Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.2005, Blaðsíða 39

Heima er bezt - 01.01.2005, Blaðsíða 39
Örnólfur Thorlacius -•V Arið 1983 vakti breskur taugalífeðlisfræðingur, Giles Brindley, mikla at- hygli á ráðstefnu þvagfæra- lækna í Las Vegas, þegar hann opin- beraði ráðstefnugestum rismikinn lim sinn eftir að hann hafði sprautað inn í hann með holnál fenoxíbensamíni, lyfi, sem dregur úr óhóflega háum blóðþrýstingi. Það virtist mótsagnakennt að lyf sem lækkar blóðþrýsting skuli hækka hann í reðri manns, en Brindley hélt tilraunum sínum ótrauður áfram og uppgötvaði að annað lyf, papaverín, tryggir stöðugt ris í ijórar klukku- stundir. Þeir sem treysta sér til að stinga nál í lim sinn, nota þetta lyf enn, og sagt er að karlleikarar í klám- myndum haldi reisn með hjálp þess. Rissprautur Brindleys vöktu athygli lyfjafyrirtækja, og eitt þeirra, Pharmacia & Upjohn, setti árið 1995 á markað Caverject, sem var fyrsta rislyfið er hlaut náð fyrir augum bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlits- ins. Að sjálfsögðu voru fæstir svo að- framkomnir að þeir legðu í að sprauta lyfinu inn í rót limsins, en líka er hægt að smeygja pillu af því inn í þvagrásina og bíða eítir að það berist inn eftir limnum til nálægra veija og hafi tilætluð áhrif. Óvæntar aukaverkanir Seint á níunda áratug 20. aldar voru vísindamenn á rannsóknastofu Pfizer- lyfjafyrirtækisins í Kent á Englandi að vinna að þróun nýrra lyfja við hjartaöng (angina). Þeir leituðu að efni til að hindra virkni ensímsins fos- fódíesterasa, sem grípur inn í flókið ferli og þrengir æðar. Með því að AÐ REISA LINA LIMI „Foryour first honeymoon you go to Niagara. For the next it is Viagra. (Readers Digest.^ “ breyta þekktu lyfi, zaprinast, fengu þeir fram nýtt efni, sem þeir kölluðu sildenafil, og bundu vonir við sem hjartalyf. Þegar staðfest var að lyfið væri ó- skaðlegt dýrum hófust tilraunir á mönnum í júlí 1991, þar sem leitað var að aukaverkunum. Þær létu ekki á sér standa - eða gerðu kannski einmitt það! Karlmönnum, sem lyfið tóku, reis hressilega hold, og höfðu þó sunrir ekki náð limnum upp árum saman. Lyfjafræðingar Pfizers ventu nú sínu kvæði í kross og fóru að þróa sildenafil sem rislyf. Það var prófað á karlmönnum í Bretlandi, Frakklandi og Svíþjóð. Nokkrir kvörtuðu um höfuðverk eða meltingartruflanir en flestir voru sáttir við lyfið, og það svo, að margir þátttakendur í tilraun- inni voru tregir til að láta af hendi ó- notaðar pillur. Eftirsóttasta lyf allra tíma Lyfið var - sem salt af sítrónusýru, sildenafilsítrat - sett á markað undir heitinu Viagra í Bandaríkjunum 1998. Fyrstu vikuna voru fleiri en 35.000 lyfseðlar afgreiddir, eftir þrjár vikur voru þeir orðnir 300.000, og fyrir lok ársins var fimm milljóna markinu náð. Þetta er örasta sala sem dæmi eru um í sögu apótekanna. Þar sem viagra verkar á efnaskipti frumnanna, hefur það áhrif óháð því hver rót vandans er, hvort sem hennar er að leita í streitu, þunglyndi, sjúk- dómum á borð við sykursýki ellegar hún verður rakin til blöðruhálsaðgerð- ar. Viagrapilla er tekin um klukku- stund áður en kynvirkni á að hefjast, og lyfið hefur svo áhrif í nokkra tíma. Notkun viagra með vissum lyfjum öðrum getur verið varasöm, eins og fyrir er mælt á leiðbeiningum með lyfinu. Nú er ensímið fosfódíesterasi virkt í mörgum hlutum líkama manns. Menn spurðu sig því, hvers vegna lyf, sem vinnur gegn þessu ensimi, hefði eink- um æðavíkkandi áhrif á einum stað, í risvef getnaðarlims. Skýringin er að í líkamanum eru mörg afbrigði af fos- fódíesterasa. Eitt þeirra, fosfódíester- asi-5, er virkt í limnum, og einungis það lamast af viagra. Aðrar gerðir eru ótruflaðar, svo sem fosfódíesterasi-3, sem verkar í hjartanu. Raunar hefiir Heima er bezt 39

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.