Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2008, Side 17

Heima er bezt - 01.11.2008, Side 17
Ég flýtti mér að fara hinum megin við hjónarúmið og ýtti á öxlina á pabba: „Pabbi, pabbi. Vaknaðu. Vaknaðu, það er kviknað í húsinu." Pabbi var ekki lengi að vakna og þegar við komum ffam að svefnherbergisdyrunum kom mamma til baka eftir að hafa vakið aðra í húsinu. Stelpumar, þær Sigrúnu og Ingibjörgu og Jórunni mömmu sína. Þegar hún sá að við vorurn komnir að dyrunum sagði hún við mig: „Hlauptu út með stelpunum, við komum svo á eftir með litlu strákana.“ Ég hljóp yfir ganginn rétt á eftir stelpunum sem ég sá í þessu hlaupa út. Þó leiðin væri ekki löng var einhver geigur í mér. Undarleg birta var á ganginum og snark og hiti fyrir ofan mig. Ég þorði þó ekki að líta upp því ég óttaðist að það mundi teija mig. Þegar komið var yfir ganginn tók við opin dyragætt og eitt þrep niður og þá var komið í bíslagið og útidyrahurðin til vinstri. Þegar ég kom út stóðu stelpumar þar og horfðu inn um opnar útidymar og á dyragættina innaf bíslaginu. Ég tók mér stöðu við hlið þeirra og saman stóðum við þama og biðum eftir því að foreldrar okkar og bræður kæmu út úr brennandi húsinu. Það var ff emur kalt í veðri enda komið fram í desember, örlítil snjóföl yfir öllu og jörð ffosin. Þó við systkinin væmm berfætt og aðeins klædd náttfötum varð okkur ekki kalt. Að minnsta kosti var ekki um það rætt. Reyndar var ekki rætt um neitt. Við stóðum bara þama og biðum án þess að segja eitt einasta orð. Ég man að ég stóð syðst og næst kálgarðinum, Ingibjörg í miðjunni og Sigrún næst veginum. Við stóðum dálitið á ská miðað við húsið og störðum í eldinn. Eftir nokkra stund tóku eldtungur að standa út um opna dyragættina sem við horfðum eins og dáleidd á. Eldurinn magnaðist smátt og smátt og eldtungumar breiddust Iljótlega út um alla ofanverða Systkinin á Bláfelli, talið frá vinstri: Ingibjörg, Sœmundur (fyrir aftan), Vignir, Sigrún og Björgvin Bjarnabörn. dyragættina. Drengurinn níu ára gamall og systur hans tvær sem vom nokkmm ámm eldri stóðu þarna í umkomuleysi sínu og horfðu á eldinn magnast og æsast og fylla að lokum alla dyragættina. Hugur drengsins var sem lamaður. Þama voru foreldrar hans og tveir bræður inni í eldinum og hann gat ekkert gert. Það væri óðs manns æði að ætla sér að fara aftur inn í húsið enda datt engu þeirra það í hug. Þau stóðu bara þarna sem lömuð og gátu hvorki hreyft legg né lið. Hann reyndi að gera sér í hugarlund hvernig lífið mundi verða uppffá þessu. Hann og systur hans munaðarlaus og mundu hvergi eiga ömggt skjól. En hugur hans var fastur og hann gat ekki hugsað um neitt nema þetta sama ffam og aftur. „Nú verð ég munaðarlaus, mamma og pabbi dáin og bræður mínir ekki lengur til. Þetta er hræðilegt. Ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég get eiginlega ekki gert neitt. Bara staðið héma og starað í eldinn.“ Aftur og aftur þyrluðust þessar hugsanir í huga hans. Engin niðurstaða fékkst, bara þetta sama aftur og aftur. Hann haföi enga hugmynd um hve lengi hann stóð þama. Stelpumar stóðu við hliðina á honum og hugsuðu sennilega eitthvað svipað. Ekkert þeirra sagði þó eitt einasta orð. Það eina sem þau gátu gert var að stara í þögulli skelfmgu í eldinn. Þau vom yfirkomin af ógn þess sem var að gerast. Gersamlega lömuð. Ognin lagðist yfir þau og kom í veg fyrir að þau fyndu til hita ífá eldinum eða kulda ffá umhverfinu. Skyndilega kom Vignir blaðskellandi fyrir homið á húsinu og sagði: „Hvað er þetta? Ætlið þið ekki að koma?“ Alögin mnnu af okkur systkinunum á augabragði og við eltum Vigni sem sneri strax við og fór aftur bak við hús. Þar vom foreldrar okkar og Björgvin og höfðu þau öllsömul komist út úr húsinu með því að brjóta rúðu í glugganum á svefnherberginu, því þegar búið var að finna Vigni sem hafði falið sig undir rúmi í öllum ósköpunum, var eldurinn á ganginum orðinn svo magnaður að ekki var fært þar út úr húsinu. Við fómm nú öll sjö yfir til Steinu og Tedda í næsta húsi og vöktum upp. Amma haföi víst farið til Stefáns hreppstjóra og vakið upp þar. Hjá Steinu og Tedda var okkur að sjálfsögðu vel tekið. Pabbi hafði skorið sig illa á hendirtni við að brjóta gluggann og mamma hafði ekki haft tíma til að setja á sig sín sérslípuðu og öflugu gleraugu og háði það henni mikið fyrstu dagana eftir bmnann. Að öðm leyti amaði svosem ekkert að okkur. p'ISfe Heima er bezt 497

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.