Heima er bezt - 01.01.2005, Síða 16

Heima er bezt - 01.01.2005, Síða 16
sólin og það liggur ekkert á, hún er þarna yfirleitt. En ég hef fullan skiln- ing á sólarhungrinu á íslandi, ég var þannig sjálfur, bæði þegar ég bjó á ís- landi og í Noregi.” Hvernig gerðist það að bæjarstjóri í vel stæðu sveitarfélagi hélt til Spánar að rækta sítrónur? „Það er löng saga að segja frá því,“ svarar hann kíminn. „Þegar ég fór frá íslandi 1984 fór ég fyrst einn til Noregs í atvinnuleit, eiginkonan og yngsti sonur okkar af þremur, þá þrettán ára, komu fljótlega á eftir.“ Garðar leigði sér í íyrstu herbergi hjá bakara einum í Osló, las Aftenposten og sótti um lausar stöður. Atvinnuleitin skilaði fljótlega starfi sem yfirmaður íjármála- og reikn- ingsskila hjá Rena Kartonfabrik, sem var í Austurdal, um 170 kílómetrum fyrir norðan Ósló. Þrjú hundruð manns unnu í pappaverksmiðjunni við framleiðslu á pappa og pappaum- búðum, sem notaðar voru fyrir ólík- asta innihald eins og konfekt og ís- lenskan saltfisk. Meira að segja voru framleiddar líkkistur úr pappa hjá fyrirtækinu. Kisturnar þær voru til útflutnings. Verksmiðjan var með dótturfyrir- tæki bæði í Lundúnum og í Seattlc. Erfitt að losna úr stjórnmál- unum Var draumurinn um sveitasetur á Spáni farinn að myndast í huga Garð- ars á meðan hann var bæjarstjóri í Garðabæ? „Nei, það var nú enginn draumur um hús á Spáni en ég var nú ekki bú- inn að vera ýkja mörg ár í Garðabæn- um sem sveitarstjóri og bæjarstjóri, þegar ég ákvað að næsta starf ætti að vera í Noregi. Það var kannski liður í því að færa sig suður á bóginn. Um 1974 var ég mjög á því að láta verða af þessu en samherjar mínir í Garða- bænum lögðu að mér að vera svolítið lengur og það tafði mig um tíu ár!“ Garðar segist vel hafa getað hugsað sér Noreg sem starfsvettvang og upp- runi Dagnýjar og það að hún talaði á- Yngsti sonurinn, Benedikt, var bara 13 ára þegar haldið var út í bláinn. Hér er hann með kœrustu sinni, Manoli, en þau búa á Mallorca. Dagný með íslenskum vinkonum, í gönguferð í Alicante-héraði. gæta norsku og þekkti vel til þar, hafi fallið vel að hans hugmyndum. Vildu þeir ekki halda í þig lengur í stjórnmálunum? Ef einu sinni er byrj- að á þeim vettvangi getur gjaman reynst erfitt að komast út úr þeim geira. „Jú, það var nú það sem ég upp- lifði. Tíu ár, það eru rúm tvö kjör- tímabil og tvennar kosningar, en svo kemur að því að maður segir hingað og ekki lengra. Ef menn vilja hætta í pólitík eru alltaf einhverjir sem leggja að manni að halda áfram og segja það sniðugt, en kannski er það ekki alltaf raunin. Gott getur líka verið að breyta til.” Suðrænir draumar Engu að síður var átak að taka sig upp og kjark þurfti til að flytja til annars lands á miðri starfsævi. „Ég hafði í raun ekki að neinu að ganga ytra þótt ég vissi að uppgangur væri í Noregi á þeim tíma og að auðvelt yrði að fá starf.“ Garðar segir að mun erfiðara væri núna fyrir fólk sem væri að nálgast fimmtugt að endur- taka leikinn. Tímamir hafa breyst mikið síðan. Kalt gat verið í Austur- dalnum og frostið fer þar allt niður í ljörutíu stig að vetrarlagi og sumar- hitinn jafnvel upp í þrjátíu gráður. í hörðu vetrarveðrinu þótti Garðari og Dagnýju konu hans notalegt að fara suður á bóginn um stund og varð Spánn, Benidorm nánar til tekið, fyrir valinu sem dvalarstaður um jól og áramót. Ná- grannakona þeirra í Austurdalnum norska, tók einnig að sér að kenna syni þeirra spænsku áður en hann hélt á Spánarslóðir sem skiptinemi. Spánarsólin var því komin inn í myndina þá þegar, þótt ekki væru bú- ferlaflutningar þangað þá beinlínis á dagskrá. Garðar og Dagný urðu þó á- sátt um að þegar færi að hægjast um litist þeim vel á að flytja á Costa Blanca-svæðið hið spænska. Sér ekki eftir neinu Eftir tæpan áratug í starfi sem fjár- málastjóri pappaverksmiðjunnar sagði Garðar starfi sínu lausu og fjöl- skyldan flutti til Óslóar. Dagný fór þar út í verslunarrekstur með heilsu- vömr og hjúkrunarvörur undir heit- inu Ellingsen, nánar til tekið Hel- sehuset Ellingsen. „Þetta rak hún svona með smáhjálp frá mér í nokkur ár eða uns við settum á fót ferðaskrif- stofu. Árið 1995 settu Garðar og Dagný ferðaheildsöluna íslandsferðir á fót í Ósló ásamt sonum sínum. „Það 16 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.