Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.2005, Qupperneq 30

Heima er bezt - 01.01.2005, Qupperneq 30
reis upp pöntunarfélag (Zöllnerpönt- unin) í Haganesvík laust eftir alda- mótin 1900, í umsjá þeirra Guð- mundar Asmundssonar, bónda í Langhúsum og séra Jónmundar Hall- dórssonar á Barði. Þessi félagsskapur mæltist vel fyrir vegna lægra vöru- verðs en hin verslunin bauð. Hann hafði aðsetur í litlum skúr suður á malargrandanum milli Hópsvatns og sjávar. I framhaldi af því var Kaupfé- lag Fljótamanna stofnað árið 1912. Því farnaðist illa Qárhagslega og hætti rekstri 1916. Aftur var efnt til stofnunar kaupfélags í Fljótum árið 1919, Samvinnufélag Fljótamanna. Því óx smám saman fiskur um hrygg allt fram um miðja 20. öld og annað- ist viðskipti Fljótamanna um langa hrið, uns það sameinaðist Kaupfélagi Skagfirðinga seint á áttunda áratugn- um. Bátabryggja var byggð í Haga- nesvík, sumarið 1943 vegna uppskip- unar á efni til Skeiðsfossvirkjunar- innar og sá Sigluijarðarkaupstaður um gerð hennar í upphafi. Bryggjan, sem var gerð úr timbri og grjóti, eyðilagðist í miklu brimi síðla árs 1950. Upp úr því var gerð steinsteypt bryggja á sama stað, sem ennþá stendur. Samgöngur á sjó við Haganesvík hófust fljótlega eftir að verslun þar hófst. Fyrsta strandferðaskipið, sem sigldi þangað eftir áætlun, var e/s Skálholt. Síðar komu fleiri skip í kjölfarið, Thore-skipin, fossar Eim- skipafélagsins, ríkisskipin, fell Sam- bandsins og loks póstbátarnir við Norðurland á hverjum tíma. Síðustu sjósamgöngurnar við staðinn lögðust af þegar m/s Skjaldbreið og flóabát- urinn Drangur hættu þangað ferðum. En hvernig voru fyrstu verslunar- húsin í Haganesvík, sem Einar á Hraunum byggði þar, fyrir meira en öld? Nyrst á verslunarlóðinni var verslunar- og íbúðarhúsið. í því norðanverðu var krambúð. Á lofti yfir henni var vörugeymsla og kjall- ari undir. Við vesturhlið, suður af krambúðinni, var rúmgóð stofa og gegnt henni við austurhlið, eldhús og búr. í suðurenda voru tvær stofur, minni. Á lofti voru nokkur svefnher- bergi. Litlu sunnar en íbúðarhúsið, Haganesvík á sínum velmektarárum, um miðjan sjötta áratuginn. Litla timburbryggjan í Haganesvík var aðeins 50 metra löng. Við hana liggur uppskipunarbátur af þeirri gerð sem notaðir voru við efnisjlutninga milli skipa og lands. var pakkhúsið. í því undir lofti, voru voldug uppistöðutré með viðamikl- um þverbitum. í þeim voru járnkrók- ar til þess gerðir að hengja þar upp kjötskrokka í sláturtíð á haustin. Þarna var kjötið höggvið niður og saltað. Kjötöxin var mikið vopn og biturt. Fjalhögg, sem kjötið var höggvið á, var gildur rótarendi af rekatré. Kjötið var saltað í Strandferðabáturinn Brimnes. 30 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.