Íslenska leiðin - 01.11.2020, Síða 53

Íslenska leiðin - 01.11.2020, Síða 53
53 sefur yfir sig, missir símann sinn í gólfið og borðar Ristorante-pizzur. Að vera í skiptinámi er bara að vera heima hjá sér í útlöndum, það er það sem skip- tinám snýst um. Ég veit ekki hvaða dagur er hjá þér, en hjá mér er 10. mars 2020. Ég er staddur í Southampton á Englandi og ég er hér í skiptinámi. Ég hef verið hérna síðan seint í september og verð þangað til í lok maí. Þeir stjórnmálafræðiáfangar sem ég tek hérna eru ágætir, svona þegar ég mæti að minnsta kosti. Í ei- num þeirra fyrir jól fékk ég frekar háa einkunn en í hinum bara sæmilegar einkunnir. Ég get ómögulega spáð fy- rir um hvernig námsframvindan verður eftir jól, en hún mun að öllum líkindum ekki vera nægilega góð til þess að rata í The Daily Echo, bæjarblaðið sem ég les aldrei. En það kannski breytir ekki öllu, ég á bara að vera að njóta mín hérna, er það ekki? Nei. Alls ekki. Eins og ég sagði þá er það að vera í skiptinámi eins og að vera heima hjá sér nema í útlöndum. Í upphafi tekur maður þó út þriggja vik- na tímabil þar sem maður hagar sér eins og maður sé í útlöndum. Maður fer á söfn og kaffihús og labbar um í frakka með regnhlíf eins og hálfviti. Fólk starir á mann eins og maður sé eitthvað ljóðskáldsskrípi sem villtist til smáborgar á Englandi þar sem ek- kert er um að vera nema bílaumferð og raðir á skyndibitastöðum. Þegar hálfvitatímabilinu lýkur heilsar hvers- dagsleikinn manni eins og hann birtist manni heima á Íslandi. Bónus verður að ASDA eða Tesco og WorldClass úti á Seltjarnarnesi verður að PureGym 24/7 á Northlands Road. Líkt og á Ís- landi sekkur maður inn í óumflýjanle- gan hversdagsleika og þá áttar maður sig á hversu klámvædd hugmyndin um skiptinám er. Innan skamms þarf maður að fara að mæta í tíma, kau- pa í matinn, sendaeinhvern póst á LÍN, mæta á fund með félagi skiptinema, hringja í Tollstjóra af því ilmvatnið sem mamma þín bað þig um að kaupa strandaði einhvers staðar í Keflavík, þvo þvott, þrífa baðherbergið o.s.frv, o.s.frv. Það er ekki sanngjarnt að ég telji bara upp það „slæma“ við að fara í skip- tinám – ekki þannig séð. Fólk talar yfirleitt bara um það góða við að fara í skiptinám, þess vegna er þörf á þes- su sjónarhorni mínu. Það er gaman að kynnast nýju fólki, læra nýtt tungumál, skoða nýja heimshluta og gera ein- hverja aðra menningu en þá íslensku að sinni um hríð. Þrátt fyrir að þurfa að gera ótal hundleiðinlega hluti þá fær maður inná milli að gera eitthvað skemmtilegt, rétt eins og heima. Og ég get sennilega ekki neitað því að það er ögn skemmtilegra að gera leiðinle- ga hluti þegar maður getur verið úti á peysunni í febrúar heldur en heima á Íslandi í frosti og klaka. Punkturinn minn er sá að það er ek- kert gaman að fara í skiptinám – ekki þannig séð. Það á heldur ekki að vera gaman – ekki þannig séð. Skip- tinám á að vera krefjandi, þroskandi, lærdómsríkt og uppbyggjandi rétt eins og háskólanám heima. Það er gaman að hafa yfirstigið þá hindrun sem skip- tinám er. Það er skemmtilegt að geta litið til baka á þau krefjandi verkefni sem maður þurfti að takast á við, nú þegar maður tekist á við þau og það er gaman að geta séð hvernig það þroskaði mann og mótaði. Skiptinám er gott fyrir þig og ef þú hefur ekki fa- rið í skiptinám áður, drífðu þig þá! En ég get lofað því að það verður ekki gaman eða skemmtilegt – ekki þannig séð. SK IP TI N Á M

x

Íslenska leiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.