Skinfaxi - 01.02.2023, Side 21
S K I N FA X I 21
að börn og ungmenni haldi áfram í íþrótta-
starfi. Nú hætta of margir í íþróttum á þess-
um aldri til að einbeita sér að skólanum. Við
erum að skoða að þau sem eru í íþróttum geti
verið lengur í framhaldsskóla á móti. Við þurf-
um með öðrum orðum að hugsa um krakk-
ana,“ segir Vésteinn og bætir við að horfa
þurfi til hinna Norðurlandaríkjanna.
„Við þurfum að sjá til þess að rauði þráður-
inn í gegnum kerfið sé á þann veg að ef ung-
menni fara ekki í afreksíþróttir þurfum við að
búa til gott fólk. Við þurfum að vinna betur
með íþróttaþjálfurum og íþróttakennurum í
skólum. Við eigum nefnilega að búa til leið-
toga, þjálfara, stjórnendur og góða borgara,“
segir Vésteinn og lýsir fyrirkomulaginu á þann
veg að það verði umgjörðin utan um atvinnu-
væðingu afreksíþrótta. Þar verði búinn til
launastrúktúr fyrir afreksíþróttafólk, landsliðs-
hópa, þjálfara og alla þá sem þarf til að sinna
landsliðsfólki. Á sama tíma þurfti sambands-
aðilar að geta sinnt betur starfinu víða um land.
Börn á að ala upp sem leiðtoga
Ráðstefna
í nóvember
Fjallað verður um verkefnið og vinnu
starfshópsins á stórri ráðstefnu á
vegum Mennta- og barnamála-
ráðuneytis, ÍSÍ og UMFÍ og fleiri á
Grand Hótel 20. nóvember
næstkomandi.
Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, leiðir starfshóp um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks.
„Það er auðvelt að búa þessa umgjörð til.
Við þurfum að koma til móts við mismunandi
þarfir um allt land og tryggja að börn og ung-
menni á Austurlandi hafi sömu möguleika á
því að verða afreksíþróttafólk og aðrir. Þeirra
vegferð er nefnilega öðruvísi en þeirra sem
búa í Reykjavík.“
Verkefnið er enn í mótun og hluti af grein-
ingarvinnunni er að taka saman eins miklar
tölulegar upplýsingar og völ er á, verkefna-
styrki, tekjur og fleira til að búa til sem skýr-
asta mynd af stöðunni áður en byggt verður
ofan á hana.
„Þetta gengur allt út á samræður, samvinnu
og gegnsæi,“ segir Vésteinn og bendir á að
í grunninn byggi kerfið á því að byggja sterkt
og samræmt stoðkerfi um allt land.
Vésteinn segist oft hafa verið spurður að
því hvort Íslendingar geti orðið bestir í heimi.
Hann svarar því ætíð á svipaðan hátt:
„Það er ekkert sem segir annað. Ég er meiri
leiðtogi en íþróttamaður, jafnvel þótt ég hafi
komist í úrslit á Ólympíuleikum. En ég náði
gulli þar sem þjálfari. Það gerðist af því að
mér leið betur sem þjálfara. Og mér hefur líka
liðið betur sem leiðtoga. Það er af því að ég
var alinn upp í því að vera leiðtogi á Selfossi.
Ef við sköpum hefð fyrir því að ná árangri og
skapa umgjörð fyrir starfið getum við einmitt
unnið gull í hvaða íþróttagrein sem er,“ segir
Vésteinn að lokum.