Heima er bezt - 01.01.2005, Blaðsíða 32
Kviðlingar
kvæðamál
Umsjón: Auðunn Bragi Sveinsson
Vísnaþáttur
Agætu lesendur, gleðilegt ár og þökk fyrir þau liðnu.
Vísnagerð er held ég á uppleið. Vísnasöfn eru gefin út
og seljast bærilega. Um liðin jól fékk ég í hendur eitt
slíkt, Er það „101 vísnaþáttur úr DV - og tveir að auki”,
fyrri hluti. Framhald kemur næsta ár, að ætla má. Ég hef
skemmt mér nokkuð við að lesa þessa bók. Auk hefð-
bundins vísnakveðskapar er þarna að finna allmargar
limrur. Sjálfur á ég þarna tvær vísur. Mér finnst rétt að
benda fólki á þetta rit. Það var ekki auglýst jafn geypilega
og sum skáldritin fyrir síðustu jól, er gleymast furðu
fljótt. Snjöll vísa lifir lengst allra bókmenntaverka. í
henni felst oft býsna mikið. Stephan G. Stephansson orti:
Hiustir þú og sé þér sögð
samankveðna bagan,
þér er upp í lófa lögð:
landið, þjóöin, sagan,
Og Stephan G. yrkir um ljóðagerðina, sem fylgt hefur
Islendingum frá fyrstu tíð:
Undarleg er íslensk þjóð!
Allt, sem hefur lifað,
hugsun sína og hag í Ijóð
hefur hún sett og skrifað.
Og fleiri hafa ort um þessa áráttu, ef svo má nefna,
vísna- og ljóðagerðina. Steingrímur Baldvinsson, bóndi í
Nesi í Aðaldal, orti þannig um alþýðustökuna:
Allt, sem þjóðin átti og naut,
allt sem hana dreymir,
allt sem hún þráði og aldrei hlaut
alþýðustakan geymir.
Sveinn Hannesson frá Elivogum er einn þeirra sem
mærir stökuna. Hann telur hana lifa lengur en flest ann-
að, þola meira. Hann segir það svo ógleymanlega:
Flest þó moli tímans tönn,
trausta boli hylji,
stakan þolir frost ogfönn,
flóðaskol og bylji.
Um liðin jól hefur margt verið sagt um guðstrúna, og
eru þar margir í samhljóða kór, ef svo má segja. En sumir
eru ekki það, sem kallað er trúræknir. Stephan G taldi sig
trúlausan, og gerði grein fyrir því í eftirfarandi stöku:
Hvaða trú ég eigi að?
- Enga, mun ég gegna.
Hvílík glöp! Nei, gott erþað
guðrækninnar vegna!
Um trúleysi sitt var Stephan berorður að marki:
/ œsku tók ég eins og barn
alheimskunnar trúna,
Með aldrinum varð ég efagjarn;
engu trúi ég núna.
Mér finnst best að ljúka þessum inngangi vísnaþáttar-
ins með vísu eftir Stephan G. Stephansson (1853-1927):
32 Heima er bezt