Heima er bezt - 01.01.2005, Síða 45

Heima er bezt - 01.01.2005, Síða 45
in, var að öllum líkindum sátt við nafnið sem henni var gef- ið. Hún var nú þegar farin að sofa næstum alla nóttina, vaknaði einu sinni á nóttu til þess að drekka. Unni fannst alveg ótrúlegt að eiga svona litla manneskju, sem var svona lík henni sjálfri. Steinar átti bara augnsvipinn og Unnur var alveg viss um það að þegar augun í henni hættu að vera svona dökk, yrðu þau blárri en blátt eins og augun í pabba hennar. Mig dreymdi hana bara alveg eins og hún er í raun- inni, hugsaði hún á leiðinni heim í Álftanes um kvöldið, eftir stórkostlegan dag. Hún lagði hana í skírnarkjólnum í vögguna sína, börn áttu að sofa í skímardressinu, sér til heilla og henni fannst sjálfsagt að framfylgja svona ____________________________ skemmtilegri hjátrú. Svo tímdi hún bara ekki að láta þennan yndislega dag hverfa inn í for- tíðina. „Steinar”, hvíslaði hún, „ertu sofandi?“ | Hann umlaði eitthvað í svefn- rofúnum, þannig að hún ákvað að taka málin í sínar hendur, og eftir stutta stund var hann glað- vakandi. „Ertu viss um að þetta sé allt í lagi,“ hvíslaði hann andstuttur og faðmaði hana að sér. „Já, al- veg viss”, svaraði hún. Seinna lágu þau þegjandi og horfðu hvort á annað, svo sagði Steinar: „Unnur, ég er svo hamingju- samur með þér, ég get hvorki almennilega sagt þér það eða sýnt þér, ég er svo sæll og á- nægður að mér finnst hjartað í mér vera að springa þegar ég horfi á þig og stúlkuna okkar”. „Jú Steinar”, sagði Unnur lágt, „þú ert alltaf að sýna mér það. Bara með því að vera ná- lægt og elska okkur, því við elskum þig báðar og getum ekki án þín verið. Það er nefnilega enginn eins og þú í allri veröld- inni”. nema stöku hestahópar hér og þar, sem voru að éta rúlluhey úr grindum heima við bæina. Það var allt svo kyrrt, eins og þessi fallega mynd af íslenskri sveit væri frosin, ijörðurinn spegilsléttur og algjört logn. Eftir því sem skyggði meira og nóttin færðist nær, slokknuðu fleiri ljós á sveitabæjunum, um leið og fólkið tók á sig náðir, og brátt logaði aðeins á útiljósunum. Það sveif einhver sérstakur andi þama yfir vötnum, og það er óskandi að þessi sveit fái að haldast í byggð á meðan ísland byggist, og sú ósk nær líka til ann- arra sveita landsins kalda í Atlantshafinu. Sögulok. Það er varla til fallegri eða búsældarlegri sveit á íslandi en Eyjafjarðarsveit og hvergi betra að vera, nema kannski á Akur- eyri. Það var tekið að skyggja á þessunr yndislega sunnudegi, og þótt vorið væri á næsta leiti, voru þykk snjóalög yfir öllu, hvorki fólk né dýr sáust útivið, b SYNCRO Heyrnartœki með gervigreind • Afgreiðslutími innan þriggja vikna • Bjóðum margar tegundir af sjáltvirkum, stafrœnum heyrnartœkjum • Verð frá 47.000 - 170.000 kr fyrir eitt tœki • Persónuleg og góð þjónusta Erum með þjónustu á Akureyri - ísafirði - Egilsstöðum Heyrnartœkni www.heyrnartaekni.is Glæsibær Álfheimum 74 104 Reykjavík símí: 568 6880 Tryggvabraut 22 600 Akureyri sími: 893 5960 Heima er bezt 45

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.