Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1956, Qupperneq 6

Læknaneminn - 01.03.1956, Qupperneq 6
6 LÆKNANEMINN hætta á að capillerur springi eða étist í sundur og afleiðingin verð- ur blæðing inn í alveoli eða lungna- pípur. Venjulegast er blóðmagnið, sem upp kemur, lítið, aðeins rákir eða tref jar í morgunhrákanum, og þarf því ekki að hafa alvarlegar afleið- ingar í för með sér, þó að einstöku sinnum geti fylgt á eftir önnur og alvarlegri, jafnvel banvæn blæð- ing. Einkum í gömlum, krónískum berklum, geta arteríuveggir orðið þunnir og veikbyggðir. Geta mynd- azt í þunnvegja útbunganir (ane- urysma), sem hæglega geta sprungið, og afleiðingin orðið al- varleg blæðing. Venjulegast nemur einstök hem- optysis ekki nema 30—60 cc. í einu, en geta numið allt að 300 cc. og verið banvæn. Sjúkl. getur beinlínis kafnað í blóði sínu. Stund- um kemur slík hemoptysis eftir mikla áreynslu, en það þarf ekki til, því að svo virðist sem mjög alvarleg blæðing geti komið, án að kalla nokkurra undanfarandi ein- kenna. Banvæn blæðing frá lung- um mun þó vera mjög sjaldgæf. Því hefur verið veitt athygli hjá einstaka konum með lungnaberkla, að samband virðist geta verið milli tíða (menstruation) og þess, að bær fá hemoptysis. Þannig eru til konur, sem fá hemoptysis mán- aðarlega, þegar þær hafa á klarð- um. Blæðingin stöðvast þannig, (sé hún ekki svo mikil, að ríði sjúkl. að fullu), að blóðstorka lokar æð- inni og stöðvar blæðinguna. Næstu daga á eftir getur sjúkl. kastað upp dökkleitum blóðlifrum, sem stundum eru eins og afsteypur af lungnapípunum. Þannig getur blæðingin stöðvazt, en eftir einni blæðingu geta fylgt fleiri, með nokkurra klst., sólarhrings, viku eða lengra millibili. Alvarleg hemoptysis getur kom. ið í gusum upp og fyllt munn sj., án þess, að hann hafi haft nokk- ur einkenni áður. Sjúkl. getur þá gleypt blóð, sem hann ýmist kast- ar upp aftur eða gengur niður af honum. Hefur þetta mikla þýð- ingu við greiningu á hemoptysis og verður vikið að því síðar. Bronchiectasis er lungnasjúk- dómur, sem er algeng orsök hem- optysis. Við þennan sjúkdóm verð- ur lokal eða general útvíkkun á lungnapípum, þannig myndast líkt og pokar út frá þeim. Orsakast þetta af krónískum bólgubreyting- um í veggjum lungnapípanna. Hemoptysis er talin koma fram í 50% tilfella, og er talin stafa frá slímhúðinni, sem þekur útvíkk- anirnar í bronchunum, en hún er afar blóðrík. Þá getur hemoptysis einnig kom. ið við það, að æðar, sem liggja út í áðurnefnda poka út frá lungnapípunum, rifna. Hemoptysis er ven julega lítil, en getur í einstaka tilfelli orðið al- varleg. I nokkrum tilfellum getur hemoptysis orðið vart með löngu millibili, árum saman, án nokkurra annara grunsamlegra einkenna um sjúkdóminn. Abscess. Hér verður hemoptysis við það, að abscessinn ertir og eyði- leggur nærliggjandi æðar. Þær rifna og afleiðingin verður blóð- ugur uppgangur. Blóðið, sem upp kemur, getur verið mjög rnikið, jafnvel banvæn blæðing átt sér stað. Lungnabólga. Við pneumoeocca lugnabólgu er hrákinn ryðlitaður, sem stafar af ummynduðu hemo- globini, svo að um eiginlega hem- optysis er ekki að ræða. Hins veg- ar við Friedlánder’s lungnabólgu,

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.