Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2008, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 01.11.2008, Blaðsíða 23
Einhvers staðar út á landi bjó maður sem þótti snillingur í faginu. Eitt sinn fær karlinn af því spurnir að sýslumaðurinn og löggan á staðnum séu á leiðinni til þess að ná í sönnunargögn gegn honum, leggja starfsemina niður og handtaka hann. Hann brást við skjótt, tók bruggið og það sem hann átti eimað og hellti því í sjóinn. Síðan gróf hann stóra holu, setti eimingargræjumar í hana og mokaði svo mikið yfír að ekki sást í tækin. Tók hann svo gamlan og þreyttan hund, sem hann átti, skaut hann og setti ofan á allt í holunni og mokaði yfír. Hann var nýlega búinn að þessu þegar sýslumaður og löggan komu og það fýrsta sem þeir sáu var jarðraskið. Og var nú tekið til við að moka. Þeir komu niður á hræið af hundinum og hættu þar með frekari greftri. Ekki fannst neitt í þessari ferð en sagt er að þá hafi sá gamli tautað fyrir munni sér: „Og allir sögðu að Tryggur væri með öllu gagnslaus“ (en hundurinn hét Tryggur). Hinn mikli mannvinur og hugsjónamaður Júlíus Havsteen var sýslumaður á Húsavík. Jónas Sveinsson tengdasonur Júlíusar segir í bók sinni „Lífið er dásamlegt“, tvær sögur af Júlíusi: „Einn haustmorgun fyrir birtingu kom Júlíus sýslumaður að þar sem vömbílstjórar vom að hlaða vagna sína, í þann veginn að leggja af stað upp í sveit, gekk til þeirra og mælti svo hátt að allir heyrðu: „Mikil vandræði hvað þið em snemma á ferli, piltar. Hann Bjöm Blöndal (löggæslumaður, sem aðallega rannsakaði bmgg. Ath.s. mín) kemur hingað í dag og hefði líklega þurft að fá flutning fram í Reykjadal.“ Það eru til tvœr tegundir af lögbrotum sem ég hef flœkst í, illu heilli. Önnur olli mér magakvillum og hin kvíða ogfjárútlátum. Þessi lögbrot eru brugg- og áfengissmygl. Þær fáu tilraunir mínar til að brugga runnu allar út í sandinn því bruggarinn gat aldrei beðið eftir að sullið gerjaðist almennilega, svo að þessar tilraunir ullu bara magakveisu ef eitthvað var. Hitt lögbrotið endaði í flest skiptin með stórum fjárhagshalla á aðgerðunum. Ekki œtla ég mér að fara að hæla mér af þessum ósiðum, heldur er meiningin að rifja upp nokkrar skemmtilegar (að mínu mati) sögur sem tengjast þessum lögbrotum. Við skulum byrja á brugginu. Heima er bezt 503

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.