Skinfaxi - 01.02.2023, Síða 19
S K I N FA X I 19
„Það er ótrúlega skemmtilegt hvað undirtektirnar eru góðar. Það eru
svo margir sem vilja vera með og taka þátt,“ segir Eva Katrín Friðgeirs-
dóttir, sem með Fríðu Karen Gunnarsdóttur er þjálfari í heilsueflingar-
verkefninu Virkni og vellíðan. Verkefnið miðar að heilsueflingu fólks
60 ára og eldri í Kópavogi. Þátttakendur fá þar tækifæri til að stunda
hreyfingu tvisvar í viku í því félagi sem er næst heimili þeirra. Mark-
miðið er að bæta líkamlega, andlega og félagslega heilsu bæjarbúa á
besta aldri og stuðla að farsælli öldrun.
Verkefninu var hleypt af stokkunum 1. október árið 2020 og var
samvinnuverkefni Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK), Kópa-
vogsbæjar og þriggja stærstu íþróttafélaganna þar, Breiðabliks, Gerplu
og HK. Að auki sjá íþróttafræðingar hjá Háskólanum í Reykjavík um
þjálfun og mælingar á árangri heilsueflingarinnar. Kristján Valur Jóhanns-
son, meistaranemi í íþróttafræði við skólann, stýrir mælingunum, sem
Íþróttafélögin stuðla að vellíðan eldri borgara
Verkefnið Virkni og vellíðan hefur fengið góðar undirtektir í Kópavogi. Íþróttafræðingar stýra
verkefninu og nýta íþróttahús bæjarins fyrir æfingar en nemendur í íþróttafræðum gera mælingar.
Sambærilegt verkefni hefur verið tekið upp hjá Fjölni. Mælingar á árangri eru gerðar reglulega.
nemendur á þriðja ári í íþróttafræðum gera. Nemendur á fyrsta ári
fylgjast með og koma að mælingunum. Háskólinn útvegar meis-
taranema til að mæla hreysti og er stefnt að því að skrifa meistararit-
gerð upp úr gögnunum.
Þær Eva og Fríða brydda upp á ýmsum mismunandi möguleikum
í hreyfingu fyrir þátttakendur í verkefninu. Þar á meðal eru fræðslu-
fundir og gönguferðir. Mikilvægur hluti af þátttökunni er mælingar
sem nemendurnir við Háskólann í Reykjavík vinna að.
Rúmlega 360 manns eru skráðir í heilsueflingu Virkni og vellíðan í
Kópavogi og þar að auki taka um 80 manns þátt í félagsmiðstöðvum
eldri borgara í bænum. Þær Eva og Fríða stýra líka verkefninu Frísk í
Fjölni, sem er sambærilegt og í Kópavogi, nema að Reykjavíkurborg
kemur ekki að verkefninu. Í Fjölni eru þátttakendur 80 talsins.
Þær Eva Katrín Friðgeirsdóttir og Fríða Karen Gunnarsdóttir með
Kristjáni Val Jóhannssyni þegar mælingarnar fóru fram í Kórnum í
Kópavogi.
Þátttakendur mættu í tveimur stórum hópum í mælingarnar í íþrótta-
húsi HK í Kórnum. Margir slógu á létta strengi, enda hefur verkefnið
góð félagsleg áhrif á þátttakendur.