Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2008, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.11.2008, Blaðsíða 29
Þessi bær á Sauðhúsvelli er ekki verr farinn né meira úr lagi færður að grunnfleti en svo, að auðvelt er að gera sér grein fyrir bæjargerðinni allri og húsaskipan meðan hér var enn búið, enda kunna menn enn glögglega að segja frá því. Eg hef unnið að undirbúningi endur- gerðar gamla bæjarins á Sauðhúsveili. Hugmyndin kviknaði eiginlega í beinu framhaldi af endurbyggingu Kofans og umgerðinni þar í kring [Sjá Myndbrot í Heima er bezt, 7.-8. hefti 2007]. Málum er nú svo komið að Þórður Tómasson, safnvörður í Skógum, hefur mælt bæinn upp ásamt Rúnari Sigmarssyni og komist að þeirri athygliverðu niðurstöðu að bæjarlínan sé einhver sú lengsta, heillegasta og umfangsmesta á Suðurlandi á kafl- anum frá Núpsstað að Keldum á Rang- árvöllum. Sé litið til hleðslugerðar og húsaniðurröðunar og innra skipulags þykja byggingamar athygli- og rann- sóknarverðar. Byggingamar samanstanda af 3 hesthúsum með útiheygarði baka- til, stórri heyhlöðu, baðstofu, eldhúsi, lambhúsi, fjósi, eldsmiðju og taðstáli. Umgjörð bæjarins var umlukt grjót- garði, eins og gamlar myndir sýna. Þá vekur vatnsbrunnurinn athygli fyrir dýpt sína og hleðslugerð, en hann mun vera hlaðinn af Sigurði Guðjónssyni bónda og Einari Jónssyni árið 1938. Dýpt brunnsins er 7 metrar. Hófu þeirhleðslu bmnnveggjanna efst og hlóðu niður að sér. Það var verkfræði síns tíma. Um byggingarár bæjarins sjálfs er algjör óvissa og þarf því nánari rann- sóknar við.“ Úttekt á gömlu bæjarhúsunum Svo sem fyrr greinir, þá skoðaði Þórður Tómasson, safnvörður byggðasafnsins í Skógum, gömlu bæjarhúsin á Sauð- húsvelli, í september árið 2007, að tilmælum Húsafriðunarnefndar. Ritaði hann að því loknu, m.a. eftirfarandi lýsingu á gerð og fyrirkomulagi hús- anna: „Bærinn á Sauðhúsvelli stóð á gróinni skriðubungu í samfelldu húsaþorpi til 1938, en þá var byggt steinsteypt íbúðar- hús, ásamt fjósi og hlöðu rétt suðvestur frá gamla bæjarstæðinu. Bæjarröndin stóð meðfram steinlagðri stétt. Kálgarður varinn grjótgarði var framan bæjarhúsa og húsagarður með heygarði bak bæjarhúsa, einnig varinn grjótgarði. Bakhús vom þrjú, eldhús, taðstál og lítið hesthús. Vörslugarðar kálgarðs em horfhir og vörslugarður að húsabaki er horfínn að hluta. Niðurgrafíð heystæði sem snýr upp og fram austast í húsagarði er vel skýrt. Vatnsbmnnur er miðsvæðis við bæjarstétt. Hann var hlaðinn af Sigurði Guðjónssyni bónda á Sauðhúsvelli og Einari Jónssyni mági hans um 1935. Áður var neysluvatn heimilis sótt niður í svonefndar Vöslur niður frá bæ og kýr vom reknar þangað í vatn daglega á vetrum þegar fært var vegna veðurs. Brunnurinn var hlaðinn að gamalli venju með þeim hætti að byrjað var að hlaða ofan frá og svo hvert hleðslulagið af öðra niður. Grafið var úr jarðvegi fyrir hverjum steini neðan við samkomu steina í efra hleðslulagi og jarðvegur tekinn upp í skjólu eða