Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1963, Qupperneq 28
26
78. gr. Ráðherra getur ákveðið, að lífeyrisdeild greiði:
a. Kostnað vegna yfirstjórnar Tryggingastofnunarinnar á sjúkratryggingamálum.
b. Gjald fyrir rannsóknir, sem Tryggingastofnunin semur um við opinberar rann-
sóknarstofur, að þær annist fyrir sjúkrasamlögin.
c. Kostnað samkvæmt milliríkjasamningum vegna sjúkrahjálpar til erlendra ríkis-
borgara, sem dveljast hér um stundarsakir.
d. Allt að einni milljón króna á ári til sjúklinga i utanfararstyrki, sem framlag er
ákveðið til í fjárlögum, í framlög til læknisvitjanasjóða, er starfa samkvæmt lög-
um nr. 59/1942, og sjúkrasamlaga, sem verða fyrir óvenjulegum gjöldum vegna
sjúkraflutninga og læknisvitjana og starfa í héruðum, þar sem ekki eru læknis-
vitjanasjóðir. Uthlutun fjárins ákveður tryggingaráð að fengnum tillögum land-
læknis, nema að því er varðar framlög til sjúkrasamlaga.
79. gr. Mæður, sem fá úrskurð yfirvalds um meðlag með börnum sínum, geta
snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins með úrskurðinn og fengið meðlagið greitt
þar til 16 ára aldurs barnsins án tillits til þess, hvort þær ganga í hjónaband eða
ekki. Aldrei greiðir Tryggingastofnunin þó hærri fjárhæð en sem nemur barnalífeyri
samkvæmt 16. gr.
Þegar Tryggingastofnunin greiðir meðlag samkvæmt 1. málsgr., á hún endurkröfu-
rétt á hendur barnsföður, og fer um innheimtu slíkrar kröfu eftir 76. gr. framfærslu-
laga.
Innheimtumaður, sem annast innheimtu á endurgreiðslukröfu vegna meðlags, get-
ur leitað aðstoðar lögreglunnar til þess að ná til skuldarans.
Verði vanskil af hálfu meðlagsskylds aðila, skal innheimta kröfuna hjá framfærslu-
sveit hans, og telst fjárhæðin framfærslustyrkur, veittur honum. Eignast Trygginga-
stofnunin að öllu leyti sama rétt á hendur framfærslusveit föður og dvalarsveit móð-
ur hefur samkvæmt framfærslulögum, þar með talinn sá réttur að leita yfirvaldsúr-
skurðar um sveitfesti barnsföður samkvæmt 76. gr. framfærslulaga. Skal Trygginga-
stofnunin svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan 12 mánaða frá greiðslu
meðlagsins bera fram kröfu um endurgreiðslu á hendur framfærslusveit barnsföður,
og skal hún þá greiða skuldina innan 6 mánaða frá móttöku kröfunnar.
Nú vanrækir framfærslusveit að sinna kröfunni, og getur þá Tryggingastofnunin
krafið ríkissjóð greiðslu samkvæmt 50. gr. framfærslulaga, en þó skulu slíkar kröfur
gerðar eigi síðar en tveim árum eftir, að krafan hefur verið send framfærslusveit.
Nánari ákvæði um endurgreiðslu setur ráðuneytið með reglugerð.
Ákvæði þessarar greinar skulu gilda, eftir því sem við getur átt, um greiðslu
meðlags, sem fráskildar konur fá úrskurðað með börnum sínum.
80. gr. Ógift móðir, sem verður að fella niður vinnu og missir tekjur sínar vegna
barnsburðar og leggur fram úrskurð á hendur barnsföður fyrir barnsfararkostnaði
eða hefur gert ráðstafanir til að afla sér slíks úrskurðar, á rétt á því, að Trygginga-
stofnunin greiði henni auk fæðingarstyrks samkvæmt 18. gr. allt að kr. 1000.00 á
mánuði í allt að 3 mánuði samanlagt fyrir og eftir barnsburð, enda hefur þá Trygg-
ingastofnunin endurkröfurétt á hendur barnsföður og sveitarfélagi á sama hátt og
í 79. gr. segir um endurkröfurétt á meðlagi.
81. gr. Tryggingastofnunin getur tekið að sér að annast reikningshald og daglega
afgreiðslu fyrir einstaka lífeyrissjóði.
82. gr. Heimilt er Tryggingastofnuninni að taka að sér frjálsar slysatryggingar.
Skal þá jafnan gefa út vátryggingarskírteini. Enn frernur getur stofnunin með sam-
þykki ráðherra tekið að sér ábyrgðartryggingar.