að meta heima og hvers maður saknar. Ég enda hér með hér með þessa grein á fyrstu og vonandi einu tilraun minni að limrugerð. SK IP TI N Á M Skiptinám í heimsfaraldri, geri aðrir betur Fór ein í leiðangur í landi Sankti Patreks Kynntist alls kyns fólki Sem mér gaman þótti Dvölin var jú dásamleg, Far þú ef þú getur Oddur Þórðarson Ekki þannig séð Fæst sem við gerum er skemmtilegt. Það er ekki skemmtilegt að keyra í vinn- una, ákveða hvað maður á að borða í kvöldmatinn, þrífa baðherbergið eða læra fyrir próf. Það er heldur ekki ga- man að fara í níu tíma langt flug, láta svæfa hundinn sinn eða að reka sig í. Það er heldur ekki gaman að fara í skiptinám – ekki þannig séð. Margir ímynda sér eflaust að fari maður í skiptinám sé maður sífellt á kaffihúsi í þröngri göngugötu, skoðandi söfn eða borðandi á veitingastöðum. Að fara í skiptinám er ekki að fara til útlanda – ekki þannig séð. Fólk í skiptinámi býr bara í útlöndum og gerir sömu hluti- na og heima. Það þvær þvott, kaupir í matinn, hefur áhyggjur af peningum,

x

Íslenska leiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.