Skinfaxi - 01.02.2023, Page 41
S K I N FA X I 41
Saga og samstarf
Jump4fun, sem hefur verið starfrækt síðan
2013, varð til að frumkvæði Birgitte Johanne
Schmidt, barnalæknis hjá ofþyngdarstofu á
Um er að ræða félagslegt verkefni með
hvers kyns viðfangsefni eins og sund, leikfimi,
blak, náttúruskoðun, leiki, hreyfingu o.fl.
Jump4fun er stærsta landsverkefnið á heilsu-
sviði DGI. Það er samstarfsverkefni Birgitte
Johanne Schmidt barnalæknis, Jólafrímerkja-
stofnunarinnar og DGI.
Meginsýn og stefna verkefnisins
Frá upphafi Jump4fun-verkefnisins hefur það
verið þróað, því breytt og það aðlagað á mis-
munandi hátt í tengslum við markhópinn og
þarfir hans.
Meginsýn Jump4fun gengur út á að öll börn
og ungmenni með ofþyngdarvanda í lífinu
skuli hafa aðgang að aðlaðandi félagslegu
verkefni. Tilgangur þess er að hjálpa börnum
og ungmennum að finna eða enduruppgötva
gleðina við að hreyfa sig í félagsskap og auka
þannig vellíðan þeirra og sjálfsvirðingu.
Allt sem gert er í Jump4fun eflir trú barnsins
og ungmennisins á sjálft sig. Með leik, hreyf-
ingu og viðurkenningu eykst sjálfsvirðing og
vellíðan barnsins. Félagsskapurinn og að vera
eitthvað fyrir aðra er mikilvægt til að finnast
maður tilheyra hópnum.
Í Jump4fun er keppnisþættinum og stiga-
keppninni alveg sleppt. Það veitir aukna vel-
líðan, sterkara sjálfsálit og meiri ánægju af
hreyfingu. Sem þátttakandi í Jump4fun-hópi
tekur hvert og eitt þátt á því stigi sem það
er á. Börnin þurfa ekki að vita neitt fyrir fram
þegar þau byrja.
Jump4fun kemur fyrst og fremst til móts við
börn og ungmenni á aldrinum 6–16 ára sem
eru í ofþyngd og/eða eru óvön hreyfingu. Í
Jump4fun-liði geta einnig verið önnur börn
og ungmenni sem ekki hafa fundið sig í hefð-
bundnu félagsstarfi.
Stofnanir/sjóðir og ráðuneyti
Jump4fun er styrkt af sveitarfélögum og fjölda
sjóða í Danmörku og hefur verið það allt frá
því verkefnið hófst árið 2013.
Jump4fun er samstarfsverkefni DGI, Jóla-
frímerkjastofnunarinnar (Julemærkefonden
– stofnun sem styður viðkvæm börn), sveitar-
félaga og íþróttafélaga á hverjum stað.
Aðilar vinna að því að skapa gott æfinga-
prógramm fyrir börn og ungmenni sem eru
of þung eða með önnur vandamál sem geta
komið í veg fyrir að þau taki þátt í hefðbundn-
um íþróttum íþróttafélaga.
Á verkefna- og útfærslustigum hefur
Jump4fun verið fjármagnað af: Novo Nor-
disk-sjóðnum, Ole Kirk-sjóðnum, Danska
heilbrigðiseftirlitinu, Heilsueflingarpottinum,
Tryggingasjóðnum, Heilbrigðis- og forvarna-
ráðuneytinu, Barna-, jafnréttis-, aðlögunar- og
félagsmálaráðuneytinu, Lauritzen-sjóðnum,
Trane-sjóðnum og Stofnun Knud Højgaard.
Julemærkefonden (Jólafrímerkjasjóðurinn)
er viðskiptastofnun sem vinnur að því að safna
fé til reksturs jólamerkjaheimilanna, sem eru
í Hróarskeldu, Kollund, Hobro, Skælskør og
Ølsted. Það er gert með því að halda jólafrí-
merkjagöngur, með sölu jólafrímerkja og
einkaframlagi. Ingólfur greifi af Rosenborg
og kona hans greifynja Sussie eru verndarar
göngunnar og María krónprinsessa er vernd-
ari stofnunarinnar.
Um Jump4fun
• Jump4fun er samstarfsverkefni DGI,
Julemærkefonden (Jólafrímerkjasjóðs-
ins), sveitarfélaga og íþróttafélaga.
• Markhópurinn er börn og ungmenni
á aldrinum 6–16 ára sem ekki eru vön
mikilli hreyfingu. Í Jump4fun-teymi er
áherslan á að svitna, skemmta sér og
skapa þar með hreyfigleði og aukið
sjálfsálit.
• Jump4fun er starfrækt í 75 félögum
og í 39 sveitarfélögum í Danmörku.
• Jump4fun er einnig starfrækt sem
sumarbúðir.
• Matið frá 2023 er byggt á spurninga-
könnun með möguleika á athugasemd-
um. Alls svöruðu 297 börn og 187
foreldrar spurningalistanum.
• Hægt er að lesa um Jump4fun á
https://www.dgi.dk/jump4fun/