Skinfaxi - 01.02.2023, Síða 6
6 S K I N FA X I
Skinfaxi 2. tbl. 2023
Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags
Íslands, hefur komið út samfleytt síðan
1909. Tímaritið dregur nafn sitt af hest-
inum fljúgandi sem dró vagn goðsagna-
verunnar Dags er ók um himinhvolfið í
norrænum sagnaheimi.
R I TST J Ó R I
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson.
Á BY R GÐA R M A Ð U R
Jóhann Steinar Ingimundarson.
R I T N E F N D
Gunnar Gunnarsson, Elísabet Ásdís
Kristjánsdóttir, Sigurður Óskar Jónsson,
Kristján Guðmundsson, Jóhanna Íris
Ingólfsdóttir og Embla Líf Hallsdóttir.
UM BR OT O G H Ö N N U N
Indígó.
P R E N T U N
Litróf.
AU GLÝS I N GA R
Hringjum.
FO R S Í Ð UMY N D
Myndina tók Davíð Már Sigurðsson
af þátttakanda á Unglingalandsmóti
UMFÍ sem fram fór á Sauðárkróki um
verslunarmannahelgina 2023.
L J ÓS MY N D I R
Bríet Guðmundsdóttir, Davíð Már
Sigurðsson, Hafsteinn Snær Þorsteins-
son, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
Tjörvi Týr Gíslason, Valgarður Gíslason,
Sumarliði Ásgeirsson o.fl.
SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA
Þjónustumiðstöð UMFÍ, Engjavegi 6,
104 Reykjavík, s. 568 2929
umfi@umfi.is - www.umfi.is
UM F Í
Ungmennafélag Íslands, landssamband
ungmennafélaga á Íslandi, var stofnað á
Þingvöllum 2. ágúst 1907. Sambands-
aðilar UMFÍ eru 27 talsins og skiptast í
22 íþróttahéruð og 5 ungmennafélög
með beina aðild. Alls eru um 480 félög
innan UMFÍ um land allt.
ST J Ó R N UM F Í
Jóhann Steinar Ingimundarson formaður,
Gunnar Þór Gestsson varaformaður,
Ragnheiður Högnadóttir meðstjórnandi
og formaður framkvæmdastjórnar, Guð-
mundur G. Sigurbergsson gjaldkeri,
Sigurður Óskar Jónsson ritari, Málfríður
Sigurhansdóttir meðstjórnandi og
Gunnar Gunnarsson meðstjórnandi.
VA R AST J Ó R N UM F Í
Hallbera Eiríksdóttir, Lárus B. Lárusson,
Gissur Jónsson og Guðmunda Ólafsdóttir.
STA R FS FÓ L K UM F Í
Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmda-
stjóri, Einar Þorvaldur Eyjólfsson fjármála-
stjóri, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
kynningarfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa,
Ómar Bragi Stefánsson framkvæmda-
stjóri móta (með aðsetur á Sauðárkróki),
Ragnheiður Sigurðardóttir verkefna-
stjóri og Guðbirna Kristín Þórðardóttir
ritari.
S KÓ L A BÚ Ð I R Á R E Y K J UM
Sigurður Guðmundsson forstöðumaður,
Ingimar Oddsson, Rannveig Aðalbjörg
Hjartardóttir, Hulda Signý Jóhannes-
dóttir, Luis Augusto Aquino, Gísli
Kristján Kjartansson, Oddný Bergsveina
Ásmundsdóttir, Elmar Davíð Hauksson
og Róbert Júlíusson.
„Ég er hrærður, mér líður hreint út sagt eins og persónu í skáldsögu.
Þú veist, það er ótrúlegt að fá loksins svar eftir 42 ára bið,“ segir Martin
Jára, sálmeðferðarfræðingur frá Tékklandi. Í október árið 1981 birtist í
Skinfaxa auglýsing eftir pennavini.
Í auglýsingunni, sem má sjá hér að neðan í afriti úr blaðinu, segir að
Skinfaxa hafi nýlega borist bréf frá tvítugum Tékka sem óski eftir því að
eignast pennavin. Sá var búsettur í Prag, um þessar mundir, í háskóla,
lagði stund á þjóðfélagsgreinar og gat skrifað á ensku, rússnesku og
frönsku.
Helstu áhugamál Jára á þessum tíma voru kvikmyndir, tónlist, bók-
menntir og að sjálfsögðu Ísland. Hann hafði lesið nokkuð eftir íslenska
rithöfunda, svo sem bækur eftir þá Halldór Laxness og Einar Olgeirs-
son, einn stofnenda Kommúnistaflokksins á Íslandi, sem er sagður hafa
átt mikinn þátt í fylgi sósíalista á Íslandi. Honum var þakkað fyrir sam-
einingu sósíalista og vinstri jafnaðarmanna í Sósíalistaflokknum á
sínum tíma og síðar Alþýðubandalaginu.
Árið 1981 voru einungis 42 ár liðin frá því að Þjóðverjar hernámu
Tékkóslóvakíu og aðeins þrettán ár frá því að herir Varsjárbandalags-
ins undir forystu Sovétmanna gerðu innrás í landið.
Ritstjóri Skinfaxa rak augun í auglýsingu Martins í lok september og
ákvað að kanna hvort hann hefði fengið svar og hvernig bréfaskrifin
hafi þróast.
Leit Martins Jára hafði ekki borið árangur og var skeytið sem honum
nú barst það fyrsta sem heyrðist af hinum endanum. Hann svaraði því
til að hann væri himinlifandi að fá svar þótt öll þessi ár væru liðin. Hann
byggi enn í Prag en læsi ekki lengur rit Einars Olgeirssonar. Á hinn
bóginn hefði hann heillast af skáldsögum jafnaldra síns Gyrðis Elías-
sonar og lesið nær allar bækur hans. Það er skemmtileg tilviljun að
persónur í bókum Gyrðis glíma við ýmislegt í sálarlífinu, sem heillar
sálfræðinga og sálmeðferðarfræðinga.
Martin hefur enn mikla löngun til að koma til Íslands þótt hann hafi
aldrei látið af því verða. Hann getur vel hugsað sér að koma í heimsókn
og langar þá að hitta Gyrði og bætir við að hann sé glaður með að hafa
loksins fengið svar við bréfinu sem hann sendi til Íslands árið 1981.
Spurður um ástæðu þess að Martin hafi leitað eftir pennavini á
Íslandi á sínum tíma svarar hann:
„Ég held að það hafi verið leið mín til að takast á við lífið undir
sovésku alræði.“
Beið eftir pennavini í meira en 40 ár
Hér má sjá Martin árið 1981 þegar hann leitaði pennavinar á Íslandi og Martin í dag, 42 árum síðar.
Auglýsing Martins í Skinfaxa árið 1981.
Martin Jára frá Tékkóslóvakíu skrifaði bréf til UMFÍ árið 1981 og leitaði eftir pennavini.
Honum bárust engin svör fyrr en nýverið.