Læknaneminn - 01.12.1962, Side 9
LÆKNANEMINN
9
húðinni. Húð læsionir sem liggja
dýpra eru geislaðar með heldur
harðari geislun upp 50 Kv og filt-
rationin er 0.3—1 mm Al.
2) Nœrgeislun: Um hana gegn-
ir nokkuð sérstöku máli. Geislar
myndast við 60 Kv. Geislamagnið
er mikið, fjarlægð aftur mjög
lítil 1.5—5 cm. Við það verður
dosis fallið mjög ört í vefjunum
og dýptarverkun er mjög lítil, t.d.
eru um 5% af geislamagninu eftir
í 7 cm. sýpt. Það er hægt að vari-
era með tubus fjarlægð. Með nær-
geislun er einungis hægt að geisla
mjög lítil felt í einu.
3) Grunngeislun: er notuð við
læsionir grunnt undir húð t. d.
eitla o. fl. Fjarlægð höfð 15—30
em. spenna upp í 120 Kv. Filter
um 3 mm Al. Dýpri lögum er hlíft,
regenerationshæfni vefjanna er
góð.
4) Djúpgeislun: Takmark henn-
ar er að koma sem mestu geisla-
magni á læsionina og hlífa jafn-
framt húð og yfirliggjandi vefj-
um. Þá er fjarlægð höfð mikil t.d.
50 cm. filter úr kopar 1—2 mm
og spennan ad 250 Kv.
5) UltrahÖrðgeislun: Þá er ork-
an 1 MeV eða meira, þeir geislar
hafa mikið smygi og praktiskt
talað engan absorptions mismun.
Beinum er t.d. hlíft með því. Há-
marksdosis er ekki við yfirborð
heldur í nokkurri dýpt. Oft getur
svo verið að húðin þar sem geisla
búntið fer út verður fyrir meiri
áhrifum, en það svæði sem geisl-
arnir fóru inn um. Mest hafa verið
brúkaðir geislar með um 15—20
MeV orku. Geislarnir frá slíkum
tækjum eru mjög vel afmarkaðir
því Comptonseffectinn kemur
fram í stefnu primær geislanna.
Tímanleg variation geislanna
hefur og nokkra þýðingu og þó er
aðeins einn variant praktiseraður
nú þ.e. svokölluð fraktionering, Þá
er heildar dosis skipt í fieiri
smærri skammta og gefinn einn
daglega. Skiptir það litlu máli
hve afköst tækisins eru mikil. Hún
er hin algengasta aðferð nú til
dags.
Teknisk applikation.
I. — Föst felt. Hægt er að
geisla svæði frá 1 felti ef ekki á
að leggja mikið á húðina. Ef aft-
ur á móti geislaskammtur þarf að
vera mikill á læsionina, meiri en
hægt er að leggja á húðina má
oft geisla svæðið frá fleirum en
1 felti. Slíka geislun kalla Þjóð-
verjar ,,Kreuzfeuerstrahlung“ og
næst þá hærri dosis á læsionina.
II. — Sieb-geislun — Sigtigeisl-
un. Þá er perforeruð plata lögð
á húðsvæðið sem geisla þarf á og
hlífast þá þau húðsvæði, sem milli
gatanna liggja, en þegar frá húð
dregur jafnast áhrifin og dýptar-
verkun er meiri. Með þessu móti
er hægt að gefa 5—800 r í senn
upp í 15—20 þús. r total dosis.
III. — Fjarlæg'öargeislun er not-
uð þegar geisluð eru stór svæði
líkamans. Fokus fjarlægð ekki
minni en 1 m, en skammtar þá
hafðir mjög litlir 5—10 r í senn.
IV. — Hreyfigeislun. Þá er ým-
ist lampa eða sjúkling snúið þann-
ig að geislinn lendi alítaf á læsion-
inni, en húðsvæðin verða mun
stærri og því minni skammtur á
flatareiningu hennar.
V. — Ultraharöa geislunin hefur
þó verulega dregið úr ofangreindri
geislunaraðferð, því hún miðar að
sama marki og kemst það á ann-
an hátt vegna mikils smygi geisl-
anna og þar með hlífð á húð.
Síðari hluti í næsta blaði.