Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.2005, Side 15

Heima er bezt - 01.01.2005, Side 15
Ólöf Rún Skúladóttir: Garðar og eiginkona hans Dagný Ellingsen. Bæjarstjórinn sem ora ser suour a á, í f)6 oamn Hann fékk bæði að vera síðasti sveitarstjórinn ogfyrsti bœjarstjórinn í Garðabæ á áttunda áratugnum. Nú selur hann Islandsferðir frá Norðurlöndunum þótt hann búi nánast í sveit á Spáni og rækti ásamt konu sinni, sítrónur, epli, fikjur og ólífur í bakgarðinum. Hugðist alltaf halda í víking en fór utan um áratug seinna en hann ætlaði sér. Menn vildu halda í hann í sveitarstjórnarmálunum, en auk þess að vera stjóri í Garðabœ starfaði Garðar Sigurgeirsson fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga ífiimm ár eftir Garðabæjarárin. Þótt aldrei hafi staðið til af hans hálfu að gerast opin- ber starfsmaður, segir hann árin fimm hafa verið lær- dómsrík, ekki síður en sveitar- og bæjarstjóratíðina. Hann segir útþrána hafa blundað í sér og sínu fólki eftir að hann starfaði um tíma í New York með fjölskylduna með í for. Á fertugasta og áttunda aldursári tók hann svo stökkið, sem tilhlaup hófst að tíu árum fyrr. Noregur varð fyrir valinu, enda eiginkona hans, Dagný Ellingsen, hálfnorsk og hafði það sín áhrif. Frá þeim tíma hefur fjölskyldan verið að fikra sig suður á bóginn. Nú, tuttugu árum síðar, eru Garðar og Dagný alflutt til Spánar. Við setjumst niður í sólinni við fal- legt hús þeirra í hlíðinni rúma 17 kílómetra frá Alicante. Litrík blóm og birta. Lítil sundlaug er í garðinum við heimili þeirra hjóna, sem er smekk- legt og rúmgott og eru þau búin að gera miklar endurbætur á húsinu og umhverfi. Ótrúlegt fyrir sólþyrstan íslending að trúa því, en Garðar segir sólarsýk- ina réna þegar menn eru komnir í sól- rík lönd til frambúðar. „Hún er þama ' Heima er bezt 15

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.