Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1963, Page 25

Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1963, Page 25
23 62. gr. Bætur skal greiða mánaðarlega eftir á. Þó má greiða sjúkrabætur og dag- peninga fyrir styttri tíma, og ekki er skylt að greiða eins og tveggja barna fjölskyldu- bætur oftar en fjórum sinnum á ári. Enn fremur má greiða bætur eftir á fyrir lengri tíma en einn mánuð, þar sem samgöngur eru erfiðar. Úrskurðaðar bætur falla niður, ef þær eru ekki sóttar innan 12 mánaða, en úr- skurða má bætur á ný, ef rökstudd umsókn berst. 63. gr. Nú hafa bótaþega verið greiddar hærri bætur en vera bar samkvæmt lög- um þessum, og á þá Tryggingastofnunin eða sjúkrasamlag endurkröfurétt á hendur honum eftir almennum reglum. Má og draga uppliæðina frá bótum, sem bótaþegi síðar kynni að öðlast rétt til. Ef greiðsla samkvæmt 1. málsgr. stafar af sviksamlegu atferli bótaþega, getur Tryggingastofnunin eða sjúkrasamlagsstjórn látið hann endurgreiða allt að tvöfaldri þeirri fjárhæð, sem ofgreidd var. Hefur þetta engin áhrif á þá refsingu, sem bóta- þegi að öðru leyti kann að hafa bakað sér. 64. gr. Ef umsækjandi á bótakröfu á hendur manni eða stofnun vegna tjóns, sem hann eða hún ber ábyrgð á vegna ásetnings eða gáleysis eða samkvæmt ákvæðum 67. gr. umferðarlaga nr. 26/1958, eiga tryggingarnar endurkröfurétt fyrir þeim bót- um, sem þær hafa innt af hendi vegna tjónsins, án þess að til komi framsal. Endur- kröfurétturinn gildir þó ekki gagnvart atvinnurekanda, að því er varðar bætur vegna slysa, er starfsmenn hans verða fyrir, nema hann eða trúnaðarmenn hans hafi valdið slysinu af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. 65. gr. Ef bótaþegi er dæmdur til fangelsisvistar eða á annan hátt úrskurðaður til dvalar á einhverri stofnun, skulu falla niður allar bætur til hans, meðan hann dvelst þar, sbr. þó síðustu málsgr. 56. gr. Tryggingastofnunin getur þó ákveðið að greiða bæturnar, eða hluta af þeim, konu hans og börnum eða einhverjum þriðja aðila, sem sér um, að bæturnar komi þeim að sem mestu gagni. 66. gr. Óheimilt er að framselja eða veðsetja bótakröfur samkvæmt lögum þessum, og ekki má leggja á þær löghald né gera í þeim fjárnám eða lögtak né halda bótafé til greiðslu opinberra gjalda, annarra en iðgjalda samkvæmt lögum þessum. 65. gr. Nú telur Tryggingastofnun ríkisins vafa leika á um lögheimili bótaþega eða umsækjanda um bætur, sbr. lög nr. 35 30. maí 1960, og skal hún þá leita úr- skurðar dómara, enda getur hún beiðzt rannsóknar og úrskurðar með sama hætti og þjóðskrá og sveitarfélag samkvæmt 14. gr. nefndra laga. Sjúkrasamlög eiga einnig rétt á að óska rannsóknar og úrskurðar um lögheimili samlagsmanna. B. Um iðgjöld, innheimtu o. fl. 68. gr. Iðgjöld hinna tryggðu samkvæmt 26. gr. skulu lögð á þar, sem gjaldendur eiga lögheimili samkvæmt þjóðskrá 1. desember næstan á undan. Tekur álagningin til þeirra, sem í byrjun gjaklársins hafa náð 16 ára aldri, en yngri eru en 67 ára. Skattstjóri skal leggja iðgjöldin á og færa þau á skattskrá, sbr. 39. gr. laga nr. 70/ 1962, og skulu ákvæði 40. gr. þeirra laga gilda um iðgjöldin eftir því, sem við á. Skal skattstjóri senda Tryggingastofnun ríkisins eintak af gjaldskrá þeirri, er hann lætur innheimtumanni í té.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202

x

Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins
https://timarit.is/publication/1877

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.