Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2008, Blaðsíða 43

Heima er bezt - 01.11.2008, Blaðsíða 43
sér út á tröppurnar. „Alltaf er jafn gott að komast út í hreina loftið,“ sagði Úlli og andvarpaði. „Hvað segirðu, finnst þér ekki gott að vera heima hjá konunni?“ spurði Andrea sakleysislega. „Eg skal segja þér dálítið sem þú fréttir hvort eð er. í fyrsta lagi er Gústa ekki konan mín, sambýliskona já, sennilega má kalla hana það eða ráðskona væri ef til enn nær sanni. í öðru lagi á ég voðalega bágt með að þola hana nú orðið og það er löng saga bak við það sem ég er alveg til í að segja þér þegar við kynnumst betur, sem ég vona að verði bráðlega. Hann tók utan um axlimar á Andreu, sem færði sig tjær og lét telpuna skipta um hendi svo hún væri á milli þeirra.“ Eg þekki þig, hugsaði hún, þú ert þegar farin að leika gamlan leik sem mér finnst ég kannast við. Bíddu bara minn kæri. Við skulum sjá hvort okkar leikur betur. Þetta er nú bara rétt að byrja. Helena horfði á Andreu og bros kviknaði í bláum augunum, svo leit hún feimnislega undan, en hélt fast í hendi hennar. „Henni líst vel á þig,“ sagði Úlli. „Eg hef aldrei séð Helenu hænast að ókunnugum. Það er eins og hún sé dáleidd af þér. Það getur nú svo sem átt við um fleiri,“ bætti hann svo við. „Eigið þið ekki nema þetta eina barn?“ spurði Andrea. „Þetta er dóttir Gústu, ekki mín.Við eigum ekkert barn saman, sem betur fer.“ „Þama er búðin,“ sagði bamið. „Já, þama er þinn örlagastaður og ekki langt frá mér,“ sagði Úlli glaðhlakkalegur. „Allt í sömu lengjunni, búðin, sjoppan, vídeóleigan, sem er líka með skyndibita, og bensínstöðin hérna við endann.“ „Þá er best að ég kíki á spólur,“ sagði Andrea. Hún var iengi að skoða og velja en fann svo tvær spennu- myndir og eina dramatíska ástarmynd sem hún hafði ekki séð. Aður en hún áttaði sig var hún komin að hillunni með barnamyndunum. Hún brosti þegar hún sá að Helena hafði mikinn áhuga á tveim ævintýramyndum og horfði á hana með vonarglampa í augunum. „Langar þig til að sjá þessar myndir?“ spurði hún telpuna, sem kinkaði kolli. Svo dofnaði yfir svipnum. „Tækið er bilað,“ sagði hún lágt. „Mamma sparkaði einu sinni í það, þegar hún var voða reið við Úlla og mig líka, en ég gerði ekkert, það er alveg satt. Mamma varð bara svo voðalega reið.“ Andrea hugsaði að ekki hefði Gústu farið fram í geðprýðinni. Barnið bar þess merki að vera kúgað. Það var eitthvað í fari telpunnar sem smaug inn að hjamarótum hennar. Þér hefur ekki verið velt upp úr ástúð litla mín frekar en þegar þú varst smábarn og látin gráta tímunum saman og ekki líktist hún móður sinni í útliti, svona ljós og fíngerð. Hún gæti alveg líkst mér, hugsaði Andrea og fékk sting í hjartað. MÉR auðvitað. Guð á himnum, hún er alveg eins og ég þegar ég var á hennar aldri. Þá hefur Gústa sagt satt. Hún hlýtur að vera dóttir pabba, HÁLFSYSTIR MÍN. Andrea fann að blóðið þaut um æðar hennar af ofsahraða og hjartslátturinn var eins og trumbusláttur í brjóstholinu. „Ekki horfa svona. Ertu veik?“ spurði mjóróma rödd og lítil hendi togaði í hennar. Andrea áttaði sig. Hún hafði starað á Helenu litlu eins og í leiðslu. Starað á sitt eigið andlit eins og hún væri að horfa í spegil. „Fyrirgefðu elskan, varðstu hrædd?“ sagði hún blíðlega um leið og hún kraup niður hjá telpunni. „Ég var bara að hugsa svo mikið. Heyrðu ég á myndbandstæki. Langar þig að horfa á myndirnar hjá mér í risinu?“ Hamingjusvipur kom á telpuna, svo dofnaði aftur yfir henni. „Mamma verður kannski reið.“ „Ég skal spyrja hana sjálf,“ sagði Andrea. Hún skildi ekkert í sjálfri sér. Bláókunnugt bam, dóttir Gústu og hún var undireins búin að bjóða henni inn á gafl hjá sér. Hvað var eiginlega að henni? Hún dró djúpt andann til að jafna sig og stilla hjartsláttinn. „Eigum við að fá okkur hamborgara eða pylsu?“ spurði hún glaðlega um leið og hún tók í hönd Helenu og gekk að afgreiðsluborðinu. „Búin að ákveða þig?“ spurði Úlli jafn sæll og glaður og áður. „Já, og ég ætla að bjóða Helenu að horfa á bamamynd- irnar.“ „Sú verður ánægð. Satt að segja er ekki margt sem gleður hana eða skemmtir skinninu. Svo er tækið hjá okkur bilað.“ „Já, ég frétti það,“ sagði Andrea og brosti nú alveg eðlilega þegar hún sá Gústu fyrir sér lyfta fætinum og þruma í tækið. „Við ætlum svo að fá okkur að borða. Gerirðu góða hamborgara?“ „Þá bestu, en það er ekki hægt að láta þig borga fyrir stelpuna líka.“ „Jú, ég sagðist ætla að bjóða henni og stend við það. Svo ætla ég að fá nokkra frosna skyndirétti, t.d. stóran lasagna, tvær pítsur og tvo hamborgara. Einn mjólkurlítra og tvo lítra af kóki. Já, og tvo pakka af Winston light. Heyrðu annars, bættu við tveggja lítra ís og ljórum Mars súkkulaðistykkjum, þá get ég haft desert um helgina. Þá er það komið.“ Úlfljótur kallaði á aðra afgreiðslustúlkuna úr sjoppunni til að steikja hamborgarana og frönskumar, sem þær ætluðu að borða á staðnum og bað hana að steikja einn fyrir sig líka. „Maður er ekkert farinn að éta, ég vaknaði svo seint, svo langar mig að spjalla aðeins við þig úr því það er svona rólegt.“ Stúlkan horfði forvitnislega á Andreu meðan hún var að afgreiða og Andrea sá að þetta var hún Binna, sem hafði unnið á heilsugæslunni forðum daga. Hún var auðsjáanlega mjög undrandi hvað þessi ókunna stúlka var að gera þarna með Helenu og Úlla upp á hliðina, svona líka kumpánlegan. Nú fá kjaftasögurnar fætur, hugsaði Andrea og hafði gaman af. Eftir allt saman hafði hún litla lyst á hamborgaranum en píndi hann þó mestallan í sig með frönsku kartöflunum. Henni fannst gott að fá kókið sem var ískalt með klakamolum í. Úlli og Helena borðuðu auðsjáanlega með mestu velþóknun og leifðu engu. „Það má ekki bjóða þér í smápartí í kvöld?“ hvíslaði Úlli. Heima er bezt 523

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.