Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1962, Qupperneq 10

Læknaneminn - 01.12.1962, Qupperneq 10
LÆKNANEMINN 10 fP. Cf. fffolkci, fyrrv. kérafslœí nir: Fyrsta læknafélag á íslandi Læknar eru sú stétt, sem fyrst allra tóku upp með sér skipulags- bundinn félagsskap, ef til vill að prestum eða hofgoðum undantekn- um, en meðal frumstæðra þjóða er þar að vísu um hina einu og sömu stétt að ræða, stétt sham- ananna, eða ,,medisínmannanna“, sem jöfnum höndum iðkuðu lækn- ingar og fórnarþjónustu við guði ættstofnsins. Úr þeim tengs'um losnuðu þeir, sem við handlækn- ingar fengust, á undan lyflækning- um, og eru þeir fyrrnefndu orðnir að sjálfstæðri stétt meðal Sumera og háðir sérstökum fyrirmælum að því er ábyrgð snertir skv. lög- bók Hammurabis fyrir 4000 ár- um síðan. Frá þeim tíma er það elzta frumrit um lækningar, sem nú er til, leirtafla með fleygletri, þar sem á eru skráðir nokkrir lyfseðlar. Um daga Hippokratesar, sem var uppi um 400 árum fyrir Kristburð, höfðu grískir læknar komið á með sér því siðalögmáli, eða codex ethicus, sem í megin- atriðum er enn mælisnúra fyrir breytni lækna við sjúklinga sína og sín á milli og Alþjóðasamband lækna — World Medical Asso- ciation — hefur tekið upp á stefnuskrá sína. Á miðöldum voru allvíða starfandi gildi lækna eða stéttarfélög, sem höfðu það mark- mið að annast hagsmuni meðlima sinna, og mun læknagildið í Fir- enze á lýðveldistímum þess borg- ríkis á 14. öld hafa verið þeirra voldugast, því að það var eitt af þeim níu arti maggiores eða meiri háttar gildum, sem fóru með stjórn borgarinnar. Nú á tímum hafa læknafélögin tvöfaldan tilgang, varðveizlu stétt- arlegra hagsmuna og eflingu læknisfræðinnar sem vísinda- greinar, og fara mörg þeirra með hvorttveggja, en sum aðeins með vísindalega þáttinn. Elzta vísinda- félag á Vesturlöndum er Gaupu- félagið, Accademia dei Lincei, stofnað í Róm 1603, en að vísu má skoða fyrstu læknaskóla Vest- urlanda, svo sem háskólann í Salerno, sem sameiginlegt félag lækna og læknanema. —o— Á íslandi var læknastéttin framan af það fámenn og allar samgöngur svo miklum erfiðleik- um bundnar, að um félagsskap gat ekki verið áð ræða. Hafa þó læknar hér á landi flestum öðrum fremur fundið sárt til einangrun- ar og ómöguleika þess að fá tæki- færi til að tala um áhugamál sín við jafningja, og minnist ég þess, er ég sem ungur læknir heimsótti gamla stéttarbræður, svo sem Guðmund Guðmundsson í Stykkis- hólmi og Stefán Gíslason í Vík. hve innilega þeir fögnuðu manni og glöddust yfir því að ræða um reynslu sína og nýungar í fræði- grein okkar við yngri mann, og var þetta nokkuð lærdómsríkt fvi'- ir mig. Á þeim tímum var stétt- artilfinningin það rík, að það þótti hin mesta ókurteisi að heimsækja

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.