Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1962, Page 31

Læknaneminn - 01.12.1962, Page 31
LÆKNANEMINN 31 yr '3 ámwa FUNDIIÍ Pundur var haldinn i Félagi lækna- nema 31. okt. 1962. Formaður setti fundinn og kvað til- efni hans óvanalegt, þar sem það væri uppscgn sjúkrahúslækna sem kæmi til framkvæmda á morgun. Gaf hann síðan gesti fundarins, Guðmundi Georgssyni lækni, orðið. Guðmundur byrjaði á þvi að þakka Félagi læknanema fyrir að veita lækn- unum tækifæri til að kynna málstað þeirra á fundi í félaginu. Rakti hann síðan margra ára bar- áttu sjúkrahúslækna fyrir bættum kjör- um og starfsskilyrðum, og sífellda og siharðnandi tregðu hins opinbera til að verða við kröfum þeirra. Endirinn varð því sá að læknarnir neyddust til að segja upp. Loks ræddi Guðm. um nú- verandi kjör sjúkrahúslækna, og hverj- ar kröfur þeir gerðu til úrbóta, en þær miðuðust aðeins við að læknarnir fengju sambærilegar ævitekjur og strætis- vagnastjórar, miðað við að læknarnir ynnu aðeins á sjúkrahúsunum. Næstur talaði Örn Bjarnason og hvatti hann læknanema til að láta ekki freistast til að taka ao sér störf á sjúkrahúsunum á meðan deilan stæði yfir, þótt há laun væru í boði. Því næst tók til máls Örn Smári Arnaldsson og skýrði frá þvi, að aðeins 3 læknanemar væru ráðnir í kúrsusa i næsta mánuoi á þeim sjúkrahúsum sem læknar höfðu sagt upp, svo að varla yrði sjúkrahúsunum ,,bjargað“ með kúrsus-stúdentum. Þá tók til máls Gísli Á. Þorsteinsson og skýrði hann frá niðurstöðum nefndar, sem kosin var á sl. vori til að rannsaka atvinnuhorfur kandidata næstu 3—4 ár- in. Varð niðurstaða nefndarinnar í grófum dráttum sú, að yrðu kandidatar að „afplána" sína kandidataskyldu hér heima, yrði biðin fyrir hvern og einn nálægt einu ári, frá því kandidat lyki prófi, þar til hann kæmist í stöðu. I framhaldi af skýrslu Gísla var sam- þykkt tillaga, þar sem fundurinn lýsti yfir ugg vegna ískyggilegs skorts á námsplássum fyrir kandidata og fól stjórn félagsins að fá gerða bót á þess- um málum. Því næst flutti formaður skýrslu um sinni fyrri nyt. Dýralæknir nokkur sagði mér seinna, að þetta væri ekkert eins- dæmi. Það væri stórfurðulegt, hvað nautgripir þyldu. Blóð þeirra væri sér- staklega fibrinogen ríkt, þannig að fljótt settist að öllum processum, þeir iocali- seruðust og breiddust ekki út. Það var enginn dáinn enn, er ég kvaddi Hafnarhérað, hvað sem síðar varð. fig vona, að þeim heilsist öllum vel. Ég vil nota tækifærið til að þakka Kjartani fyrir allt traustið, sem hann sýndi mér og þeim hjónunum fyrir alúðar móttökur og góðan viðgjörning. Þetta var mér ógleyma.nleg reynsla, og ég vil eindregið ráða stúdentum til að vicariera, ef þeir eiga þess kost. Það er gaman, það er alvara og það er vel borgað, og hver er ekki blankur, er mér spurn?

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.