Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.2005, Blaðsíða 37

Heima er bezt - 01.01.2005, Blaðsíða 37
Jón R. Hjálmarsson: Húnakonungur Afjórðu öld eftir Krist voru norræn- ar og aðrar germanskar þjóðir mjög á faraldsfæti í Evrópu og víða mikil ókyrrð við landamæri hins forna Rómaveldis. En svo gerðist það að Húnar, áður óþekkt Asíuþjóð, réðist inn í álf- una úr austri og raskaði því litla jafnvægi sem eftir var með grimmilegum hernaði og ránsskap. Húnar þessir voru mongólskir að uppruna og áttu í öndverðu heima á gresjum Mið-Asíu, þar sem þeir lifðu sem hirðingjar. Snemma tóku þeir að herja á nágranna sína og sóttu þá mjög inn í Kína. Er talið að Kínverjar hafi í öndverðu byrjað að reisa múrinn mikla á norðurlandamærunum til að verjast þeim. Síðar tóku þeir að leita vestur á bóginn og fóru lengi vel hægt yfir. En upp úr miðri fjórðu öld brutust þeir vestur yfir Volgu og tóku að hrella þjóðir Evrópu. Á sléttunum norðan Svartahafsins urðu Austgot- ar á vegi þeirra, en þeir voru norræn þjóðflutningaþjóð, sem þarna hafði stofnað myndarlegt ríki. Þeir voru gjörsigraðir í grimmilegum bardögum og þeir sem eftir iifðu voru sumir kúgaðir til undirgefni, en aðrir flýðu til Qalla suður á Krímskaga. Þar héldu þeir velli sem sér- stakur þjóðflokkur fram á 18. öld, þegar Katrín mikla hrakti þá á brott og týndust þeir eftir það í þjóðahafi rúss- neska keisaradæmisins. Húnar héldu áfram til vesturs og árið 375 fóru þeir yfir Donfljótið. Þar urðu Vestgotar á vegi þeirra, en þeir voru önnur germönsk þjóð að norðan. Þeir létu brátt undan síga og björguðu sér með því að flýja suður yfir Dóná á náðir Rómverja, þar sem þeir fengu landvistarleyfi. Hún- ar dreifðu sér síðan um þau lönd sem nú heita Ungverja- land og Rúmenía og víðar og lifðu áfram sem hirðingjar og stríðsmenn. Þeir stunduðu mjög að gera skyndiárásir á nágranna sína og fengu Rómverjar sem og margar germ- anskar og slavneskar þjóðir mjög að kenna á þeim. Lengi vel höfðu Húnar enga sameiginlega yfirstjórn, heldur voru þeir dreifðir í smáhópa sem hver hafði höfðingja fyrir sig. En með langvarandi hernaði og ránsskap, safnaðist að þeim mikill auður og auði fylgja völd. Snemma á 5. öld náði öflugasti höfðinginn yfirráðum yfir öllum hinum og gerðist konungur. Upp úr því tóku þessir stríðs- menn að sækja með vaxandi þunga inn á rómverskt land. Keisarinn í Konstantínópel tók þá til bragðs að borga þeim árlega miklar fjárfúlgur fyrir að láta af þessum á- rásum. En Húnar létu sér ekki segjast og fengu með hern- aði og hótunum þennan skatt keisarans sífellt hækkaðan. Þessar fjárfúlgur ásamt ránsfeng úr öllum áttum lögðu grunn að miklu ríkidæmi Húnakonungs, svo að brátt urðu allir að lúta boðum hans og bönnum. Og þó þetta ríki væri lítt skipulegt, þá varð það með tímanum svo víðlent að það náði frá gresjum Suður-Rússlands vestur að Rín og frá Alpafjöllum í suðri að Norðursjó. Hvarvetna þar sem Húnar fóru um vöktu þeir ógn of skelfingu sakir grimmdar sinnar. Þeir voru mjög mongólskir í útliti, blakkir á hörund og litlir vexti, en herðabreiðir og afar sterklega byggðir. Kinnbein þeirra voru útstæð og augun lágu djúpt. Flestir voru þeir skegg- lausir, því að venja þeirra var að flá skeggstæði ungra drengja til að hindra að þeim sprytti síðar grön. Kjálkar þeirra voru því alsettir örum, sem mjög jók á villimann- legt útlit þeirra. Oftast klæddust þeir kyrtlum úr líni eða þá að þeir notuðu skinnfatnað og báru efnismiklar loð- húfur á höfði. Sem hirðingjar reikuðu þeir um með hjarð- ir af sauðfé, nautgripum og hrossum í sífelldri leit að góðum bithögum og vatni. Lengi vel höfðu þeir ekki fasta búsetu, en bjuggu í tjöldum. Mest lifðu þeir á kjöti og mjólkurmat, en skeyttu lítt um brauð og annað korn- meti. Hestamenn voru þeir ágætir og undu sér best í hnakknum. Þeir börðust, versluðu, mötuðust og héldu ráðstefnur á hestbaki og sváfu jafnvel sitjandi í hnakkn- Heima er bezt 37

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.