Skinfaxi - 01.02.2023, Síða 31
S K I N FA X I 31
Banastuð í blindrafótbolta
„Hér verða engin þrumuskot!“ hrópaði íþrótta-
kempan og kennarinn Karl Lúðvíksson, sem
stýrði blindrabolta á Unglingalandsmótinu á
Sauðárkróki. Blindrabolti var ein af nýjung-
um sem boðið var upp á á mótinu. Í þessari
grein var bundið fyrir augu þátttakenda og
fylgdi aðstoðarmaður hverjum þeirra til að
leiðbeina þeim. Bjalla var innan í boltanum
og þurftu leikmenn beggja liða því að hlusta
vel á eftir boltanum til að finna hann.
Karl, sem hefur tekið þátt í Landsmótum
UMFÍ 50+, leiðbeindi liðsmönnum beggja
liða vasklega og áminnti þá sem létu of mikið
í sér heyra eða veittu keppendum of mikla
hjálp til að skora í afar hressilegum og
skemmtilegum leik.
Næsta Unglingalandsmót UMFÍ
verður haldið í Borgarnesi um verslunarmanna-
helgina 2024.
Frosti Þór og Guðni Bent eru góðir og kepptu
meðal annars í frjálsum íþróttum á mótinu.
Frosti, sem er 12 ára, er frá Hrafna-Flóka á
Vestfjörðum en Guðni, sem er 11 ára, tók þátt
í mótinu undir merki Ungmennasambands
Skagafjarðar. Þeir tóku báðir þátt í hástökk.
Frosti stökk 1,49 m en Guðni 1,48.