Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.2005, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.01.2005, Blaðsíða 10
Við hjá Heima er bezt hleypum nú af stokkunum nýj- um þætti, er hlotið hefur heitió „Heilsupistillinn “, og er hugmyndin að hann verði sem oftast í blaðinu, allt frá því að vera í hverju hefti upp í að vera í öðru og þriðja hverju. Mun þaðfara nokkuð eftir fyrirspurnum íþáttinn, því við höfum hugsað hann þannig að les- endur geti varpað fram ýmsum spurningum, sem þá fysir aðfá svör við varðandi heilsufar ogýmis nátt- úrulyf og bætiefni. Til þess að svara þeim spurningum sem hér munu birtast, höfum við fengið Ævar Jóhannesson, sem vart þarf að kynna, því svo kunnur er hann af störfum sínum og áhuga á ýmsum náttúrulyfjum. Er hann þó líklega einna þekktasturfyrir lúpínuseyðið sitt, sem hann hefur framleitt og veitt krabbameinssjúku fólki með góðum árangri, endurgjaldslaust, á annan ára- tug. Ævar er hafsjór affróðleik um margvísleg heilsu- farsleg efni og þvkir okkur verulegur akkur í að fá hann til samstarfs við okkur hér hjá Heima er bezt, og hvetjum við lesendur blaðsins eindregið til þess að nýta sér þetta tækifœri til aðfá upplýsingar og fræð- ast um ýmislegt sem betur máfara ífæðuvali og bæti- efnum, til betri heilsu. Ekki er nauðsynlegt að nöfn fyrirspyrjenda birtist með spurningunum í blaðinu, en við viljum þó að fólk láti nöfn sín fylgja með til blaðsins. Munum við láta nægja að birta bara fornafn viðkomandi. Senda má spurn- ingarnar með bréfi, símleiðis eða tölvupósti, allt eftir óskum, en netfang HEB er heimaerbezt@simnet.is Til þess að byrja þáttinn þá fengum við tvo aðila, Bjarna og Sigríði, til þess að varpafram fyrstu spurn- ingunum um efni, sem þau hefðu áhuga á að fá svör við og lögðu þau eftirfarandi þrjár spurningarfyrir Ævar, sem birtir svör sín hér á eftir hverrifyrir sig: Jíeiísu- pistillinn „SAzð er mín sÁoðun . . . u C-vítamín og kvefpestir Spurning: Er líklegt að c-vítamín geti unnið gegn kvefpestum og er eitthvað til í því sem sagt er um að það geti stuðlað að myndun nýrnasteina, ef það er tekið í einhverju talsverðu magni? Svar: Astæða þess að margir hafa áratugum saman notað c- vítamín til þess að verjast kvefi og fleiri umgangspestum, er sennilega sú að ekki ómerkari vísindamaður en dr. Lin- us Pauling, sem tvisvar hefur fengið Nóbelsverðlaun, fór að skrifa greinar um gagnsemi c-vítamíns við kvefi og fleiri umgangspestum. Hann ráðlagði að nota miklu stærri skammta en áður voru notaðir og taldi að það læknaði kvef og inflúensu næstum samstundis og gagnaði jafnvel krabbameinssjúklingum. Bók Linus Paulings um þetta efni heitir: “C-vitamin and the common cold”, og varð hún heimsfræg næstum samstundis. Mikið hefur verið skrifað og rætt um hvort hægt sé að verjast því að fá kvefpestir og inflúensu með því að nota stóra skammta af c-vítamíni, þegar slíkar umgangspestir Ævar Jóhannesson svarar spurningum lesenda um heilsufarsleg efni 10 Heima er hezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.