Skinfaxi - 01.02.2023, Page 24
24 S K I N FA X I
„Við höfðum ekki áður heyrt af því hvað votlendið gerir mikið gagn
og vissum ekki hvað það er mikilvægt fyrr en nú. Það þarf að stækka
votlendið miklu meira,“ segir Guðbjörg frá Hafnarfirði, sem var
þátttakandi á ungmennaráðstefnunni.
Umfjöllunarefni ráðstefnunnar voru umhverfis- og loftslagsmál og
var endurnýting, umhverfisspor fyrirtækja og neytenda og fleira í
þeim dúr ofarlega á baugi í samræðum þátttakenda. Ungmennaráð
UMFÍ sem stóð fyrir ráðstefnunni bauð um 70 þátttakendum á hana,
þar á meðal ungmennaráðum sveitarfélaga og félagasamtaka á borð
við Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Fjöldi gestir komu á ráðstefnuna. Á laugardag komu þeir Sævar
Helgi Bragason, sem margir þekkja sem Stjörnu-Sævar, og Jóhannes
Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, sem
stýrði málstofu þátttakenda um umhverfisspor og pælingar um hvað
neytendur geta gert til að minnka spor sitt.
Guðbjörg og vinir hennar við eitt af hópaborðunum á ráðstefnunni
sögðust ekki hafa vitað hversu þurrkað votlendi er mengandi og hvað
í raun lítill hluti af gróðurlendi sem búið er að þurrka upp er nýttur af
bændum, eða aðeins 20%. Með Guðbjörgu við borðið sátu þau Felix
frá Akureyri, Anna Katrín, Líf og Ísak frá Akranesi og Benedikt úr Skeiða-
og Gnúpverjahreppi.
Ráðstefna sem styrkir ungt fólk
Ráðstefnan sem hefur verið haldin árlega frá 2009 hefur fest sig í sessi
sem einn af mikilvægari viðburðum fyrir ungt fólk á Íslandi. Á ráðstefn-
unni er ævinlega lögð áhersla á að efla lýðræðislega þátttöku ungs
fólks og þátttakendum gefin tól og ráð til að styrkja ímynd sína og gera
þeim betur kleift en áður að taka upplýstar ákvarðanir um líf sitt og
lífsstíl. Erasmus+ styrkir ráðstefnuna nú sem fyrri ár.
Erindi og málstofur þeirra Sævars Helga og Jóhannesar voru fyrri
dag ráðstefnunnar. Daginn eftir bættust við á ráðstefnuna þingmenn
og sveitarstjórnarfólk sem tóku þátt í kaffihúsasamræðum. Þar á meðal
voru þær Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, María Rut Kristins-
dóttir, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar, Píratarnir Björn Leví Gunnars-
son og Gísli Rafn Ólafsson, Ingibjörg Isaksen, þingkona Framsóknar-
flokksins, og Steinar Ingi Kolbeins, aðstoðarmaður umhverfisráðherra.
Auk þeirra tóku Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, og
Málfríður Sigurhansdóttir, stjórnarkona í UMFÍ, þátt í kaffispjallinu.
Mikilvægast að fræðast, fræða aðra, vera fyrirmynd, láta í sér heyra og kjósa
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði fór fram á Reykjum í Hrútafirði helgina
22.–24. september. Ungmennaráð UMFÍ stóð fyrir ráðstefnunni og bauð þar ungu fólki
af öllu landinu til fundar með þingmönnum og sveitarstjórnarfólki auk þess að bjóða
upp á forvitnilega fyrirlestra um umhverfis- og loftslagsmál.