Íslenska leiðin - 01.05.2022, Page 30
30 ÍSLENSKA LEIÐIN 20. ÁRGANGUR 2022
ÍSLENSKA LEIÐIN
Ein lausn sem ég hef heyrt fólk tala um er að
halda dagbók. Ég hef oft prófað að halda dagbók
en ég endist aldrei nema bara í nokkra daga.
Svo eftir það hætti ég að nenna og byrja bara að
“wing-a” það. En ekki núna, núna ætla ég að
leggja mig allan fram! Vandamál kviknar þegar
ákveða á hvernig dagbókin skuli verða sett upp
Hver er besta leiðin? Eru einhverjar dagbækur
sem eru betri en aðrar? Þetta eru spurningar sem
ég hef spurt mig að í gegnum tíðina og þess vegna
brá ég á það ráð að stofna Félag Dagbókaeigenda.
Kannski spyrð þú þig, kæri lesandi, hvernig
stofnar maður eiginlega félag? Hvað er það sem
maður þarf? Óttastu ekki, það er í rauninni heldur
einfalt. Allt sem þú þarft eru eftirfarandi hlutir:
Stofnskrá - Sáttmáli – yfirlýsing
Lög félags, sem segja til um:
Nafn félags
Tilgang/markmið þess
Rétt að aðild
Félagsgjöld
Aðalfund
Breytingar á lögum
Stjórn félags
Gildistíma stjórnar
Þetta gerði ég. Ég stofnaði Félag Dagbókaeigenda,
eða F.D., og að því sem ég best veit er þetta
stærsta, skemmtilegasta og virtasta félag sinnar
tegundar á Íslandi. Það er vissulega ekki mikil
samkeppni en það gerir fullyrðingar mínar ekki
ósannar.
Kæru samnemendur í stjórnmálafræði
Ég hef fengið þann heiður að fá að skrifa grein í blað
stjórnmálafræðinema. Fyrir það er ég mjög þakklátur. Hins vegar
á ég við smá vandamál að stríða sem að sumir kannski kannast við.
Ég fresta hlutunum fram að allra síðustu stundu. [insert fyndin
setning]. Þetta er galli sem hefur valdið mér óþægindum í gegnum
tíðina og langar mig að hætta þessu. Ég veit ekki hvort að þú, kæri
lesandi, tengir við þessa frestunaráráttu mína en ef svo er þá getur
þessi grein mögulega hjálpað okkur báðum.
Elías Snær
Önnuson Torfason,
stjórnmálafræðinemi