Skinfaxi - 01.02.2023, Side 27
S K I N FA X I 27
Kenna þarf íþróttafólki að finna leiðir til að tak-
ast á við vonbrigðin þegar það nær ekki þeim
markmiðum sem það setur sér, að sögn sál-
fræðingsins Richard Taehtinen, eins þriggja
sálfræðinga sem á ráðstefnunni héldu erindi
um mikilvægi samvinnu og trausts á milli
þjálfara og íþróttafólks.
Hinir íþróttasálfræðingarnir voru þeir
Thomas Danielsson og Helgi Héðinsson, en
allir tóku þeir þátt í fyrsta hluta ráðstefnunnar
„Sálfræði og íþróttir“, sem haldin var undir
merkjum Sýnum karakter undir lok septem-
ber. Vel var mætt á ráðstefnuna, enda hefur
sálfræði í íþróttum og andlegi þátturinn sífellt
stækkað og orðið að stærra viðfangsefni í
þjálfun síðari ára.
Ráðstefnunni var skipt í þrjá hluta eftir mis-
munandi áherslum og voru íþróttasálfræðing-
arnir þrír í fyrsta hluta hennar. Sá hluti fjallaði
um mikilvægi þess að byggja upp traust á milli
þeirra fagaðila sem koma inn í íþróttastarfið,
til þess að skapa grundvöll til að byggja sál-
fræðivinnu á. Einnig ræddu þeir um að máli
skipti að fá samþykki leiðtoga innan íþrótta-
liða til að stuðla að auknum árangri íþróttasál-
fræðinga með íþróttafélögum eða liðum.
Heiðar Davíð Bragason, yfirþjálfari hjá Golf-
klúbbi Akureyrar, veitti einnig innsýn þjálfar-
ans í þessa samvinnu íþróttasálfræðings og
gaf dæmi um mikilvægi þess að sálfræðing-
urinn þekkti einnig íþróttagreinina vel og
gæti tekið þátt í leiknum til að efla traustið á
milli hans og íþróttamannsins.
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir spurði
sálfræðingana í fyrirspurnatíma hvað íþrótta-
fólk gæti gert þegar það næði ekki markmið-
um sínum þegar á hólminn væri komið og
hvernig takast eigi á við það þegar settu mark-
miði er ekki náð. Richard Taehtinen greip bolt-
ann á lofti og svaraði: „Þetta þarf að kenna,
bæði íþróttakennurum, þjálfurum og íþrótta-
fólki.“
Hvernig getur
íþróttamaður tekist
á við vonbrigðin?
Fjallað var um andlega þáttinn í þjálfun og íþróttaiðkun á
ráðstefnu undir merkjum Sýnum karakter. Meðal annars var
fjallað um traust, leiðtoga í íþróttaliðum, samvinnu og fleira.
Sýnum karakter
er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og HR. Markmið
þess snýr að þjálfun sálrænnar og félagslegrar
færni barna og ungmenna í íþróttum og er því
ætlað að hvetja þjálfara og íþróttafélög til að
leggja enn meiri og markvissari áherslu á að
byggja upp góðan karakter hjá iðkendum og
gera þá betur í stakk búna til að takast á við lífið
auk þess að ná árangri í íþróttum.
Ráðstefnan
Sálfræði og
íþróttir
skiptist upp í þrjá hluta. Fyrsti hlutinn
fjallaði um mikilvægi þess að byggja
upp traust á milli þeirra fagaðila sem
koma inn í íþróttastarfið, til þess að
skapa grundvöll til að byggja sálfræði-
vinnu á. Hinir tveir voru eftirfarandi:
Sálfræðileg færni í þjálfun barna
og unglinga
• Óli Stefán Flóventsson, þjálfari hjá
Ungmennafélaginu Sindra, veitti mjög
áhugaverða innsýn í sína nálgun sem
þjálfari hjá litlu liði úti á landi og hvernig
hægt væri að byggja upp karakter hjá
iðkendum með skipulögðum hætti og
endurskilgreina hvað væri árangur.
• Grímur Gunnarsson sálfræðingur fjall-
aði um uppbyggingu á hugrænni þjálf-
un innan yngri landsliða KSÍ.
• Edda Dögg Ingibergsdóttir, íþróttasál-
fræðiráðgjafi hjá Fimleikasambandi
Íslands, fjallaði um fræðslu FSÍ í þjálfun
sálfélagslegrar færni og mikilvægi þess
að veita foreldrum sömu upplýsingar
og iðkendum. Það styrkti foreldra til
að styðja betur við ungmennin og auð-
veldaði þeim að tala um andlega líðan
í íþróttum.
Verkefnið 5C
• Dr. Hafrún Kristjánsdóttir fór yfir tilurð
verkefnisins 5C, mikilvægi þess og
framkvæmd. Erasmus+ styrkir verk-
efnið, en samstarfsaðilar þess eru ÍSÍ,
UMFÍ, Háskólinn í Reykjavík og Lough
borough-háskóli í Englandi. Fimleika-
samband Íslands og Knattspyrnusam
band Íslands vinna að innleiðingu
aðferðafræði 5C í starf sitt sem Chris
Harwood prófessor hannaði hjá tveim-
ur íþróttafélögum (deildum). Verkefnið
hófst árið 2021 og rennur sitt skeið á
enda í upphafi árs 2024.
• Prófessor Chris Harwood gaf stutta
kynningu á einum af þessum fimm þátt-
um (Commitment, Communication,
Concentration, Control, Confidence)
sem aðferðafræðin byggir á. Fjallaði
hann um skuldbindingu (Commitment)
og fór yfir aðferðir sem þjálfarar gætu
notað á æfingum til að veita iðkendum
skilning á hvað væri skuldbinding og
hvernig ætti að draga hana fram á
æfingum og í keppni.
• Steinar Leó Gunnarsson, þjálfari hjá 3.
og 4. flokki hjá Fylki, veitti innsýn þjálf-
ara sem hefur sett sig inn í aðferða-
fræðina og lagt sig fram við að innleiða
hana á æfingum.
• Að lokum veitti Daði Rafnsson, fag-
stjóri afrekssviðs MK og doktorsnemi í
HR, innsýn í fjölbreytta notkun 5C.