Skinfaxi - 01.02.2023, Síða 40
40 S K I N FA X I
Níu af hverjum tíu börnum sem taka þátt í
Jump4fun verða ánægðari með því að hreyfa
sig. Þetta sýnir ný dönsk úttekt meðal þátttak-
enda og foreldra í hinu aðlagaða íþróttaverk-
efni Jump4fun, sem DGI, systursamtök UMFÍ
í Danmörku, bjóða upp á í 39 sveitarfélögum
og 75 íþróttafélögum.
Jump4fun er ætlað börnum og ungmennum
sem eru t.d. með áskoranir vegna ofþyngdar
eða greiningar, eru lítið vön hreyfingu eða
hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþróttastarfi.
Verkefnið er mótað í nánu samstarfi DGI,
sveitarfélaga og íþróttafélaga.
Í Jump4fun-hópi skemmta krakkarnir sér
saman og hreyfa sig á fullu um leið. Lögð
er áhersla á hreyfingu með gleði, góðan
félagsskap og tilfinningu fyrir samfélagi.
„Jump4fun er virkilega gott dæmi um það
hvernig börnin upplifa gleðina við hreyfingu
og aukna vellíðan í daglegu lífi með þessu
markvissa verkefni. Það er mjög jákvætt. Jafn-
framt er verkefnið gott dæmi um það hvernig
hægt er með samstarfi þvert á geira að leggja
sitt af mörkum til að leysa stór samfélagsleg
verkefni sem varða velferð barna og ungmenna,
og hjálpa fleirum að vera virk í félögum,“ segir
Charlotte Bach Thomassen, formaður DGI.
Börnin hoppa sér til ánægju
Glaðari á hverjum degi og nýir vinir
Börnunum sem taka þátt í Jump4fun er vísað
þangað frá sjúkrahúsum, jólafrímerkjaheimilum
(Julemærkehjem) og í gegnum heilsugæslu-
og fjölskylduráðgjafa í sveitarfélögum. Aðrir
hafa lesið um Jump4fun í blöðum, hjá læknum
eða á netinu.
Í könnuninni kemur fram að börnin bregðast
vel við í gegnum Jump4fun og upplifa greini-
lega framför hvað varðar líkamlega, andlega
og félagslega heilsu. Rúmlega tvö af hverum
þremur barnanna verða ánægðari með að hreyfa
sig, þeim líður betur og komast í betra form.
Um leið næst árangur út fyrir íþróttaverkefnið
sjálft. Um 78% segja að þau séu hamingjusamari
í daglegu lífi, séu virkari t.d. í frítíma og hafi
eignast nýja vini síðan þau byrjuðu í Jump4fun.
„Ég trúi ekki alltaf á sjálfan mig, en ég held
að ég sé orðinn betri í þessu fyrir Jump4fun,“
skrifar níu ára drengur og ein stúlka skrifar: „Ég
gekk bara um í frímínútum áður en ég byrjaði
í Jump4fun. Núna leik ég mér alltaf í þeim."
Nýleg dönsk könnun sýnir að
íþróttaverkefnið Jump4fun
hentar vel fyrir börn með
áskoranir eins og ofþyngd
eða sjúkdómsgreiningar.
Jump4fun er skemmtilegt
Allt að 90% barnanna segja að það sé gaman
að fara í Jump4fun. Að auki svöruðu 62% að
það gleddi þau að vera hluti af Jump4fun.
Einnig má finna mikla ánægju hjá foreldr-
unum.
„Jump4fun er algjörlega frábært fyrir barnið
okkar. Þetta er ánægjulegasta stund vikunnar
hjá henni,“ skrifar foreldri 13 ára stúlku.
Jump4fun eru lítil teymi með sérþjálfuðum
leiðbeinendum sem taka einstaklingsbundið
tillit til barnanna og framkvæma ýmis verkefni
í keppnis- og frammistöðulausu umhverfi.
Verkefnið er líka gert til að laða að börn og
ungmenni sem ekki hafa fundið sinn stað í
hinum hefðbundnu íþróttafélögum.
„Sonur minn hefur farið í margar mismun-
andi íþróttir en ekki tekist að festa rætur neins
staðar. Jump4fun er fyrsta æfingaverkefnið
sem sonur okkar fer í þar sem hann hefur í raun
gaman og finnst hann ekki vera utan krakka-
hópsins, “ skrifar annað foreldri.