Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 45

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 45
45ÍSLENSKA LEIÐIN TÍMARIT STJÓRNMÁLAFRÆÐINEMA ÍSLENSKA LEIÐIN Stefán Örvar Sigmundsson, stjórnmálafræðinemi að menn færu heim að hvíla sig eftir talningu. Má túlka orð hans svo að lögbrot væru venjubundin á starfstíð hans í yfirkjörstjórn. Álit meirihluta kjörbréfanefndar Við mat sitt á lögmæti kosninganna studdist meirihluti kjörbréfanefndar einna helst við XXII. kafla laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis, þá sérstaklega 3. mgr. 120. gr. Sú málsgrein kveður í meginatriðum á um að hafna beri kosningu þingmanns eða framboðslista ef gallar eru á kosningu sem ætla má að hafi áhrif á úrslitin. Ályktaði meirihluti kjörbréfanefndar svo að ekki væru augljós ummerki þess að úrslitum kosningarinnar hafi verið breytt þó svo að annmarkar hafi verið á framkvæmd talninganna og sumir þeirra jafnvel alvarlegir. Tók meirihlutinn svör yfirkjörstjórnar og hótelstarfsfólksins góð og gild þó svo að ekki væri hægt að sannreyna þau með neinum sjálfstæðum hætti. Var því álit meirihlutans að seinni talningin skyldi standa. Álit minnihluta kjörbréfanefndar Björn Leví Gunnarsson (P), Svandís Svavarsdóttir (V) og Þórunn Sveinbjarnardóttir (S) skiluðu öll eigin áliti en rauði þráðurinn er sá að kosninguna beri að ógilda þó svo ekki sjáist beinar vísbendingar um að átt hafi verið við úrslitin. Meginrökin eru að ekki er hægt að tryggja, miðað við alla þá annmarka sem voru á framkvæmdinni, að úrslitin endurspegli vilja kjósenda. Seinni úrslitin eru ekki áreiðanlegri en þau fyrri og ef talið yrði í þriðja sinn myndu þau úrslit ekki vera áreiðanlegri heldur vegna alls þess sem á undan er gengið. Lög voru brotin, alvarlegir annmarkar komu í ljós og traust almennings á ferlinu er laskað. Minnihlutinn mat það svo að ekki væri nóg að leiða líkur að því að úrslitin væru rétt heldur þyrfti að vera hægt að sannreyna það. Stjórnlagaþingið 2010 Áhugavert er að bera saman framkvæmdina í Norðvesturkjördæmi og kosninguna til stjórnlagaþings árið 2010. Í þeirri kosningu var fyrst og fremst um að ræða formgalla á hönnun kjörseðla, kjörkassa og kjörklefa. Sérlög giltu að vísu um þá kosningu og kom það í hlut Hæstaréttar Íslands að skera úr um gildi hennar en ekki Alþingis eins og í tilfelli alþingiskosninga. Niðurstaða Hæstaréttar var sú að formgallarnir gætu hafa haft áhrif á úrslit kosningarinnar og því bæri að ógilda hana þó svo að ekki verði sýnt með ótvíræðum hætti að slíkt hafi gerst. Fékk því trúverðugleiki kosningarinnar að njóta vafans. Nýja stjórnarskráin Núverandi fyrirkomulag gerir ráð fyrir því að þeir frambjóðendur sem landskjörstjórn veitir kjörbréf taki sjálfir þátt í að úrskurða um gildi þeirra. Það verður að teljast tímaskekkja að menn séu dómarar í eigin máli. Stjórnarskrá Íslands frá 1944 var hugsuð til bráðabirgða uns lýðveldið væri komið í fastar skorður. Sú vinna sem hófst 2011 við endurskoðun hennar leiddi af sér frumvarp til stjórnskipunarlaga sem hefði, meðal annarra réttarbóta, fært úrskurðarvaldið frá kjörbréfshöfum til óháðra aðila. Það er löngu orðið tímabært að við segjum skilið við fúsk fortíðarinnar og tökum upp stjórnskipan sem sæmir 21. öldinni.

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.