Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2008, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.11.2008, Blaðsíða 34
Þó að Drottinn þyki snjall, þá kom samt á daginn, að þegar hann gerði þennan karl, þá var hann ekki laginn. Ellin sótti á skáldið, og ekki var það neitt ánægjulegt: Ellinni fylgir ýmislegt, sem ekki er létt að bera. Það er að taka því með spekt; það er um að gera. I/Ia þessi œvi fer, aðra vart ég hreppi. Hygg ég betur hœfa mér heimavist á Kleppi. Jón vaknaði snemma, og var þá í góðu skapi til að yrkja: Mitt í morgunsári mætast nótt og dagur. Hlœr í vorsins heiði himinbláminn fagur. Einn er ég á róli, uni niður við sjóinn. Blæjalogn - og bátur burtu sérhver róinn. Litlar, bláar bárur brotna upp við steina. Æður fleytir ungum, ein - á milli hleina. Fólkið bregóur blundi og byrjar starfa nýja. Senn mun þögnin þoka; þarna flýgur kría. Ástin er stór þáttur í lífí margra. Þau, sem fara hennar á mis. eru ekki öfundsverð, samanber erindi Jóns úr Vör. Ein er sál, sem aldrei kveikti ungs manns gleði. Ilmlaust blóm, er enginn snart né auga léði. Öfundsverð er ungmœr hver, sem ástin gisti, eina stund, þá einu stund, þó allt sitt missti. Arin líða, engin minning, ást né gleði. Ó, hve sárt að iðrast þess, sem aldrei skeði. Sá, sem hér stýrir ritvopni, var vinur Jóns úr Vör. Ég hefí kynnt nokkur erindi eftir hann. Njótið þeirra. Kynnið ykkur ljóð þessa skálds. Það borgar sig. Alls komu 12 ljóðabækur út frá hans hendi. Dægurljóð Mikið hefur gengið á síðasta mánuð hér á landi. Bankahrunið er stærst. Margir hafa misst háar ijárhæðir í klær gróðamanna. Öruggasta ijárfestingin er enn sem fyrr fasteignir. Nú er þess að vænta, að verðlag fari lækkandi á íbúðum og húseignum. En ekki meira um það. Ég gat þess í vísnaþættinum, að við Jón úr Vör hefðum verið kunnugir. Til þeirra hjóna í Kópavogi, Bryndísar og Jóns, átti ég mörg spor fyrr á tíð. Bækur sínar gaf hann mér áritaðar. Eitt sinn skrifaði hann ljóð eftir sig framan á fremra saurblað bókarinnar „Altarisbergið“, er Almenna bókafélagið gaf út 1978. Ljóðið er mér helgað, og er á þessa leið, dagsetningin er 21. maí 1987: Efég kæmist einhvern tíma í þann vanda, íþína átt ég þyrfti að ríma, þar mætti vera nokkur skíma. Eitt má segja, ekki lengur undan draga; Þú hefur bjargað mínu minni margoft - þakkir loks ég inni. Veit ég lengi vit mig kann að vanta í eili. Til þín mun þá löngum leita, Ijúft þér verður hjálp að veita. Vinsamlegast, Jón úr Vör. Ég vík nú að óskyldum hlut. Séra Friðrik Friðriksson, foringi KFUM og KFUK, var sálmaskáld og mjög gott skáld, almennt talað. Hann orti ljóð, sem drengimir í KFUM sungu, en hann sinnti þeim fyrst og fremst. Hér fer á eftir brot úr söng eftir séra Friðrik. Vér komum hér saman með söng og strengjaklið, hér sveima glaðar raddir um æsku, gleði og frið. Hann ólgar og svellur og samhljóma fellur sá söngrómur hvellur í Ijúfan gleðinið. Vér syngjum um Drottin og dáðaverkin hans, svo dýrð hans megi skína um sveitir þessa lands, er bragnar það frétta, hve blómin hér spretta, sem barnshendur flétta í Drottins sigurkrans. 514 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.