Skinfaxi - 01.02.2023, Side 43
S K I N FA X I 43
„Skinfaxi er enn í fullu fjöri, og engin ellimörk
á honum finnanleg, enda eru fjörtíu ár aðeins
hæfilegt þroskaskeið,“ er ritað í fertugasta
árgang Skinfaxa, tímarit UMFÍ. Ef ritstjóri þá
bara vissi að blaðið ætti mörg góð ár eftir og
væri á sínum 114. árgangi í dag. Sjöunda
Landsmót UMFÍ var haldið í Hveragerði dag-
ana 2.–3. júlí árið 1949. Sama ár fagnaði Skin-
faxi 40 ára afmælinu, en blaðið kom fyrst út
árið 1909.
Í fyrstu átti Landsmótið að vera haldið á Eið-
um á Austurlandi. Undirbúningur þess fór vel
af stað og allt gekk eins og í sögu. Austfirð-
ingar réðu Bóas Emilsson í starf framkvæmda-
stjóra mótsins og var hann sá fyrsti í sögu móta-
halds UMFÍ til að bera þann titil.
Stjórnir UMFÍ og Ungmenna- og íþrótta-
sambands Austurlands (UÍA) skiptu með sér
verkum við undirbúning og framkvæmd móts-
ins. Því fylgdi talsverð uppbygging. Sund-
stæði var hlaðið, en hafði þó aðeins kalt vatn,
vegir voru lagðir og bílastæði búin til, tjald-
stæðin undirbúin og gerður íþróttavöllur, auk
þess sem ráðist var í að leggja þjóðveg frá
Egilsstöðum út til Eiða. Tipptopp, eins og
sagt er.
En allt var þetta gert fyrir ekkert, eins og
bókað var í neyðarkalli frá UÍA vegna mótsins
á stjórnarfundi UMFÍ.
Raunin var að veðurguðirnir voru Austfirð-
ingum síður en svo hliðhollir.
Á Eiðum hafði snjóað langt inn í sumarið
og íþróttavöllurinn var gegnblautur með kol-
klaka, vegir ófærir og í raun var allt í volli. Þetta
var skelfileg staða og því var brugðið á það
ráð að hringja í forystusveit Héraðssambands-
ins Skarphéðins og kanna hvort mögulegt væri
að flytja mótið á milli landshluta og halda það
í Hveragerði í stað Eiða. Það reyndist mögu-
legt og var niðurstaðan sú að halda Lands-
mót UMFÍ fyrstu helgina í júlí. En nú voru góð
ráð dýr, því tíminn var ansi naumur. Aðeins
þrjár vikur voru fram að móti. Þess vegna
þurfti aldeilis að spýta í lófana.
Þrír einstaklingar tóku sæti í landsmóts-
nefnd. Það voru þeir Hjörtur Jóhannsson frá
HSK, Jóhannes Þorsteinsson frá Ungmenna-
félagi Ölfusinga og Daníel Ágústínusson fyrir
Útskriftarnemendur Íþróttakennaraskólans sýna dans á Landsmóti UMFÍ í Hveragerði 1949.
hönd UMFÍ. Bóas Emilsson var þrátt fyrir óleik
almættisins í hlutverki framkvæmdastjóra móts-
ins og stýrði hann undirbúningi þess fyrir
sunnan.
Hvergerðingar bjuggu svo vel að eiga það
sem þá var talin besta sundlaug landsins. Af
þeim sökum þurfti ekki að hlaða sundstæði á
nýjan leik, heldur voru áhorfendasvæði byggð
við laugina. Í Hveragerði var enginn íþrótta-
völlur. Við skólahúsið var hins vegar grasflöt,
sem var lagfærð og gerður ágætisvöllur auk
þess sem byggður var pallur fyrir íþróttasýn-
ingar, glímu og dans.
Nú var loksins blásið til leiks. En leiðinda-
veðrið leitaði í suðvestur og gerði þátttakend-
um óleik strax á fyrsta degi. En þrátt fyrir brösug-
lega byrjun á Landsmótinu tókst allt vel að
lokum og þrátt fyrir rigningu hafa eflaust flestir
skemmt sér konunglega. Völlurinn varð mjög
blautur en enginn hætti samt keppni.
Landsmót UMFÍ snúast um margt fleira en
keppni. Það sama heyrði um mótið í Hvera-
gerði. Þar var skemmtun í hávegum höfð. Á
sunnudeginum var hátíðardagskrá þar sem
lúðrasveit lék ættjarðarlög, margir héldu ræðu
og ýmis skemmtiatriði voru sýnd.
Gamla myndin: Allt er gott sem endar vel
Eitt skemmtiatriðanna var á vegum hóps
útskriftarnema við Íþróttakennaraskólann, sem
sýndu þjóðdansa undir stjórn Sigríðar Val-
geirsdóttur. Stelpurnar klæddust blússum og
litríkum pilsum og strákarnir voru í hvítum hálf-
ermaskyrtum með hálsklúta. Á myndinni má
sjá nokkrar af stelpunum dansa og þó að
myndin sé svarthvít er létt að ímynda sér lita-
gleðina í pilsum þeirra með því einu að skoða
mynstrin á pilsunum. Það má með sanni segja
að mótið hafi tekist einstaklega vel þrátt fyrir
smá hnökra í upphafi og sannast þar með
orðatiltækið að allt sé gott sem endar vel.
Hægt er að lesa sögu Ungmennafélags
Íslands í ritinu Vormenn Íslands. Það
er aðgengilegt á flestum bókasöfnum
og á vefsíðu UMFÍ (https://www.umfi.
is/media/ljtjixyl/vormenn-islands_low.
pdf). Hægt er að fara
með myndavél far-
síma yfir QR-kóð-
ann hér til hliðar og
fara beint á bókina.
ALM Verðbréf hf.
Apotek Suðurlands ehf
Benni pípari
Bílamálun Egilstöðum ehf.
Bílar og tjón ehf.
Bókhaldsþjónusta
Arnar Inga
Bókráð
Dynkur ehf.
Einhamar seafood
Enor ehf.
Ferðavagnar.is
Félag skipstjóramanna
Garðabær
GG lagnir ehf.
Gistihús Selfoss ehf.
Gjögur ehf.
Húnaþing vestra
Ísfrost ehf.
Jóndi og Gagga slf.
KK kranabíll
Króm og hvítt ehf.
KÞ verktakar ehf.
Lamb inn veitingar
Laxmaður ehf.
Loðnuvinnslan hf.
Máni verktakar
Mundakot ehf.
Nesbú egg
Raftækjaþjónusta Trausta
Rafverkstæði IB ehf.
Reykás ehf.
Reykjavík seaadventures
Rjómabúið Erpsstaðir
SG Hús
Skerping Jóns ehf.
Skrifstofuþjónusta
Austurlands
Sparri ehf.
Strendingur ehf.
Sveitarfélagið Ölfus
Sæplast ehf.
T.ark arkitektar ehf.
Tannlæknastofa
Suðurlands ehf.
Tjörneshreppur
Trésmiðjan Borg
Trésmiðjan Rein
Útfarastofa Íslands
Vegamót Bíldudal
Veisluþjónusta Suðurlands
Verkalýðsfélagið Hlíf
Vinnuföt
Vogir.is
Þorbjörn Fisknes
Takk fyrir stuðninginn