Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1946, Blaðsíða 83
81
Heildarskýrslur um úthlutun ellilauna og örorkubóta
í kaupstöðum og sýslum 1943-—1946.
Hér fara á eftir sundurliðaðar skýrslur um úthlutunina áián 1943—
1946 í hverjum einstökum kaupstað og sýslufélagi á landinu (töflur 34,
35, 36, 37, 38 og 39). Þar sést, hve mikið hver kaupstaður og sýsla hef-
ur lagt fram, hve miklu framlag af vöxtum ellistyrktarsjóðanna hefur
numið og hve mikið Tryggingastofnun ríkisins hefur lagt fram. Þar er
cinnig greint, hve margir hafa notið framfærslustyrks árið á undan
auk ellilauna eða örorkubóta og hve miklu styrkurinn hefur numið. Á
öllu landinu hefur tala þeirra, sem fengið hafa framfærslustyrk, auk elli-
launa eða örorkubóta, og veittur framfærslustyrkur verið sem hér segir:
Ár Tala stjrrkþega Styrkur alls kr. Tala Styrkur alls Ár. styrkþega kr.
1938 477 244 975,96 1942 123 114 004,39
1939 244 104 054,91 1943 104 121 656,31
1940 188 80 029,47 1944 75 133 877,74
1941 157 105 817,76 1945 59 160 007,36
Samkvæmt alþýðutryggingalögu num úthlutuðu bæj ar- og sveitar-
stjórnir elli- og örorkubótum. Fastar úthlutunarreglur voru engar í lög-
unum, en hins vegar almenn ákvæði þess efnis að úthluta skyldi þeim
gamalmennum og öryrkjum, sem að dómi sveitarstjórnar hefðu þess
þörf. Sveitarstjórnir ákváðu, hve rnikið skyldi veitt, en þó var ákveðið
í lögunum, að haga skyldi úthlutuninni svo, að styrkþegarnir þyrftu ekki
fyrirsjáanlega að njóta almenns framfærslustyrks samhliða á fithlut-
unartímabilinu. Hámarksupphæðin, sem veita mátti, var „eðlilegur með-
alframfærslueyrir einstaklings" í hlutaðeigandi byggðarlagi. Var í þessu
efni farið eftir reglum, sem Tryggingastofnun ríkisins setti, að fengnum
upplýsingum frá sveitarfélögum, og staðfestar voru af ráðherra. Eftir-
farandi yfirlit sýnir eðlilegan meðalframfærslueyri árin 1939—1946:
Eðlilegur framfærsluegrir.
1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1940
kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr. kr.
Reykjavík ............. 900 900 1 170 1 550 2 925 3 050 3 250 3 420
Aðrir kaupstaðir....... 840 840 1 100 1 450 2 730 2 840 2 980 3140
Kauptún m. yfir 300 íb. 720 720 940 1 240 2 340 2 440 2 570 2 710
Onnur sveitarfélög .... 600 600 780 1 040 1 950 2 030 2 170 2 280
Þess ber að g'æta, að framkvæmd laganna var þannig, að upphæðir
þær, sem að framan greinir, voru skoðaðar sem hámarksupphæðir, sem
Tryggingastofnunin lagði á móti, en sveitarfélögin gátu veitt hærri upp-
hæðir til einstakra gamalmenna og öryrkja, sem sérstakrar umönnunar
þurftu.
Þá er þess að geta, að árin 1940, 1941 og 1942 greiddi Trygginga-
stofnun ríkisins sérstaka uppbót á ellilaun og örorkubætur í II. flokki,
gegn því að hlutaðeigandi sveitarfélög greiddi samsvarandi uppbót að
sínum hluta, og gerðu það ýmis sveitarfélög.
11