Læknaneminn - 01.11.1969, Page 21
LÆKNANBMINN
19
Frá ritstjórn
Ný ritstjóm.
Enn er ný ritstjórn tekin til starfa. Læknanemar þakka fráfarandi
ritstjórn unnin störf, sem hún hefur rækt af samvizkusemi og vand-
virkni. Það er von okkar, sem nú tökum við, að við reynumst vaxnir
þessu starfi, sem okkur hefur verið falið.
Hvert er hlutverk læknanematímarits ? Það er margþætt, en einna
hæst liljóta að bera eftirtalin tvö atriði: annars vegar að auka áhuga á
kennsluháttum og málefnum deildarinnar, hins vegar að vera æfinga-
ritvöllur fyrir læknanema. Einnig hljóta félagsmál læknanema jafnan
að vera ofarlega á baugi.
Ljóst er, að í heild eru læknanemar ekki í síðri aðstöðu en kenn-
arar til að benda á margt, sem betur má fara í kennslumálum. Enn-
fremur leikur ekki á tveim tungum, að þessi mál ættu að skipa
háan sess í umræðum þeirra, þar sem þau hljóta að vera einn höfuðþátt-
urinn í tilvist þeirra. Þegar þetta er haft í huga, ætti það að þykja
sjálfsagður hlutur, að læknanemar hefðu sama aðstöðurétt og kenn-
arar til að móta kennslumál í deildinni. Reyndin er samt önnur. Hver
er þá skýringin? Tveimur atriðum er einkum borið við. Annars vegar,
að læknanemar hafi ekki yfir nægjanlegum upplýsingum að ráða, hins
vegar, að þeir séu í deildinni miklu mun skemmri tíma en kennarar.
Hvorttveggja er borið fram með nokkrum rétti. Hið fyrrnefnda þýðir
þó ekki, að kennarar séu nokkru virkari í söfnun og dreifingu upplýs-
inga um kennslumál en læknanemar. Þar eru báðir á sama báti. Um
hið síðarnefnda varða sjónarmið annars eðlis og er þar m. a. komið
að þörfinni fyrir meiri samfellu (continuiteti) í störfum beggja.
Nokkuð vantar á, að læknanemar sýni nægilegan áhuga á að skrifa
í eigið blað. Samt dylst engum gildi þess fyrir verðandi lækna, að
þjálfa sig í skriflegri framsetningu skoðana sinna og þekkingar. Reynd-
in hefur því orðið sú, að jafnan hefur verið leitað eftir efni út fyrir
raðir læknanema og þá fyrst og fremst til lækna. Þannig hafa fengizt
margar fróðlegar greinar, bæði fræðilegar og félagslegar, sem mikill
fengur er í. Þ. D. B.
Tillögur um verklega kennslu.
Lækanemar hafa nýverið lagt fram tillögur um skipulagningu á
verklegri kennslu í II. og III. hluta læknisfræði. Tvær nefndir störf-
uðu að samningu þeirra í sept. s. 1. Fundur í Félagi læknanema hefur
f jallað um tillögurnar, og munu þær nú liggja fyrir læknadeild til sam-
þykktar eða synjunar.
Meginefni tillagnanna eru kennsluskrár, þar sem gerð er tilraun
til að skilgreina hið helzta, sem stúdentar geta lært á hverri deild.
Yfirlæknar á viðkomandi deildum hafa verið með í ráðum og gefið
ýmis hollráð.