Skinfaxi - 01.02.2023, Side 22
22 S K I N FA X I
Tillaga lögð fyrir
sambandsþing UMFÍ
UMFÍ og ÍSÍ hafa lengi starfrækt vinnuhópa sem skoðað hafa stöðu íþróttahéraða á Íslandi.
Íþróttahéruðin voru skipuð og skilgreind fyrir áratugum síðan. Þótt ytra umhverfi íþróttahéraða
og íþróttafélaga hafi breyst mikið í gegnum tíðina hafa íþróttahéruðin staðið nokkuð í stað.
Fyrir sambandsþingi UMFÍ liggur tillaga sem ætlað er að jafna aðstöðumun í íþróttahreyfingunni
og bæta starfið í heild sinni. Tímamótin felast ekki aðeins í því hvað breytingin verður mikil og
jákvæð heldur því að fulltrúar UMFÍ og ÍSÍ unnu saman að tillögunni og hefur hún verið
samþykkt á þingi ÍSÍ.
Í íþróttalögum er kveðið á um að ÍSÍ og UMFÍ ákveði íþróttahéruð.
Íslandi er í dag skipt upp í 25 íþróttahéruð sem saman standa af sjö
íþróttabandalögum í 18 héraðs- og ungmennasamböndum. Hlutverk
íþróttahéraðanna er að vinna að fjölbreyttum hagsmunamálum íþrótta-
og ungmennafélaga á hverju svæði.
Mörg íþróttahéraðanna voru stofnuð á öðrum og þriðja áratug
tuttugustu aldar, nokkur á fimmta áratugnum og örfá síðar. Mikið vatn
hefur runnið til sjávar síðan þetta var. Miklar breytingar hafa orðið á
öllu ytra umhverfi héraðanna. En litlar breytingar hafa orðið á lög-
bundnu hlutverki héraðanna og starfsemi þeirra er mismunandi allt frá
því að vera mikil og niður í það að vera nánast ekki til staðar.
Stjórnendur og starfsfólk íþrótta- og ungmennafélaga, sem víða
eru í hlutastarfi eða sjálfboðastarfi, sinna mjög öflugu og góðu starfi
um allt land. Kröfur samfélagsins um starfsemi og skyldur félaganna
hafa aukist mikið og einnig til þeirra sem starfa fyrir félögin. Víða eru
félög í þröngri stöðu fjárhagslega og ráða illa við að hafa starfsfólk,
sem gerir þeim erfiðara að skipuleggja starfsemi sína fram í tímann.
Tillagan í hnotskurn
Aðdragandinn:
• Stefnumótun stjórnvalda felur í sér aukna samvinnu ÍSÍ og
UMFÍ.
• Innkoma fjögurra íþróttabandalaga hefur breytt UMFÍ
• Talað hefur verið um aukið réttlæti og jöfnuð í hreyfingunni.
Að óbreyttu er jöfnuðu ekki til staðar hvað varðar útgreiðslur
lottófjármagns til sambandsaðila. Íþróttabandalögin hafa
fram til þessa engar greiðslur fengið frá UMFÍ.
• Kröfur eru að aukast á íþróttahéruðin.
• Íþróttahéruðin eru misstór og geta þeirra misjöfn.
• Styðja þarf betur við íþróttahéruð svo þau geti tekist á við
þau verkefni sem nú þegar þarf að sinna en einnig verkefnum
sem fyrirséð eru í framtíðinni.
Vinnan:
• UMFÍ og ÍSÍ með nefndir og vinnuhópa ásamt sameigin-
legum nefndum.
• Hagsmunaaðilar víðs vegar að í starfinu, stórir sem litlir
um allt land.
• Tillit tekið til víðtækra sjónarmiða.
• Áhersla á að niðurstaðan tryggi aukið fjármagn út á land.
Staðan í dag:
• Stærð íþróttahéraða er mjög mismunandi og mismargir að
vinna hjá þeim.
• Ekki hægt að tengja fjölda starfsmanna við fjölda aðildar-
félaga eða iðkendur.
• Geta íþróttahéraða til að takast á við fyrirsjáanleg aukin
verkefni er mismikil.
Tillagan:
• Efla íþróttahéruðin með því að koma á fót sameiginlegum
starfsstöðvum um allt land.
• Starfsstöðvarnar hafa það hlutverk að þjónusta íþrótta-
héruðin í nærumhverfi sínu með samræmdum hætti.
• Sterkari íþróttahéruð og starfsstöðvar um allt land auki
skilvirkni innan íþróttahreyfingarinnar og geri þeim kleift
að takast á við núverandi og fyrirséð verkefni.
• Þetta styrkir stefnumótandi vinnu og aðgerðir á landsvísu
og stuðlar þannig að farsæld barna og annarra sem nýta
þjónustu hreyfingarinnar.
Möguleg verkefni starfsstöðva skv.
niðurstöðum úr könnun til íþróttahéraða
• Aðstoð og frumkvæði við lögbundnar skyldur og verkefni,
s.s. persónuvernd, sakavottorð, raunverulega eigendur,
almannaheillaskrá o.fl.
• Samráðsvettvangur milli landshluta
• Samstarf og samskipti við opinbera aðila
• Úthlutun fjármuna
• Farsældarlög, fræðsla og innleiðing
• Fræðsla og kynning
• Samræming á verkferlum, viðbrögðum ásamt aðstoð
í erfiðum málum
• Efling lýðheilsu
• Aðstoða aðildarfélög
• Gæta að jafnræði og jafnrétti í starfinu
• Tölfræðileg gögn fyrir svæðið
• Aðstoð við ný félög
• Skráning og yfirsýn um þjálfara á svæðinu – skipulagning og
samnýting á svæðinu (farandþjálfun)
• Aðstoð við nýsköpun og þátttöku í verkefnum
• Aðstoð við styrkveitingar
• Aðstoð við styrkumsóknir
• Skráning minja og varðveisla heimilda