Heima er bezt - 01.01.2005, Blaðsíða 26
Kanntu sögur af fuglum? Heima er bezt hefur áhuga á að fá að
birta frásagnir affuglum, hegðun þeirra og háttum, sem fólk
hefur veitt athygli. Greinarnar mega vera handskrifaðar eða
vélritaðar, sé þess óskað. Einnig má senda þœr á netfang
blaðsins heimaerbezt@simnet.is. Póstfang okkar er:
Heima er bezt, Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík.
Freyja Jónsdóttir:
Hrafninn eða krummi eins og
hann er oft kallaður, er
smæstur norrænna spör-
fugla og er af hröfnungaætt,
sem er útbreidd víðsvegar um heim-
inn. Stundum koma frændur hans
hingað til lands eins og krákan sem
mikið er af í Færeyjum. Hér hafa
einnig sést aðrar tegundir af hröfn-
ungum eins og bláhrafn og grákráka
en þessir fuglar hafa ekki ílengst hér.
Hrafninn er staðfugl þ.e. er á landinu
allan ársins hring. Fullorðinn hrafn
er kolsvartur á lit en í sól eða björtu
veðri slær á hann örlítilli blárri
slikju. Hann er nokkuð stórir fugl og
er nefið eitt af aðaleinkennum; stórt,
þunnt og framan til íbogið. Vængir
eru langir, einnig stélið sem er boga-
dregið fyrir endann. Hrafninn hefur
miðlungs háar fætur með sterkum
bognum klóm. Nef og fætur eru
svört. Fullorðinn hrafn er um 65 sm
á lengd, þyngd frá 1 kg til 1 1/2 kg.
Til eru hvítir hrafnar en þeir eru fá-
séðir og er máltækið „ Sjaldséðir
hvítir hrafnar,“ stundum notað við ó-
vænta gestakomu. Hjá sumum ein-
staklingum er liturinn á ijöðrunum
brúnleitur. Kven- og karlfuglar eru
eins á litin.
Hrafninn er alæta og etur allt, bæði
úr jurta- og dýraríkinu. í útlöndum
etur hann kornið á ökrum og er af
þeim sökum ekki í neinu uppáhaldi
akurbænda. Hann er líka sólgin í
kartöflur, grænmeti og ávexti og á
það til að fara í garða sem nýlega er
búið að setja niður í og róta upp kart-
öflunum. Þegar líða tekur á sumarið
má oft sjá hrafnaíjölskyldur í berja-
mó. Þó að krummi sé bæði ávaxta-
og grænmetisæta þykir honum allt
sem er kjötkyns betra, einnig hefur.
hann góða list á fiski. Hann setur það
ekki fyrir sig þó að farið sé að slá í
fæðuna og hámar í sig sjórekna
fiska, dauða fugla og aðrar sjálfdauð-
ar skepnur; hann er eggjaræningi og
skæður í varplöndum á vorin, vegna
þess er mörgum illa við hann. Hann á
það til að leggjast á nýfædd lömb og
önnur dýr sem eru veikburða eða ó-
sjálfbjarga. Hatur hefur hrafninn
hlotið fyrir að ráðast á ósjálfbjarga
dýr og kroppa úr þeim augun. Hon-
um þykir skelfiskur góður, stundum
26 Heima er bezt