Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1962, Page 17

Læknaneminn - 01.12.1962, Page 17
LÆKNANBMINN 17 læknar í framhaldsnámi erlendis taka ekki á sprett heim. Bölvuð óþjóðholl- usta og vanþakklæti heitir þetta allt. Þvi ekki að leggja nótt við dag, ef menn skortir peninga? Þetta gerum við í síld- inni og vinnan göfgar manninn, stend- ur þar. En hvað er vinna? Telst það ekki vinna að hafa yfirlit um störf sín og fylgjast með, svo menn haldi velli og standist þær kröfur, sem til þeirra eru gerðar og gagnvart læknum verða sífellt meiri? Jú, þetta er meira að segja oft og tíðum argasta púl, þótt menn fái ekki sigg í lófana. Og látum þá upptalið. Þeirri leiðu staðreynd verður ekki neitað, að menn hlaupa nú mest eftir skyndigróða og vegsama þá hluti, sem mest eru aug- lýstir og skrumfluttir, hversu fánýtir og innantómir sem þeir kunna að vera á sama tíma og verðmæti æðstu mennt- unar eru í samstilltum dansi þjóðar- innar við ráðamenn sína um langt skeið eigi annað en hugtak til tyllidagastáss. Það er af þessum ástæðum sem sjálfur Háskóli Islantls fær ekki unnið sitt starf sem skyldi, þess vegna sem mennta- stéttir eiga undir högg að sækja og þess vegna, sem með einstæðum hætti er hægt að lítillækka og móðga jafn- vei þá aðila, er gerðar eru til livað mest- ar kröfur í þjóðfélaginu. Þetta eru á- stæðurnar til þess, að lækna„deilan“ gat gengið fyi'ir sig með þeim eindæm- um, sem raun varð á, án þess að heyrð- ist ymt eða skrymt í nokkru horni. —o— Það er ákaflega leiðinlegt að þurfa einatt að vera að hugsa um peninga og mikið held ég að þeir menn hljóti að vera fráhrindandi, sem ekki eiga önnur hugðarefni, ef manni leyfist að nota svo virðulegt orð. Ég býst einnig við því að mörgum læknum og þá kannske einkum hinum eldri finnist þessi dans um gullkálfinn nokkuð nýtízkulegur í stéttinni og mikið álitamál, hvort hún eigi að gera hann að slíku átakaatriði sem nú hefur raun á orðið. Víst er það rétt, að læknanna starf er mánnúðar í eðli sinu og peningurinn henni tæpléga náskyldur. Rétt er það líka eins og einn góður maður hefur sagt, að peningurinn kem- ur ekki í veg fyrir allar misgjörðir og manngildið sjálft ræður mestu. Og víst er um það, að það er leiðinlegt að þurfa ætíð að vera að taka af mönnum pen- inga fyrri að rétta þeim hjálparhönd. En þetta er ekki nema hálfur sann- leikur. Það þýðir ekkert að vera óraun- sær. Þegar hjálpin við náungann er komin út fyrir venjulegan skilning þess hugtaks og oi'ðin að ævistarfi gagnar lítt að taka aðeins við innilegu þakk- læti að launum þótt gott sé, því náms- skuldir, tæki, bækur og heimilishald verður ekki gagngoldið með því þakk- læti eða blíðu brosi einu saman. Er hætt við, að slíkur greiðslumáti myndi þykja ærið hæpinn, skapa bókhalds- skekkjur og valútutruflanir og sitthvað fleira. Og svo er annað; peningurinn er öflug mælieining, sem læknum dugar ekki að gefa frat í. Þegar fólk fer að halda, að hlutirnir kosti ekki neitt, fer það að misnota og vanmeta. Hógværð, hversu ágætur eiginleiki sem hún kann að vera, getur nefnilega gengið svo langt að verða engum til góðs. Það er komið á daginn, að það er ekkert lögmál, að „mannsæm- andi lifskjör" fylgi hér heima að loknu læknisfræðinámi. Okkar, sem brátt Ijúkum þessu námi (vonandi) bíður því barátta, sem hefur gleymst að heyja, kannske vegna þess, að menn töldu þess ekki þörf og treystu skilningi. En ís- lenzkir læknar þurfa allra hluta vegna hiklaust að krefjast þess úr hendi þjóð- félagsins, sem þeir þurfa til sjálfra sín og þess hlutverks, sem þeim er ætlað og ber að inna af hendi í þjóðfélaginu og fylgja eftir sem þarf. Og meðan þetta „til sjálfra sín“ miðast við venjulega lífsþörf og þær kröfur, sem einnig eru gerðar til menntamanna í einkalífi, en ekki auðsöfnun, munu læknarnir ekki

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.