Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.2005, Side 8

Heima er bezt - 01.01.2005, Side 8
Eftir að Hverfisgöt- unni var breytt og gerð aó tvístefnu lögðust af sex bílastæði sem voru framan við húsið. Eftir það var erfitt fyrir við- skiptavini, sem á bílum voru, að komast í versl- unina svo að Sigmar á- kvað flytja atvinnu- reksturinn heim í Kópa- voginn árið 1996, enda nóg húsrými og gott að leggja bíl. Þegar komið er að húsinu er upphit- að bílaplan við það, sem Stefán frá Möðrudal, er þægilegt þegar snjór listmálari. og hálka er um allar göt- ur. Sigmar segir að það sé gott að vera með vinnuaðstöð- una heima og hefur alltaf nóg að gera. Þegar komið er inn á vinnustofu Módelskartgripa má segja að á móti manni taki listmunasýning ásamt heimil- iskettinum góða, Samúel Brandi Svartssyni, sem er nokk- uð vel í holdum með glansandi feld. Samúel Brandur er mikill fagurkeri og borðar af sérsmíðaðri silfurskál, sem fóstri hans hannaði og smíðaði handa honum. Kötturinn á aðra skál inni í íbúðinni og er líklega eini köttur á landinu sem notar matarílát sérsmíðuð úr silfri. Mikið er af glæsilegum munum á vinnustofunni, má þar nefna silfurslegin drykkjarhorn, sum þeirra af ís- lenskum kúm en önnur eru innflutt. Sigmar segir að það sé farið að minnka um kýr- hom en kúabændur eru að reyna að rækta sem mest af kollóttum nautgripum. Sum hornin koma um langan veg eins og alla leið frá Afríku. Sigmar skírir verkin þegar hann byrjar á þeim, þannig fær hann innblástur og eitt verk getur leitt af sér hug- myndir að fleiri verkum. Það er algengt að pantaðir séu hjá Sigmari munir í stórafmæli eða aðrar stórar gjafir. Þá getur hann leyft hugmyndunum að streyma fram. Hann dregur fram ægifagra rjóma- skeið úr silfri sem auðsýnilega hefur verið lögð mikil vinna í, því að allt skaftið er munstrað; skeiðin væri rausnarleg brúðkaupsgjöf. Fjöll, eyjar, hús og mannvirki eru sköpuð úr silfri eða öðrum málmum og sumstaðar er litað gler notað með, eins og Búlandstindur, sem gerður er úr opalgleri og silfri. Alla vega krossar eru uppi í hillum sem hann hefur hannað og smíðað, þeir eru fallegir og mjög fjölbreytilegir. sumir þeirra eru með ís- lenskum steinum úr Glerhallarvík. Hann hefur smíðað mikið af táknuni fyrir félög og stórfyrirtæki og má þar nefna Osta- og smjör- söluna, en fyrir þá var smíðað úr silfri osta- sneið og skeri. Þegar blaðamaður kom á gull- smíðaverkstæðið var verið að smíða Heimaey úr silfri, sem fest verður á slípað blágrýti. Sigmar hefur veri þátttakandi í mörgum sýningum: Sýning FÍG Listmunahúsinu 1982, Kjarvalsstöðum „Pásk- ar“ 1983, sýning FÍG Kjarvalsstöðum 1987 og í Gerðarsafni í Kópa- vogi á síðastliðnu ári. það líklega verið kær- komin tilbreyting frá listmálarastörfunum. Stefán frá Möðrudal þarf vart að kynna fyrir Islendingum en hann var nánast þjóðsagna- persóna. Stefán var af- kastamikill málari og fékk gott orð hjá list- fræðingum. í verkum sínum fór hann ekki troðnar slóðir og hafði óskaplegt dálæti á fjall- inu Herðubreið. Gullsmiðir sem lærðu hjá Sigmari eru þessir: Ingimar Örn Davíðs- son, Stefán Bogi Stef- ánsson, Berlaug Selma Sigmarsdóttir, Pálmi Dagur Jónsson, Sigurð- ur H. Þórólfsson og Halla Boga. Hrafn A. Harðarson, for- stöðumaður Bókasafns Kópa- vogs, og Sigmar, með Ljóð- stafinn, sem sá síðarnefndi smíðaði skreytinguna á, en stafurinn var í eigu Jóns úr Vör, og stendur á honum ritað með rúnum: “Ljóðstafur Jóns úr Vör”. Listaverkið Blár logi, smíðað í maí 2003. Jóhannes guðspjallamað- ur. Silfurmynd. Ljóðstafurinn varð- veittur í Bókasafninu Ljóðstafur Jóns úr Vör nefnist ljóðasamkeppni sem Lista- og menningarráð Kópavogs stóð nýverid fvrir i annað sinn en hugmyndin af keppninni í.vdd- ist hjá félögum úr Ritlistarhópi Kópavogs. Yfir 300 Ikxl bárust i kcppniiu F.ttir verlaunaafhendinguna vaknaði sú sptinting livað ætti að gcra við stafinn, sem er mikil ger- semi, þegar slik staða kemur upp. Hrafn A. Harðarson, forstöðu- maður Bókasafns Kópavogs, hef- ur tekið ákvörðun um að stafúr- inn verði gcymdur í bókasafninu 8 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.