Heima er bezt - 01.01.2005, Page 5
Með köttinn Samúel
Brand Svartsson, 7 ára.
Rœtt við
r
Sigmar Olaf Maríusson,
gullsmið
Flestir Reykvíkingar kannast við Sigrnar, sem
lengi rak verslun og gullsmíðaverkstœðið Mód-
elskartgripi á Hverfisgötu 16A. Það eru
ekki nema nokkur ár síðan hann flutti
starfsemi sína í Kópavog og í plássið á
Hverfisgötunni er komið hið vinsœla
kaffihús „Grái kötturinn. ” Enþað eru
sennilega fœrri sem vita um slysið sem
Sigmar varð fyrir þegar hann var korn-
ungur maður, sem breytti flestu í lífi hans.
Freyja Jónsdóttir:
Sigmar Ólafur Maríusson er fæddur 8. mars 1935 í
Hvammi í Þistilfirði, N-Þingeyjarsýslu.
Foreldrar hans voru Maríus Jósafatsson, bóndi, fæddur
10. ágúst 1910 og kona hans Sigrún Aðalsteinsdóttir,
fædd 6. mars 1906. Harðduglegt bændafólk sem bjó góðu
búi i einu harðbýlasta héraði landsins. Húsið sem Sigmar
fæddist í var alltaf kallað Steinhúsið. Það var reisulegt
hús byggt úr steini eins og nafnið ber með sér. í
Steinhúsinu áttu heinra tvær ijölskyldur. Húsið var
byggt fyrir 1930 úr lélegri steypu og lítið járnbentri. í
fyrstu var þar ekkert rennandi vatn en því var síðan dælt
með handdælu úr brunni ekki langt frá. Tvær eldavélar
voru í kjallaranum og það var eina upphitunin. Það
hefur alltaf verið margbýli í
Hvanrmi, venjulega Qórar til fimm
fjölskyldur enda fleiri íbúðarhús í
túninu en Steinhúsið sjálft, en í því
áttu venjulega tvær fjölskyldur
heima.
I Hvammi var aðallega búið með
sauðfé, kýr voru aðeins til að hafa
mjólk fyrir heimilin. Þó stutt væri að
sjónum voru ekki stundaðir sjóróðrar frá Hvammi þó að
bændur þar ættu venjulega hlut í báti. Farið var á sjó til
að fiska fyrir heimilin og fiskurinn, sem ekki var notaður
nýr, var saltaður og hertur. Stundum var farið í vegavinnu
tíma og tíma til þess að drýgja tekjurnár.
Forfeður Sigmars eru Suður-Þingeyingar og móðir hans