Heimaklettur - 01.12.1943, Qupperneq 26
Þannig varð skósmiðurinn við hinn
fagra Eyjafjörð á fáum árum einn
ástsælasti höfundur íslenzkra barna-
sagna. Ekki er ósennilegt, að vin-
sældir hans meðal barnanna hafi
einmitt orðið orsök þess, að hann
leggur skósmíðaáhöld sín á hilluna
og tekur að sér kennarastörf við
barnaskólann í Reykjavík árið 1908,
og dvelst við þann skóla í samfellt
11 ár, eða til ársins 1919. Það ár flyt-
ur hann hingað til Vestmannaeyja og
gerist kennari við barnaskólann hér.
Sigurbjörn hefur ávallt dvalizt hér í
Eyjum síðan og tekið ástfóstri við
þetta byggðarlag. Kennslustörf hefur
hann ávallt haft með höndum. Fyrst
um 13 ára skeið við barnaskólann, en
er heilsan tók að bila, 1 heima hús-
um. Sérstaklega margir sækjast eftir
enskukennslu hans og komast færri
að en vilja. Skiptir fólk það orðið
hundruðum hér í Eyjum, sem notið
hefur kennslu hans í ensku. Má í því
sambandi benda á, að Sigurbjörn
hafði einn með höndum alla ensku-
kennslu Reykjavíkur-skólans, þau ár,
sem hann starfaði þar. Sýnir það,
hversu óskipt traust skólastjórnin
hefur borið til hans, þrátt fyrir það,
þótt Sigurbjörn hafi verið að öllu
leyti maður sjálfmenntaður.
Það er óþarfi að fara að telja upp
nöfn barnabóka Sigurbjarnar, svo
kunnar eru þær um land allt. Þess
má þó geta, að alls hafa þær verið
gefnar út 1 50 þúsundum eintaka. Má
af því marka, hversu vinsælar þær
hafa verið og eru. Ennfremur hafa
nokkrar sögur hans verið þýddar á
erlend mál.
Sem vænta má hefur hróður Sig-
urbjarnar, sem skálds, ekki takmark-
ast við landsteina íslands. í bókina
,,The North American book of Ice-
landic verse'* eftir próf. Watson
Kirkconnell, sem er safn kvæða 100
þekktustu höfunda Islands frá Eddu-
kvæðum til vorra tíma, hefur verið
tekið til þýðingar kvæði eftir hann.
sem nefnist „Time and space“ (Tími
og rúm).
Það verður þó ekki sagt um kvæði
Sigurbjarnar, að þau ein geti gert
nafn hans frægt. Nei, það eru yndis-
legu ævintýrin hans, sem bera nafn
hans hæst. Ljóð hans eru unaðsleg,
en sérstakra tilþrifa gætir þar ekki;
samt sem áður eru þau vinsæl vegna
þess, að yfir þeim hvílir blær hinn-
ar látlausu fegurðar, sem gerir þau
aðlaðandi, og kvæði hans „Yndis-
lega Eyjan mín“, verður vafalaust
enn um langan aldur, eins og hingað
til, þjóðsöngur Vestmannaeyinga.
Sigurbirni hefur verið fleira til
lista lagt en skósmíði, ljóðagerð og
frásagnarlist. — Hann er líka einn
kunnasti skákdæmahöfundur þessa
lands. Hefur honum hlotnazt fyrir
skákdæmi sín sérstök heiðursviður-
kenning frá Skákfélagi Reykjavíkur.
En þrátt fyrir allt er Sigurbjörn
Sveinsson fyrst og fremst skáld ís-
lenzkrar æsku, gróanda þjóðarinnar.
Með ritverkum sínum hefur hann
tengzt vorgróðri íslands órofabönd-
um helgra véa. Hann er hinn mikli
myndasmiður barnanna. Sefjamjúk
túlkun hans á hugðarefnum æskunn-
ar, listræn nákvæmni, sem sjaldan
missir marks, og einföld dýpt lýsinga.
lits og efnis, samfara hárfínum smekk
fyrir allri fegurð, hafa gert hann ís-
lenzkum börnum flestum mönnum
hjartfólgnari.
18
HEIMAKLETTOR