Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1962, Blaðsíða 25

Læknaneminn - 01.12.1962, Blaðsíða 25
LÆKNANEMINN 35 lækninn í síma, en þekkti hann ekki að öðru leyti. En það er skemmst frá því að segja, að ég varð ekki fyrir von- brig'ðum með viðkynninguna við lækn- ishjónin á Hornafirði. Kjartan tók á móti mér og ók með mig beinustu leið heim í hinn myndarlega læknisbústað, sem rikið hefur nýverið látið reisa. Þar beið okkar hin ágæta kona hans með uppbúið borð, hlaðið sviðum og öðru meðlæti. Eg var ekki fyrr seztur við matarborðið en nervösitetið tók smátt og smátt að leka af mér. Við að hlusta á hina sifelldu og optimistisku glað- værð læknisins, var ekki hægt annað en að gleyma þeim ógnvekjandi sýnum og hugsunum, sem höfðu ásótt mig síðustu daga, bæði í svefni og vöku, svo að mér hafði varla komið dúr á brá. Hann hafði einstakt lag á að gera sitt starf ein- falt og næstum vandalaust í mínum aug- um. Það var alveg eins og hvaða skussi sem væri gæti komið í hans stað! Við þetta óx mér svo kjarkur, að ég fór að hlakka til starfsins, sem var í vændum, og var staðráðinn I að gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana, svo að læknir- inn gæti farið í sitt langþráða og verð- skuldaða sumarfri án þess að hafa miklar áhyggjur af mér. Ég ætla ekki að orðlengja þetta frekar. Kvöldinu vörðum við til að spjalla um starfið og héraðið vítt og breitt. ffig þurfti eðlilega margs að spyrja, og Kjartan leysti úr öllum mín- um vandamálum og gaf mér mörg ráð, sem seinna reyndust vel. Næsta morg- un seldi hann mér svo öll lyklavöld í hendur, kvaddi, og ég var einn. Hafnarhérað er vafalaust með stærstu læknishéruðum þessa lands, að minnsta kosti hvað yfirferðina snertir. 1 vestur nær það lengst að Skaftafelli í Öræf- um, en i austur að Hvalnesi í Lóni. Ekki er von til þess, að ókunnugir fái ráðið fjarlægðina á milli þessara bæja. Ég kann ekki að nefna hana í kilometr- um, en áhrifaríkast er að gera sér grein fyrir henni á Islandskorti. Ibúar héraðsins munu vera liðlega 1400. Þar af búa ca. 600 á Höfn. Á vetr- arvertiðinni er fjöldi aðkomumanna á Höfn og þá er mesti annatími héraðs- læknisins eins og hjá fleirum. Hafnarkauptún er prýðilega centralt fyrir lækninn, ef átt er við þéttbýlasta svæði A-Skaftafellssýslu, en ef kallið kemur úr Öræfunum, má hann eiga von á hálfs sólarhrings ferðalagi eða meira. Vegir í sýslunni eru yfirleitt góðir og greiðfærir, en frekar mjóir. Vestast í Suðursveit og í Öræfum er þó varla hægt að tala um annað en jeppaslóðir eftir sendnum sléttum þessarar byggð- arlaga. 1 fyrra sumar, að því er ég held, voru brýrnar yfir Hornafjarðarfljót opnaðar, og í sumar var brúin yfir Fjallsá í Öræfum vígð, einmitt um það leyti, er ég var þarna. Það er því orðið bílfært núna frá Höfn að Jökulsá á Breiðamerkursandi, en þar verður að ferja yfir enn þá. Á þessari leið, um miðbik Suðursveitar, er þó einn farar- tálmi, en það eru Steinavötnin svoköll- uðu. Þetta er óbrúað jökulvatn, sem dreifir sé í mörgum kvíslum yfir allt að 1,5 km breitt svæði. Kjartan hafði sérstaklega aðvarað mig um að fara ekki þarna yfir fylgdarlaust. Leið mín lá aðeins einu sinni yfir þetta jökul- vatn og gekk vel. Á bakaleiðinni var skollið á myrkur og úðarigning, og þó að með mér væri kunnugur maður, vor- um við alltaf að tapa slóðinni og áttum fullt i fangi með að átta okkur. Þetta kom þó ekki svo mikið að sök í þetta skipti, því að lítið var í vötnunum og ekki skipti þá svo miklu máli, hvar lagt var í kvíslarnar. 1 Öræfunum er fjöldinn allur af smá jökulsprænum óbrúuðum. Ég kann eng- in nöfn á þeim. Þær eru fremur sak- leysislegar að sjá, en mér er sagt, að þær geti bólgnað upp hvenær sem er og orðið gjörsamlega ófærar. Það er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.