íláti er neðar færðist í brunnstæðið. Brunnurinn er hlaðinn úr blágrýti, kringlóttur, um 1,50 m. í þvermál og er 6,60 m. á dýpt. Hann heldur sér mjög vel. Fyrstu heimild um bmnnagröft með þessu lagi hafði ég fráEinari Sveinbjamarsyni bónda á Ysta-Skála undir Eyjafjöllum, en honum sagði Auðunn Jónsson bóndi á Ysta-Skála, f. 1892. Baðstofan í gamla bænum á Sauð- húsvelli var ofan tekin um og eftir 1938. Panell úr henni var að hluta til notaður í klæðningu innan í nýja íbúðarhúsið. Bæjardyr með stofu og búri vom ofan teknar um líkt leyti og nýtt hús hlaðið í gamla hússtæðinu, lægra að veggjum, án loftbita, þak klætt með járni og torfi. Hér var síðar um mörg ár fjárhús. 1 baðstofustæðinu vestan heyhlöðu var byggður járnklæddur skúr til geymslu á reiðfygjum og fleira. Gömlu húsin í gamla bæjarstæðinu standa nú sjö hús og halda til mestra rnuna fomum einkennum. Grjóthlaðin að öllum veggjum (blágrýti), að nokkru undir rafti, hellu og torfi. Vestast húsa í bæjarrönd er smiðja, 2,70 x 1,80 m. að innanmáli. Veggi þarf að endurhlaða niður að miðju. Smiðjan er undir þéttunr rafti, hellu og torfi. Jámklætt standþil að framanverðu. Steðji og steðjafótur (tré) enn á sínum stað. Afl horfínn, handsnúin jámsmiðja kom í stað hans og smiðjubelgs hin síðari ár. Þrjár góðar smiðjutangir em á hillu yfir steðja. Austan við smiðju er fjós. Þetta er einstæðufjós (einhölufjós), fyrir fímm kýr og er með hlöðubás fyrir kálfínn í fjósgaflinn við austurvegg. Innanmál er 5,10 x 2,70 m. og innanmál hlöðubáss er 1,30 x 1,10 m. Gönguþrep er við austur- vegg meðfram flór. Veggir hafa gengið nokkuð út niður að miðju. Uppgersla er mæniás sem hvílir á stoðum, raftur, jámklæðning og torf. Að dymm eru hlaðnir kampar og bjórþil með litlum glugga er yfir dymm. Austan við fjósið er sem fyrr greinir Ijárhús (lambhús) í gamla bæjardyrastæðinu. Hér er eitthvað af hinum fomu hleðslum og í gaflaði má greina að hlaðið hefur verið upp í göng norður í hlóðaeldhús. Húsið er 5,20 x 3 m að innanmáli. 1 þaki er mæniás, raftur, jámklæðning og torf. Húsasamstæðan austan við bæjar- dyrastæðið er hinn jámklæddi skúr og mikil heyhlaða undir sperrum og jámþaki og skilja timburstoðir hér milli bygginga. Steypt súrheysgryfja er að vestanverðu inni í hlöðunni. Hlaðan var byggð árið 1920 af Jóni Jónssyni mállausa, bónda á Sauðhúsvelli, afreksmanni til burða og verka. Austurveggur er grjóthlaðinn, svo og gafl og halda hleðslur sér allvel. Á austurvegg em dyr austur í hesthús. Hlaðan er 10 x 6,50 m að innanmáli. Hún er mjög gott dæmi um heyhlöður á fyrri hluta 20. aldar. Austan við hlöðu er langhús, tvídyrað á suðurhlið. Þetta er hesthús með milligerð um miðju og miklum tréstalli með norðurhlið. Stærð 6,5 x 3,30 m. Mæniásar (langbönd) raftur og helluþekja að nokkm. Þak fallið til mestra muna. Endurhlaða þarf veggi niður að miðju. Hesthúskofi fyrir tvö hross er hér austastur húsa og Heima er bezt 509

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.